Jeb Bush í framboðsgír og birtir alla tölvupósta

Jeb Bush, fyrr­ver­andi rík­is­stjóri í Flórída, hefur birt öll tölvu­póst­sam­skipti sem hann átti þegar hann var rík­is­stjóri á nýrri heima­síðu, jebbus­hemails.com. Á heima­síð­unni er líka að finna fyrsta kafl­ann í bók sem hann hyggst gefa út á inter­net­inu, sem byggir á tölvu­póst­sam­skipt­unum.

„Í anda gagn­sæis birti ég tölvu­póst­sam­skipti frá því að ég var rík­is­stjóri hér. Sumir eru fyndnir; sumir eru alvar­legir; sumir voru skrif­aðir í reiði. En allir eru þeir hér svo þú getir lesið þá og gert upp hug þinn,“ segir Bush á heima­síð­unni.

Fastlega er búist við því að Jeb Bush sæk­ist eftir útnefn­ingu Repúblik­ana sem for­seta­fram­bjóð­andi flokks­ins í næstu for­seta­kosn­ingum. Útgáfa bók­ar­innar er sögð liður í þeirri veg­ferð. Washington Post orðar það sem svo að um leið og birt­ing póst­anna sé lof­orð um gagn­sæi nú þegar hann íhugi að bjóða sig fram til for­seta sé hún líka við­vörun til mögu­legra and­stæð­inga hans. Hann sé að setja for­dæmi.

Það vekur einnig athygli að vef­síðan og fyrsti kafli bók­ar­innar hafa einnig verið þýdd á spænsku.

Bush var þekktur fyrir að vera alltaf með Blackberry sím­ann sinn við hönd­ina. Hann er sagður hafa eytt allt að 30 klukku­tímum á viku í að lesa og senda tölvu­pósta. Í tölvu­póst­sam­skipt­unum eru fjöl­mörg dæmi um að hann svari sjálfur alls konar tölvu­póstum, allt frá starfs­um­sóknum til reiði­lestra vegna verka hans.

Þótt póst­arnir hafi verið gerðir opin­berir í dag fékk Washington Post þá í des­em­ber síð­ast­liðnum með vísan í upp­lýs­inga­lög. Póst­arnir eru því opin­ber gögn og hafa gagn­rýnendur bent á það að Bush hafi alla tíð verið með­vit­aður um að ein­hvern dag­inn yrðu þessi gögn aðgengi­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár