Seinni hálfleikur kjörtímabilsins gæti breytt stjórnmálunum varanlega - Fyrri hluti

Það stytt­ist í seinni hálf­leik kjör­tíma­bils­ins. Fyrri hálf­leik­ur­inn þró­að­ist á annan hátt en flestir áttu von á. Rík­is­stjórn sem naut gríð­ar­legs stuðn­ings þegar hún tók við hefur náð að koma nokkrum af sínum helstu stefnu­málum í gegn, en er samt sem áður að mæl­ast með afar lít­inn stuðn­ing. Minnsti flokk­ur­inn á þingi mælist hins vegar langstærsti flokkur lands­ins þrátt fyrir að stefna hans sé fyrst og síð­ast að breyta stjórn­mála­kerf­inu. Frjáls­lyndu miðju­flokk­arnir eru í sárum og upp hafa blossað blóðug inn­an­flokksá­tök innan þeirra. Við þess­ari stöðu þurfa þeir allir að bregð­ast, með mis­mund­andi hætti.

Þetta er búinn að vera mjög áhuga­verður fyrri hálf­leikur. En sá síð­ari verður lík­lega enn áhuga­verð­ari. Og loka­staðan gæti leitt til þess að íslensk stjórn­mál breyt­ist umtals­vert og var­an­lega.

Hér að neðan verður rýnt í stöðu nýju flokk­anna, Pírata og Bjartrar fram­tíðar, á þessum tíma­mótum en þeir hafa báðir verið mikið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum að und­an­förnu. Annar flokk­ur­inn vegna skyndi­legrar fylg­is­aukn­ingar en hinn vegna þess að fylgi hans er að mestu horfið. Síðar í dag mun svo birt­ast grein­ing á stöðu hinna stjórn­mála­flokk­anna.

Gagnrýni fyrir að vera ekki eins og hinir


Staða Pírata sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum er farin að valda því að önnur póli­tísk öfl reyna að grafa undan þeim. Þegar fylgið mælist yfir 30 pró­sent í fjóra mán­uði í röð og engin teikn virð­ast á lofti um að það sé að fara að minnka þá er ljóst að það þarf að taka stöð­una alvar­lega.

Vanda­málið sem öfl gamla flokka­kerf­is­ins standa frammi fyrir vegna þessa er hins vegar það að þau vita ekki almenni­lega hvernig þau eiga að tækla afl eins og Pírata, sem stendur ekki bara fyrir aðrar skoð­anir heldur vill ger­breytt póli­tískt kerfi. Gagn­rýnin, sem hefur að mestu verið sett fram á síðum Morg­un­blaðs­ins, hefur því fyrst og síð­ast snú­ist um að benda á mæt­ingu Pírata á nefnd­ar­fundi, skort á fast­mót­uðum stefnu­málum í ýmsum mála­flokkum og upp á síðkastið um „veru­leg átök“ vegna „alvar­legs inn­an­meins“ í röðum flokks­manna. Þau átök eiga sér stað, sam­kvæmt Morg­un­blað­inu, á lok­aðri Facebook-síðu Pírata.

Copy: fylgi 4. ágúst

|

Create infographics

Gagn­rýnin er þó miðuð út frá póli­tískum veru­leika sem Píratar standa ekki fyrir. Þ.e. þeir gefa sig ekki út fyrir að vera hópur sem vill móta sam­fé­lagið eftir sínu höfði og stefnu né fyrir að vera hópur fólks sem gengur að öllu leyti í takt. Í stefnu Pírata kemur til að mynda fram að þeir noti kosn­inga­kerfi á net­inu til að greiða úr ágrein­ings­málum og kom­ast að nið­ur­stöðu „sam­hliða reglu­legum mál­efna­fundum og fram­kvæmda­fundum í kjöt­heimum.“ Þetta er, að sögn Pírata, helsti örygg­is­ventill­inn á að allir geti haft aðkomu að Pírata­málum. Það er því bein­leiðis inn­byggt í stefnu flokks­ins að þar sé tek­ist á um ýmis­legt og að nið­ur­staða þeirra „átaka“ móti síðan afstöðu til mál­efna. Lyk­il­at­riðið er að flokk­ur­inn sé með lýð­ræð­is­legar leiðir til að kom­ast að nið­ur­stöðu.

Hvernig færðu fólk sem er ósammála til að vinna saman?

Þetta fyr­ir­komu­lag er þó þess eðlis að það gæti bakað Pírötum tölu­verð vand­ræði í raun­veru­leik­anum, þótt hug­mynda­fræðin á bak­við það sé fal­leg. Píratar ræða það ekki mikið opin­ber­lega en það yrði gríð­ar­lega vanda­samt verk að búa til starf­hæfan þing­flokk ef flokk­ur­inn myndi fá það nálægt því fylgi sem hann er að mæl­ast með í könn­unum í næstu kosn­ingum. Veru­leik­inn er sá að þó innan Píratahteyf­ing­ar­innar sé fólk að störfum sem er sam­mála um nokkur grund­vall­ar­at­riði (t.d. aukið gagn­sæi, beinna lýð­ræði og varð­staða um tján­ing­ar­frelsi) þá er það fólk ósam­mála um margt annað sem stór þing­flokkur þyrfti að taka afstöðu til. Sér­stak­lega ef hann ætti aðkomu að rík­is­stjórn.

Það yrði því mjög áhuga­vert, að minnsta kosti fyrir óflokks­bundna áhuga­menn um stjórn­mál, að sjá hvernig unnið yrði úr þeim ágrein­ings­málum ef Píratar sætu uppi með yfir 20 þing­menn eftir næstu kosn­ingar, líkt og kann­anir gefa til kynna að flokk­ur­inn myndi fá ef kosið væri í dag.

[caption id="attachment_14971" align="alignnone" width="640"] Morg­un­blaðið hefur fjallað tölu­vert um meintar deilur innan raða Pírata og gagn­rýnt þá harð­lega í rit­stjórn­ar­greinum.[/caption]

Morgunblaðið hefur fjallað töluvert um meintar deilur innan raða Pírata og gagnrýnt þá harðlega í ritstjórnargreinum.
Morg­un­blaðið hefur fjallað tölu­vert um meintar deilur innan raða Pírata og gagn­rýnt þá harð­lega í rit­stjórn­ar­greinum.

Vilja vera umbótaafl en "leika leikinn"

Annað nýlegt stjórn­mála­afl sem hefur verið mikið í sviðs­ljós­inu und­an­farna daga, en af allt öðrum og nei­kvæð­ari ástæðum en Píratar, er Björt fram­tíð. Upp­leggið þegar sá flokkur var stofn­aður er ekki fjarri því sem Píratar standa fyrir og eru að njóta góðs af í skoð­ana­könn­unum. Tvær af lyk­ilá­herslum Bjartrar fram­tíðar eru „minna vesen“ og „meiri sátt“. Þótt létt­úð­legur og hip­stera­legur fram­setn­ing­ar­máti áhersln­anna fari í taug­arnar á mörgum þá er inni­hald þeirra mjög í takt við það sem fjöl­margir kjós­endur eru að kalla eftir.

Í þeim felst vilji til að gera umbætur á stjórn­sýsl­unni, ein­falda aðgengi að allri stjórn­sýslu á net­inu, efla aðgengi að upp­lýs­ingum, nýta beint lýð­ræði og þátt­töku almenn­ings betur, setja þjóð­inni nýja stjórn­ar­skrá á grund­velli til­lagna Stjórn­laga­ráðs, standa vörð um frelsi ein­stak­linga og gera fjár­laga­gerð gagn­særri og skyn­sam­legri. Með annarri hend­inni er Björt fram­tíð að gefa sig út fyrir að standa fyrir þau nýju stjórn­mál sem svo mikið ákall virð­ist vera eftir.

Það sem virkar frá­hrind­andi fyrir marga kjós­endur, og hefur spilað inn í að fylgi flokks­ins hefur nán­ast horfið á örfáum mán­uðum, er að Björt fram­tíð virð­ist með hinni hend­inni vera að „leika leik­inn“. Þ.e. haga sér eins og gam­al­dags stjórn­mála­afl og aðlaga sig að þeim ramma sem um þau liggur, í stað þess að vera að ýta á hann. Ugglaust spilar þar inn í að í for­ystu flokks­ins eru for­maður og þing­flokks­for­maður, Guð­mundur Stein­gríms­son og Róbert Marshall, sem hafa setið á þingi fyrir ann­ars vegar Fram­sókn­ar­flokk­inn og hins vegar Sam­fylk­ing­una. Það er því mjög auð­velt fyrir gagn­rýnendur flokks­ins að mála þá upp sem póli­tíska tæki­fær­is­sinna sem hafi séð betra tæki­færi á nýjum vett­vangi til að tryggja þing­setu sína en á gömlu stjórn­mála­heim­ilum sínum. Þess vegna hefur Björt fram­tíð fengið þá ímynd á sig að vera fjór­flokks­af­sprengi í dul­bún­ingi umbreyt­ing­ar­stjórn­mála­afls.

[caption id="attachment_30280" align="alignnone" width="800"] Guð­mundur Stein­gríms­son er for­maður Bjartrar fram­tíðar og annar stofn­anda flokks­ins. Atlaga hefur verið gerð að stöðu hans und­an­farna viku.[/caption]

Guðmundur Steingrímsson er formaður Bjartrar framtíðar og annar stofnanda flokksins. Atlaga hefur verið gerð að stöðu hans undanfarna viku.
Guð­mundur Stein­gríms­son er for­maður Bjartrar fram­tíðar og annar stofn­anda flokks­ins. Atlaga hefur verið gerð að stöðu hans und­an­farna viku.

Öll dýrin í skóginum eru ekki alltaf vinir

Ein helsta áhersla Bjartrar fram­tíðar hefur líka verið á sam­ræðu­stjórn­mál. Að vel gefið og skyn­samt fólk geti sest niður og rætt sig niður á nið­ur­stöðu fremur en að agn­ú­ast út í hvort annað á opin­berum vett­vangi. Þegar flokk­ur­inn var form­lega stofn­aður í febr­úar 2012 sagði m.a. í frétta­til­kynn­ingu frá honum að „á meðal nýbreytni í skipu­lagi má nefna, að flokk­ur­inn mun reka mál­efn­astarf sitt á net­síðu, all­an sól­ar­hring­inn, all­an árs­ins hring, og í for­ystu flokks­ins eru tveir for­menn, sem skulu starfa sam­an og vera sam­mála um stór­ar ákv­arð­anir.“

Heima­síðan sem mál­efna­starfið átti að rekast á, heimasi­dan.is, hefur verið lokað, að minnsta kosti tíma­bundið. Þegar farið er inn á hana blasa við skila­boð um að mál­efna­starfið fari nú fram á Facebook og í mál­efna­hópum innan flokks­ins. Aðkoma almenn­ings að mál­efna­starfi flokks­ins hefur því verið þrengd og það fer nú fyrst og fremst fram á vett­vangi sem iðn­ustu flokks­menn koma að.

Það hefur síðan vart farið fram­hjá neinum und­an­farið að sam­starf upp­haf­legu for­manna Bjartrar fram­tíðar hefur ber­sýni­lega ekki verið neitt sér­stak­lega gott né hafi þeir verið sam­mála um stórar ákvarð­anir.

Atlaga að formanninum

Heiða Kristín Helga­dóttir, annar stofn­andi flokks­ins sem var stjórn­ar­for­maður hans þangað til í lok síð­asta árs, steig fram í vik­unni og gagn­rýndi for­mann flokks­ins harka­lega. Í við­tali við Kjarnann fyrir sex dögum sagði hún: „Mér finnst vandi Bjartrar fram­tíðar vera inni í Bjartri fram­tíð, hann er ekki vandi kjós­enda. Vandinn er ekki til­kom­inn vegna þess að kjós­endur skilja ekki flokk­inn heldur er hann vandi for­manns­ins [Guð­mundar Stein­gríms­sonar] og þeirra sem starfa í Bjartri fram­tíð“.

Nokkrum dögum síðar var hún gestur í þætt­inum Viku­lok­unum á Rás 1 og sagð­ist treysta sér full­kom­lega til að verða for­maður Bjartrar fram­tíðar. Þar sagði hún Guðmund hafa fengið ágætis tæki­færi til að sanna sig en að for­ysta hans væri aug­ljós­lega ekki að virka.

Það þarf ekki að vera mjög sam­sær­is­kenn­inga­lega sinn­aður til að álykta að ummæli Heiðu Krist­ínar í vik­unni sem leið hafi verið ágæt­lega und­ir­bú­inn póli­tískur leikur. Hún er að þreifa fyrir sér hvort það sé áhugi á sér sem nýjum for­ystu­manni Bjartrar fram­tíðar, bæði hjá almennum flokks­mönnum og almenn­ingi, án þess að taka afger­andi af skarið og segj­ast ætla gegn Guðmundi. Það verður hún hins vegar að gera á næstu vikum því að árs­fundur Bjartrar fram­tíðar fer fram 5. sept­em­ber næst­kom­andi, eftir tæpan mánuð, og þar mun for­manns­slag­ur­inn fara fram ef af honum verður.

[caption id="attachment_12183" align="alignnone" width="640"] Heiða Kristín Helga­dóttir, fyrrum stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar, hefur sagt að hún sé til­búin að verða foramður flokks­ins, sé vilji fyrir því á meðal flokks­manna.[/caption]

Heiða Kristín Helgadóttir, fyrrum stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, hefur sagt að hún sé tilbúin að verða foramður flokksins, sé vilji fyrir því á meðal flokksmanna.
Heiða Kristín Helga­dóttir, fyrrum stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar, hefur sagt að hún sé til­búin að verða foramður flokks­ins, sé vilji fyrir því á meðal flokks­manna.

Ljóst er á fyrstu við­brögðum, eða skorti á þeim, að útspil Heiðu Krist­ínar hefur komið mörgum þeirra á óvart. Enginn þeirra vildi taka afger­andi afstöðu til þess fyrr en Róbert Marshall gerði það í dag. Hann sagð­ist í sam­tali við Bylgjuna ekki skilja gagn­rýni Heiðu Krist­ínar og að fylgis­tapið væri ekki á ábyrgð Guð­mundar fremur en ann­arra í for­ystu flokks­ins. Það væri barna­skapur að halda að einn maður geti híft fylgi flokka upp og niður.

Greining Róberts er að ein­hverju leyti alveg rétt. Vandamál Bjartrar fram­tíðar er skortur á trú­verð­ug­leika sem stjórn­mála­afl, ekki bara lítið per­sónu­fylgi for­manns­ins. Sá skortur á trú­verð­ug­leika hefur verið hægt og bít­andi að aukast. Mik­il­væg­asta „eignin“ sem lögð var inn í Bjarta fram­tíð á sínum tíma var Besti flokk­ur­inn og sú gríð­ar­lega vel­vild sem hann naut. Eftir að Jón Gnarr, hold­gerv­ingur Besta flokks­ins, afneit­aði Bjartri fram­tíð í mars síð­ast­liðnum og sagð­ist ekki einu sinni vera í flokknum þá hefur molnað undan þeirri „eign“ og hún færst að mestu yfir til Pírata.

Þótt Heiða Kristín hafi spilað lyk­il­hlut­verk í stofnun og árangri Besta flokks­ins þá er alls óljóst hvort henni tak­ist að mynda þessa „eign“ á ný sem for­maður Bjartrar fram­tíðar.

Guðmundur bregst við

Síðdegis í dag brást Guð­mundur Stein­gríms­son við þess­ari stöðu sem komin er upp. Í stöðu­upp­færslu á Facebook sagð­ist hann ekki hafa neinn áhuga á taka þátt í for­manns­slag. Slík átök væru mein­semd. Þess í stað styðji hann til­lögu, sem likast til verður lögð fram á árs­fund­inum í sept­em­ber, um að öll emb­ætti innan flokks­ins yrðu látin róter­ast á milli fólks. Það þýddi að hann myndi ekki lengur verða for­maður, nema þegar röðin kæmi aftur að honum.



Staða Bjartrar fram­tíðar hefur verið mér og fleirum til­efni til mik­illa og djúpra heila­brota um nokk­urt skeið. Ég hef ...

Posted by Guð­mundur Stein­gríms­son on Monday, August 10, 2015

Það á eftir að koma í ljós hvort þetta útspil verði til þess að skapa sátt og róa öldur innan flokks­ins. Og það sem mestu skiptir, hvort hann nái aftur eyrum kjós­enda.

Síðari hluti grein­ingar Kjarnans á lands­lagi íslenskra stjórn­mála eins og það blasir við á miðju kjör­tíma­bili mun birt­ast síð­ast í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár