Eitt lífeyriskerfi fyrir alla og laun jöfnuð innan áratugar

Líf­eyr­is­rétt­indi launa­fólks verða þau sömu í fram­tíð­inni, sama hvort það vinnur hjá rík­inu eða á almennum mark­aði. Hið opin­bera greiðir 120 millj­arða og ætlar að jafna laun innan ára­tugar. Á móti er líf­eyr­is­aldur hækk­aður í 67 ár.

Laun opinberra starfsmanna hafa verið lægri en laun þeirra sem starfa á almennum markaði, en lífeyrisréttindi þeirra betri. Sömuleiðis hefur menntun þeirra sem starfa hjá hinu opinbera ekki verið metin til launa eins og þykja skyldi. Á þessu verður tekið.
Laun opin­berra starfs­manna hafa verið lægri en laun þeirra sem starfa á almennum mark­aði, en líf­eyr­is­rétt­indi þeirra betri. Sömu­leiðis hefur menntun þeirra sem starfa hjá hinu opin­bera ekki verið metin til launa eins og þykja skyldi. Á þessu verður tekið. Mynd: Aðsend

Líf­eyr­i­s­töku­aldur þeirra sem greiða í opin­bera líf­eyr­is­sjóði verður hækk­aður úr 65 ára í 67 ára og rík­is­á­byrgð á opin­berum líf­eyr­is­sjóðum verður afnumin. Iðgjöld verða áfram 15,5 pró­sent líkt og þau verða hækkuð í í almenna kerf­inu út árið 2018. Á móti mun íslenska ríkið og sveit­ar­fé­lög borga niður þann halla sem er á A-deild Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR) og A-deildar Brúar (líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna sveit­ar­fé­laga), en sam­tals nema áfallnar skuld­bind­ingar umfram eignir þeirra um 120 millj­örðum króna. Þetta mun hið opin­bera geta gert vegna stöð­ug­leika­fram­laga sem greidd­ust inn í rík­is­sjóð í ár og munu skila honum í yfir 300 millj­arða króna afgangi þrátt fyrir ofan­greinda greiðslu. Alls greiða um 35 þús­und manns í þessa tvo sjóði.

Samhliða verður unnið að því að jafna laun milli þeirra sem starfa hjá hinu opin­bera og þeirra sem starfa á almennum mark­aði. Þeirri jöfnun á að ná innan ára­tugar, en í dag eru laun á almennum mark­aði umtals­vert hærri.

Þetta er nið­ur­staða sam­komu­lags sem Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynntu í dag. Frumvarp um efni sam­komu­lags­ins hefur þegar verið sam­þykkt í rík­is­stjórn og verður lagt fyrir Alþingi í vik­unni. Verði frum­varpið að lögum verður mark­mið sem stefnt hefur verið að árum, ef ekki ára­tugum saman, að veru­leika. Að eitt sam­ræmt líf­eyr­is­kerfi verði fyrir allt launa­fólk á Íslandi óháð því hvort það vinni fyrir hið opin­bera eða á hinum almenna mark­aði og að launa­kjör milli mark­að­anna tveggja verði jöfnuð.

Sjóðir ríkisins ekki lengur tómir

Á Íslandi hefur lengst af verið tvö­falt líf­eyr­is­sjóða­kerfi, eitt fyrir opin­bera starfs­menn og hitt fyrir alla hina. Í opin­bera kerf­inu fór líf­eyr­is­á­vinnslan ekki eftir gengi sjóð­anna heldur var hún tryggð. Ef opin­beru líf­eyr­is­sjóð­irnir áttu ekki fyrir því sjóð­fé­lagar höfðu unnið sér inn í rétt­indi þá bar launa­greið­and­anum, hinum opin­bera, ein­fald­lega að hækka iðgjalda­greiðslur sínar til að mæta mun­inum. Í almenna kerf­inu eru rétt­indi hins vegar skert til að mæta halla á sjóði og aukin þegar afkoma þeirra er góð. Auk þess gátu opin­berir starfs­menn farið fyrr á eft­ir­laun, við 65 ára aldur, en þeir sem störf­uðu hjá einka­fyr­ir­tækjum, sem geta ekki hætt að vinna fyrir en þeir verða 67 ára.

Þessi staða hefur gert það að verkum að opin­berir starfs­menn hafa unnið sér inn betri líf­eyr­is­rétt­indi en á móti hafa laun þeirra að jafn­aði verið lægri en tíðkast á almennum vinnu­mark­aði. Og ríkið hefur skuldað tugi millj­arða króna vegna rétt­inda sem sjóð­fé­lagar A-deilda opin­berra sjóða hafa unnið sér inn, en eru ekki fjár­magn­aðar.

Árum saman hefur verið reynt að vinna að lausn á þess­ari stöðu og sam­ræma opin­bera og almenna líf­eyr­is­sjóða­kerfið. Helstu ásteyt­ing­ar­efnin hafa verið þau að stétt­ar­fé­lög opin­berra starfs­manna hafa vilja fá hærri laun gegn því að gefa eftir betri líf­eyri og að tryggt væri að áunnin líf­eyr­is­rétt­indi yrðu ekki skert með neinum hætti.

