Ólafur K. Ólafsson rannsakar kærur gegn Öldu Hrönn

Ólafur K. Ólafsson sýslu­maður á Vest­ur­landi mun rann­saka tvær kærur gegn Öldu Hrönn Jóhann­es­dóttur, aðal­lög­fræð­ingi hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hann hefur starfað með yfir­manni Öldu, lög­reglu­stjór­anum Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur skipað Ólaf K. Ólafsson, sýslu­mann á Vest­ur­landi, til að fara með rann­sókn á tveimur kærum gegn Öldu Hrönn Jóhann­es­dóttur, aðal­lög­fræð­ingi á skrif­stofu lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þetta stað­festir inn­an­rík­is­ráðu­neytið við Kjarnann.

Tveir menn, sem voru til rann­sóknar í LÖKE-mál­inu svo­kall­aða, kærðu Öldu Hrönn fyrir rangar sak­ar­giftir og meint brot í starfi. Annar mann­anna, Gunnar Scheving Thor­steins­son lög­reglu­maður, var hand­tek­inn og ákærður fyrir að fletta upp nöfnum 45 kvenna í mála­skrá lög­reglu í heim­ild­ar­leysi og deila per­sónu­upp­lýs­ingum þaðan með vinum sínum. Stærsti ákæru­lið­ur­inn var síðar felldur niður, en Gunnar var í Hæsta­rétti dæmdur fyrir að deila upp­lýs­ingum með þriðja aðila, en honum var ekki gerð refs­ing. Það voru upp­lýs­ingar um 13 ára dreng sem hann hafði haft afskipti af í starfi.

Bæði emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og rík­is­sak­sókn­ara lýstu sig van­hæf til með­ferðar kær­anna á hendur Öldu. Ráðherra þurfti því að setja annan lög­hæfan mann til að fara með málið, en það varð ljóst í apríl síð­ast­liðnum. Nú hefur verið ákveðið að sá maður verði Ólafur K. Ólafsson, sýslu­maður á Vest­ur­landi.

Ólafur er sem fyrr segir sýslu­maður á Vest­ur­landi. Hann og yfir­maður og náinn sam­starfs­maður Öldu Hrannar, Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þekkj­ast og hafa unnið saman. Þau sátu til að mynda saman í starfs­hópi sem end­ur­skoð­aði lög­reglu­nám í land­inu og þau sátu í mörg ár saman í stjórn Lög­reglu­stjóra­fé­lags Íslands. Ólafur var for­veri Sigríðar Bjarkar í lög­reglu­stjóra­starfi á Suð­ur­nesjum, en hann var settur í það emb­ætti tíma­bundið árið 2008 áður en Sigríður Björk var ráðin þangað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár