Ísland eins og rauður glampi á hitakortinu

Íslenska hag­kerfið vex og vex og kunn­ug­leg ein­kenni eru farin að sjást. Innlend eft­ir­spurn vex og krónan styrk­ist. Gæti koll­steypa verið handan við hornið?

Gengi krón­unnar hefur styrkst mikið að und­an­förnu gagn­vart helstu myntum og ef fram heldur sem horfir mun hún geta grafið hratt undan þeim efna­hags­bata sem náðst hefur fram á Íslandi á síð­ustu árum. Það kann að vera að þetta séu of stór orð, og þó. Full ástæða er til að staldra við og huga að því hver staða hag­kerf­is­ins er um þessar mundir. Erum við á réttri leið eða rangri?

Nýjustu tölur um hag­vöxt eru algjör­lega á skjön við þróun mála í hag­kerfum í marg­falt stærri ríkjum út í heimi, svo ekki sé talað um með­al­töl í heims­álfum.

Þó erfitt sé að bera aðrar þjóðir saman við Ísland, hvað þetta varðar - vegna mik­ils stærð­ar­munar - þá tala töl­urnar sínu máli. Lands­fram­leiðsla vex marg­falt hraðar en í nær öllum öðrum þró­uðum ríkjum heims­ins um þessar mundir.

Þetta vekur upp spurn­ingar um á hvaða veg­ferð íslenska hag­kerfið er. Eins og staðan er núna þá er Ísland gló­andi rauður blettur á efna­hags­legu hita­korti heims­ins.

Gríðarlegur vöxtur

Lands­fram­leiðslan á þriðja árs­fjórð­ungi þessa árs jókst að raun­gildi um 10,2 pró­sent frá sama árs­fjórð­ungi fyrra árs en það er mesta aukn­ing sem mælst hefur frá því á 4. árs­fjórð­ungi 2007. „Magnaukn­ing lands­fram­leiðsl­unnar nú skýrist að veru­legu leyti af fram­lagi utan­rík­is­við­skipta en útflutn­ingur jókst að raun­gildi um 16,4% sam­an­borið við sama tíma­bil árið 2015,“ segir í frétt á vef Hagstofu Íslands, sem birt var í gær.

Mikill vöxtur í ferða­þjón­ustu hefur birst eins og vítamín­sprauta gjald­eyris fyrir hag­kerfið. Áhrifin leyna sér ekki. Á þessu ári er gert ráð fyrir að 1,7 millj­ónir ferða­manna heim­sæki landið en á næsta ári benda spár til þess að 2,2 millj­ónir manna komi til lands­ins. Gjald­eyr­is­inn­spýt­ing í hag­kerfið verður upp á 500 millj­arða króna í sam­an­burði við 430 millj­arða á þessu ári.

Þessi mikli vöxtur hefur haft mikil áhrif á vinnu­mark­aði, en þar er nú skortur á vinnu­afli, að sögn Seðla­banka Íslands. Atvinnu­leysi mælist undir þrjú pró­sent og vegna mik­illa umsvifa í bygg­ing­ar­iðn­aði og ferða­þjón­ustu þarf fleira starfs­fólk í þá geira. Aðrir geirar atvinnu­lífs­ins hafa ekki verið að vaxta með við­líka hætti. „Í rík­ari mæli en áður er hag­vöxt­ur­inn bor­inn uppi af inn­lendri eft­ir­spurn, sem jókst um tæp­lega 10% á fyrri hluta þessa árs. Þá heldur störfum áfram að fjölga hratt, atvinnu­leysi að minnka og skýr­ari merki eru um að hraður vöxtur eft­ir­spurnar sé far­inn að reyna á þan­þol inn­lendra fram­leiðslu­þátta. Á móti vegur meiri aðflutn­ingur erlends vinnu­afls,“ segir í yfir­lýs­ingu Pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands frá 16. nóv­em­ber.

Þá hefur fast­eigna­verð hækkað hratt á und­an­förnum árum. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er hækk­unin um 50 pró­sent að raun­virði, sé miðað við fjöl­býli, en fast­lega er búist við áfram­hald­andi hækkun hús­næð­is­verðs. Hús­næð­is­skortur á tímum mik­illar eft­ir­spurnar og jákvæð áhrif lágrar verð­bólgu og launa­hækk­ana, hafa ýtt undir hækkun eigna­verðs. Und­ir­liggj­andi er styrk­ing krón­unnar þar áhrifa­mik­ill þáttur því hún hefur haldið aftur af inn­fluttri verð­bólgu og þannig minnkað verð­bólgu­þrýst­ing. Verð­bólgan mælist nú 2,1 pró­sent og meg­in­vextir Seðla­bank­ans 5,25 pró­sent, en víða heyr­ast þær raddir að ef ekki sé tími til vaxta­lækk­ana nú, þá komi sá tími aldrei. Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans telur þó að fara þurfi var­lega í þessum efnum, enda margir óvissu­þættir í íslenska hag­kerf­inu sem taka þurfi til­lit til.

Hraður bati

Staða rík­is­fjár­mála hefur kúvenst á skömmum tíma og er útlit fyrir að skuldir rík­is­sjóðs verði komnar niður fyrir 40 pró­sent af árlegri land­fram­leiðslu í lok árs 2017. Uppgjör slita­búa hinna föllnu banka breytti stöð­unni veru­lega til hins betra. Skuldir þjóð­ar­búss­ins erlendis minnk­uðu veru­lega og stöð­ug­leika­fram­lög til rík­is­ins frá slita­bú­unum, upp á um 500 millj­arða þegar allt er talið, styrktu stöðu rík­is­sjóðs mikið.

Í ofaná­lag hefur við­skipta­jöfn­uður sífellt verið að batna, einkum vegna mik­illar fjölg­unar ferða­manna. „Við­skipta­jöfn­uður mæld­ist hag­stæður um 100,4 millj­arða króna á árs­fjórð­ungnum sam­an­borið við 32,5 millj­arða króna fjórð­ung­inn á undan. Þetta er mesti afgangur af við­skipta­jöfn­uði frá upp­hafi mæl­inga og í fyrsta sinn sem hann fer yfir 100 millj­arða króna á fjórð­ungi,“ segir í til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands 2. des­em­ber.

Ofhitnun?

En þessi stór­bætta staða hagtaln­anna - svona fljótt á litið - hefur líka á sér dekkri hliðar. Eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins hefur hag­kerfið verið end­ur­reist í nýjum veru­leika en var áður og þar er aug­ljós­ast að horfa til gengis krón­unnar. Fyrir rúm­lega ári síðan kost­aði Banda­ríkja­dal­ur­inn 136 krónur en í dag er hann kom­inn niður í 110 krónur. Í des­em­ber 2007 kost­aði dal­ur­inn 60 krónur en fyrir hrunið var það eitt helsta aðals­merki íslenska hag­kerf­is­ins, hversu gengi krón­unnar var sterkt. Háir vextir og almenn þensla - ekki síst vegna fífl­djarfra lán­veit­inga bank­anna til fólks og fyr­ir­tækja - leiddu þá til alvar­legrar stöðu, þó ástæða hruns fjár­mála­kerf­is­ins hafi verið marg­slungin eins og þekkt er.

Veik króna hefur skipt mál

En mun­ur­inn þá og nú snýst ekki síst um ólíka stöðu krón­unnar og allt annað umhverfi í fjár­mála­kerf­inu. Hag­vöxtur hefur verið útflutn­ings­drif­inn á síð­ustu árum, þó vöru­skipta­jöfn­uður sé við­var­andi nei­kvæður, og þar hefur veik­ari staða krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum heims­ins skipt miklu máli. Sam­keppn­is­hæfni útflutn­ings­fyr­ir­tækja - í mörgum geirum atvinnu­lífs­ins - hefur í reynd byggt á þess­ari stöðu. Má ekki síst nefna nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki af ýmsu í tagi í því sam­hengi.

Einn við­mæl­andi Kjarnans, sem starfar í tækni­geir­anum, orð­aði það þannig, að ef Banda­ríkja­dalur færi að kosta undir 110 krónum þá færi sam­keppn­is­for­skot fyr­ir­tækj­anna fljótt. Með öðrum orðum; þá mun áfram­hald­andi styrk­ing grafa undan sam­keppn­is­hæfni útflutn­ings­greina smám saman. Nú þegar hafa heyrst áhyggju­raddir vegna þessa, en styrk­ing krón­unnar gagn­vart evru er um 16 pró­sent á síð­asta ári og gagn­vart Banda­ríkja­dal hefur hún verið rúm­lega 14 pró­sent. Mest hefur styrk­ingin verið gagn­vart pund­inu eða tæp­lega 30 pró­sent en eftir Brexit kosn­ing­una í júní hefur pundið veikst veru­lega gagn­vart helstu við­skipta­myntum heims­ins. Pundið kost­aði 206 krónur fyrir rúm­lega ári en kostar nú tæp­lega 140 krónur.

Helsti markaður fyrir þorsk gefur minna

Þetta eru slæm tíð­indi fyrir íslensk útflutn­ings­fyr­ir­tæki ekki síst í sjáv­ar­út­vegi. Um 12 pró­sent af útflutn­ingi Íslands í fyrra fór til Bret­lands og um 19 pró­sent ferða­manna komu þaðan. Þetta er því mik­il­vægt við­skipta­svæði Íslands. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, gerði styrk­ingu krón­unnar gagn­vart pund­inu að umtals­efni þegar upp­gjör félags­ins vegna árs­ins 2015 var kynnt. „Fyr­ir­huguð útganga Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu mun hins vegar hafa nei­kvæð áhrif á afkomu okkar, að minnsta kosti til skamms tíma á meðan pundið er veikt. Stór hluti þorskaf­urða félags­ins er seldur í Bret­landi,“ sagði Þor­steinn Már.

Hvað ber framtíðin í skauti sér?

Líklegt er að gengi krón­unnar haldi áfram að styrkj­ast á næstu miss­erum, sé mið tekið af því að gjald­eyr­is­inn­streymi er stöðugt veru­lega mikið vegna erlendra ferða­manna. Það er þó einkum tvennt sem getur dregið úr henni. Annars vegar auknar fjár­fest­ingar erlendis, ekki síst íslenskra líf­eyr­is­sjóða, og síðan inn­grip Seðla­banka Íslands á gjald­eyr­is­mark­aði. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga nú tæp­lega 3.300 millj­arða eignir, og af þeim er rúm­lega 20 pró­sent erlendis. Hugs­an­legt er að þeir fjár­festi meira erlendis nú þegar er verið að losa um höft og það sama má segja um íslenska fjár­festa almennt. Til þessa hefur þó lítið sést til þess­arar þró­unar.

En eins og oft áður er vandi að spá um hvað gæti gerst á næstu miss­erum og árum, hvort sem það er áfram­hald­andi upp­sveifla eða jafn­vel nið­ur­sveifla. Flestir grein­endur spá áfram­hald­andi miklum hag­vexti en nefna þó þann fyr­ir­vara að mikil styrk­ing krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum geti grafið undan útflutn­ings­hlið­inni. Og eins og að framan er rakið, þá gæti það haft alvar­legar afleið­ingar fyrir hag­kerfið. Þá hæf­ist enn ein rús­sí­ban­areiðin sem íslenska hag­kerfið hefur gengið í gegnum á stuttu ævi­skeiði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár