Allar líkur á að fimm flokka viðræðum verði hætt á morgun

Tími Pírata til að mynda fimm flokka rík­is­stjórn frá miðju til vinstri rennur út á morgun. Himinn og haf er á milli Vinstri grænna og Við­reisnar í mörgum lyk­il­málum. Vinstri græn vilja fjár­festa fyrir tugi millj­arða króna í vel­ferð og innviðum og Viðreisn

Lítlar sem engar líkur eru taldar á því að Píratar, Viðreisn, Björt fram­tíð, Sam­fylk­ing og Vinstri græn ákveði að hefja form­legar við­ræður um myndun rík­is­stjórnar. Mjög langt er á milli and­stæðra póla um hvernig eigi að haga tekju­öflun og hvernig eigi að taka á sjáv­ar­út­vegs­málum.

Kristján Gunn­ars­son, fjöl­miðla­full­trúi Pírata, sagði við Vísi í morgun að það muni ráð­ast á morgun, föstu­dag, hvort af form­legum við­ræðum verði. Þá verði vika síðan að Píratar fengu stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið frá Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands. Við­mæl­endur Kjarnans innan Vinstri grænna og miðju­banda­lags Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar telja afar ólík­legt, og nán­ast úti­lokað, að form­legar við­ræður verði teknar upp. Það gæti þó farið svo að reynt yrði áfram fram yfir helgi.

Stór gjá varðandi tekjuöflun

Líkt og við var að búast er mesta gjáin milli Vinstri grænna ann­ars vegar og Við­reisnar hins vegar. Vinstri græn vilja fara í fjár­fest­ingar í vel­ferð og innviðum sem gætu kostað allt að 50 millj­arða króna til við­bótar við það sem rekstur rík­is­sjóðs kostar í dag. Þær fjár­fest­ingar þarf að fjár­magna með nýjum sjálf­bærum tekjum. Það þýðir að ráð­ast þyrfti í ýmiss konar skatta­hækk­anir til við­bótar við hækkun á gjöldum sem tekin yrðu vegna nýt­ingar á auð­lindum og nýrra gjalda sem hægt yrði að leggja á ferða­þjón­ust­una. Viðreisn hefur verið mjög andsnúin svo mik­illi aukn­ingu álagn­ingar.

Síðast þegar slitn­aði upp úr við­ræðum flokk­anna fimm, þegar Katrín Jak­obs­dóttir for­maður Vinstri grænna stýrði við­ræð­unum, lá fyrir mik­ill munur á áherslum milli Vinstri grænna ann­ars vegar og Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar hins vegar. Sá munur sem fram var kom­inn var m.a. í land­bún­að­ar­málum, sjáv­ar­út­vegi og alþjóða­málum þar sem Vinstri græn töl­uðu m.a. fyrir breyt­ingum á sam­starf­inu við NATO. Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar grein, skrif­aði grein eftir að þeim við­ræðum lauk þar sem hann sagði að til­lögum um tug millj­arða skatta­hækk­anir, meðal ann­ars með hátekju­skatti og stór­eigna­skatti, væru óábyrgar. Þessi afstaða Við­reisnar, hefur ekk­ert breyst. Og vilji Vinstri grænna til að fara í tug millj­arða króna aukn­ingu í fjár­fest­ingu í vel­ferð og innviðum hefur það ekki heldur.

Yfir­lýs­ingar for­svars­manna Lands­spít­al­ans og Land­helg­is­gæsl­unnar vegna fjár­laga­frum­varps­ins, þar sem þeir lýsa í raun yfir að neyð­ar­á­stand skap­ist innan þeirra stofn­anna ef ekki verður bætt veru­lega í fjár­mögnun, hafa virkað sem olía á þann eld sem drífur kröfur um gríð­ar­leg aukn­ingu á fjár­fest­ingum í vel­ferð og innviðum. Mis­mun­andi skoð­anir um for­gangs­röðun í sam­göngu­á­ætlun, sem var ekki hluti af fjár­laga­frum­varp­inu, hefur einnig ekki gert sam­ræður auð­veld­ari.

Þá liggur fyrir að Viðreisn stendur fast á því að farin verði upp­boðs­leið í sjáv­ar­út­vegi. Í við­ræðum miðju­flokk­anna við Sjálf­stæð­is­flokk lá fyrir til­laga um að 3-4 pró­sent kvót­ans myndi fara á upp­boð og afrakstur þess myndi síðan skapa nýjar og hærri tekjur fyrir rík­is­sjóð. Vinstri græn eru andsnúin upp­boðs­leið og vilja frekar hækka veiði­gjöld á útgerðir.

Mikil vinna framundan við fjárlagagerð

Í fyrra­dag var lagt fram fjár­laga­frum­varp við mjög óvenju­legar aðstæður og fram undan er nær for­dæma­laus fjár­laga­vinna. Hún fer fram á tímum þar sem starf­stjórnin sem lagði fram fjár­laga­frum­varpið er ekki með meiri­hluta og semja þarf um ansi mörg mál innan fjár­laga­nefndar til að frum­varpið fái braut­ar­gengi og verði sam­þykkt. Sú vinna mun krefj­ast mik­illar ein­beit­ingar og athygli, sér­stak­lega í ljósi þess að ansi margir þeirra sjö flokka sem sitja nú á Alþingi vilja gera umtals­verðar breyt­ingar á frum­varp­inu áður en það verður sam­þykkt.

Benedikt Jóhannesson skrifaði grein síðast þegar slitnaði upp úr viðræðum flokkanna fimm. Þeir ásteytingarsteinar sem tilgreindir voru í henni eru enn til staðar. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Benedikt Jóhann­es­son skrif­aði grein síð­ast þegar slitn­aði upp úr við­ræðum flokk­anna fimm. Þeir ásteyt­ing­ar­steinar sem til­greindir voru í henni eru enn til staðar. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Til við­bótar þarf að ljúka vinnu við sam­ein­ingu opin­bera og almenna líf­eyr­is­sjóðs­kerf­is­ins fyrir ára­mót, eigi hún að ganga eftir. Ritað var undir sam­komu­lag þess efnis í sept­em­ber þess efnis að sam­þætta kerfin, jafna iðgjalda­greiðslur í þau og rétt­inda­á­vinnslu gegn því að ríkið myndi borga upp ófjár­magn­aðar áfallnar skuld­bind­ingar með stöð­ug­leika­fram­lögum og vinna að því að jafna laun milli þeirra sem starfa hjá hinu opin­bera og þeirra sem starfa á almennum mark­aði. Þeirri jöfnun á að ná innan ára­tug­ar, en í dag eru laun á almennum mark­aði umtals­vert hærri. Ekki hefur hins vegar tek­ist að nást sátt um útfærslu þess­arar miklu kerf­is­breyt­ingar og hún er sem stendur í miklu upp­námi.

Nýtt þing hefur því nóg að gera næstu dag­anna.

Hvað næst?

Verði fimm flokka við­ræð­unum slitið, líkt og allt lítur út fyrir að verði ofan á, eru fáir mögu­leikar eftir í stöð­unni varð­andi rík­is­stjórn­ar­myndun. Engin þíða er að skap­ast hjá flestum flokk­unum utan Sjálf­stæð­is­flokks gagn­vart því að mynda rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokknum og þeir úti­loka enn allir að mynda rík­is­stjórn með báðum sitj­andi rík­is­stjórn­ar­flokkum. Krafa Vinstri grænna um tug millj­arða króna við­bót­ar­fjár­fest­ingu í vel­ferð­ar­málum og innviðum hefur gert það að verkum að flokk­ur­inn mun ekki ná saman við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og frjáls­lyndu miðju­flokk­anna tvo, Viðreisn og Bjarta fram­tíð.

Sá stjórn­ar­mynd­un­ar­mögu­leiki sem eftir stendur er þá þriggja flokka rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar með minnsta mögu­lega þing­meiri­hluta, 32 þing­menn. Líkt og vel þekkt er hafa þessir flokkar tekið tvær umferðir í við­ræðum nú þegar en Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur hætt við í bæði skiptin þegar for­svars­menn hinna flokk­anna töldu að nær allt væri frá­gengið. Opinbera ástæðan sem Bjarni hefur gefið er sú að hann teldi stjórn­ina ekki nægi­lega sterka með sinn litla meiri­hluta til að takast á við þau efna­hags­legu vanda­mál sem fram undan eru, og lesa má um í frétta­skýr­ingu sem birt­ist á Kjarn­anum í morgun. Innan Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar er sú skoðun hins vegar nær almenn að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ekki með neinu móti getað sætt sig við upp­boðs­leið í sjáv­ar­út­vegi og að innan flokks­ins hafi einnig verið mjög sterk and­staða við sam­starf við Viðreisn, í ljósi þess að flokk­ur­inn er meðal ann­ars stofn­aður af fólki sem flúði Sjálf­stæð­is­flokk­inn vegna Evr­ópu­mála og skorts á fram­gangi frjáls­lyndra við­horfa.

Hafi afstaða Bjarna, og flokks hans, ekki breyst og er ljóst að bolt­inn er þá kom­inn í fangið á Guðna Th. Jóhann­es­sonar, for­seta Íslands um fram­haldið. Einn mögu­leik­inn sem æ oftar er nefndur hjá lyk­il­fólki innan flokka víðs vegar frá á hinu póli­tíska lit­rófi er sá að það þurfi bara að kjósa aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið undanfarið ár