Hið opin­bera, ríkið og sveit­ar­fé­lög, hafa átt í erf­ið­leikum með að mæta þessum kröfum síð­ustu ár, enda hafa sjóðir þeirra að mestu verið tómir. En það eru þeir ekki lengur.

Ríkið greiðir 120 milljarða króna til að ná samkomulagi

Stóru breyt­ing­arnar á opin­bera kerf­inu sem gerðar vera í kjöl­far sam­komu­lags­ins eru þær að sjóð­söfnun opin­beru sjóð­anna mun byggja á föstum iðgjöldum og ávinnsla þeirra verður ald­urstengd. Það þýðir að rétt­indi verða skert eða aukin eftir afkomu sjóð­anna og því yngri sem fólk er þegar það byrjar að greiða, því verð­mæt­ari verða rétt­indi þeirra.

Samhliða verður ábyrgð launa­greið­enda, ríkis og sveit­ar­fé­laga, á sjóð­unum afnumin og líf­eyr­i­s­töku­ald­ur­inn hækk­aður í 67 ár. Núver­andi sjóð­fé­lagar mega hins vegar fara á eft­ir­laun við 65 ára aldur, kjósi þeir svo.

Á móti ætlar ríkið, sem á nú fé til að taka á þessu lang­vinna vanda­máli, að greiða 120 millj­arða króna í sér­staka líf­eyr­is­auka­sjóði og 10,8 millj­arða króna í var­úð­ar­sjóði til stuðn­ings.

Ríkið leggur LSR til 91,3 millj­arða króna Af þess­ari upp­hæð eru 57 millj­arðar króna til að mæta halla á A-deild LSR, tíu millj­arðar króna vegna breyttra for­sendna um dán­ar­líkur (Íslend­ingar eru ein­fald­lega að lifa mun lengur en áður var búist við) og 24,4 millj­arðar króna vegna hækk­unar á líf­eyr­i­s­töku­aldri. Sveit­ar­fé­lögin leggja til 28 millj­arða króna í líf­eyr­is­auka­sjóð A- deildar Brúar. Samkvæmt samn­ingi ríkis og sveit­ar­fé­laga felst í fram­lagi rík­is­sjóðs yfir­taka á hlut sveit­ar­fé­lag­anna í skuld­bind­ingum þeirra í A–deild LSR sem nemur 20,1 millj­arða króna. Auk þess leggja ríki og sveit­ar­fé­lög til 10,8 millj­arða króna í var­úð­ar­sjóði til stuðn­ings. Ef sjóð­irnir eru ósnertir að 20 árum liðnum ganga þeir aftur til opin­berra launa­greið­enda að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum.

Ríkið greiðir sinn hluta með þrennu móti. Það fram­selur eignir til LSR, það lætur af hendi reiðufé og það eykur beinar skuldir sínar með útgáfu rík­is­verð­bréfa. Fjár­mögnun sveit­ar­fé­laga felst í skulda­yf­ir­lýs­ingu til langs tíma.

Laun jöfnuð innan áratugar

Sam­komu­lagið sem kynnt var í morgun er tíma­móta­sam­komu­lag sem skiptir miklu fyrir t.d. upp­bygg­ingu nýs vinnu­mark­aðslík­ans sem not­ast á við kjara­samn­inga­gerð á Íslandi. Með því að sam­ræma líf­eyr­is­kerfin er loks­ins hægt að nálg­ast kjara­samn­inga heild­rænt og vinna skipu­lega að því að koma í veg fyrir að höfr­unga­hlaup launa­hækk­anna grafi alltaf undan helsta mark­miði þeirra; að bæta kjör íslenskra launa­manna.

Nýtt samn­ings­líkan, sem kynnt var fyrir um ári og byggði á vinnu hins svo­kall­aða SALEK-hóps gerði ráð fyrir grund­vall­ar­breyt­ingum á þeim kerfum sem voru til staðar á íslenskum vinnu­mark­aði, þ.e. að tryggja op­in­berum starfs­mönnum aukna hlut­deild í launa­skriði á almenna vinnu­mark­aðn­um og að jafna líf­eyr­is­rétt­indi. Sam­komu­lagið sem und­ir­ritað var í dag á að ná báðum þessum mark­miðum.

Með því verður líf­eyr­is­kerfi lands­manna full­fjár­magnað og sjálf­bært. Allt launa­fólk mun héðan í frá njóta sam­bæri­legra líf­eyr­is­rétt­inda óháð því hvort það vinnur hjá hinu opin­bera á einka­mark­aði. Í sam­komu­lag­inu var tryggt að rétt­indi núver­andi félaga í A-deildum opin­beru sjóð­anna verði jafn verð­mæt og þau voru fyrir. Þetta er annað lyk­il­at­riði sam­komu­lags­ins.

Hitt lyk­il­at­riðið er að sam­kvæmt sam­komu­lag­inu verður stefnt að því að launa­kjör fólks á opin­berum og almennum vinnu­mark­aði verði jöfnuð. Þetta mark­mið á að nást innan ára­tugar. Settur verður á fót sam­ráðs­hópur opin­berra launa­greið­enda og heild­ar­sam­taka opin­berra starfs­manna til að ná mark­mið­inu og á það að nást með útfærslu í kjara­samn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár