Mynd: Úr safni.

Af hverju getur Bjørn Tore Kvarme ekki enn verið að spila?

Síðar í dag fer fram sögu­frægasti nágranna­slagur enskrar knatt­spyrnu. Þar verður enginn Sam Allardyce, Danny Cadamarteri, Sander Westerweld né Neil Ruddock. En voninni um samkeppnis­hæfan leik, sem hefur verið fjar­verandi árum saman, hefur verið skilað.

30. nóvember 2017 var sérstakur dagur fyrir fylgis­menn Everton. Tímabilið fram að þeim degi hafði verið afleitt. Liðið hafði keypt leikmenn fyrir hærri fjárhæð en nokkru sinni áður um sumarið en þeir pössuðu jafn vel saman og bjúga í heilsushake. Liðið var allt í einu drekkhlaðið af lötum og hægum „tíum“, miðvarðar­parið leit út fyrir að hafa aldrei spilað fótbolta og enginn alvöru sóknar­maður var í hópnum. Þá var Everton án vinstri bakvarðar sem gerði það að verkum að greyið Cuco Martina, sem er ekki nógu góður til að spila með Skallagrími, var látinn spila úr stöðu í 21 leik alls yfir tímabilið í deild sem er ein þeirra bestu í heimi. Niður­staðan var vandræðaleg.

Ekki bætti úr skák að heimkoma dreng-undursins Wayne Rooney hafði súrnað mjög fljótt. Hann hafði elst mun hraðar sem fótbolta­maður en vega­bréfið sagði til um og átti augljós­lega lítið erindi í alvöru fótboltalið sem vildi keppa í alvöru deild. Þótt Volvo-Wayne hefði verið með skástu mönnum liðsins fyrstu mánuðina þá þýddi það ekki að hann hafi verið góður. Það var enginn góður. Og Wayne hafði einstakt lag á að hægja á leiknum svo hann hentaði hans hraða. Sem minnti á hæga endur­sýningu.

Martröð hefst

Everton var búið að reka Hollendinginn Ronald Koeman og þennan síðasta dag nóvember­mánaðar fyrir næstum nákvæmlega einu ári síðan, stýrði David Unsworth, elskulega, brosmilda og hund­trygga mann­tröllið sem myndi taka kúlu fyrir klúbbinn, sínum síðasta leik sem tíma­bundinn knattspyrnu­stjóri. Það hafði spurst út fyrir leikinn að moldríki íranski eigandinn Farhad Moshiri hefði ákveðið að láta verstu matröð stuðnings­manna verða að veruleika, og ráða Sam Allardyce sem næsta stjóra. Martröðin holdi klædd hafði tilkynnt að hann yrði í stúkunni þennan dag þegar Everton spilaði við West Ham, og átti síðar eftir að eigna hræðilegri nærveru sinni það að liðið hefði spilað sóma­samlega og unnið.

Í Sam Allardyce er óþarfi að eyða miklu fleiri orðum. Nokkurra mánaða vera hans sem knattspyrnu­stjóri Everton orsakaði mesta niður­lægingar­tímabil í sögu liðsins. Ekki bara vegna þess að liðið var lélegt og spilaði nánast sársauka­fullan leiðinlegan fótbolta heldur vegna þess að hann er um margt andstyggilegur maður sem segir fyrir­litlega hluti, er án siðferðis­þröskulds, er ófær um að líta í eigin barm og heldur að allir Íslendingar heiti „Gudnee“. Fyrir áhugasama má lesa um það hér að neðan.

Everton voru frábærir í þessum leik og unnu fjögur núll. Wayne Rooney skoraði fyrstu og einu þrennu sína fyrir klúbbinn, þar á meðal gjör­samlega sturlað mark frá rúmlega miðju. Það sakaði ekki að David Moyes stýrði Hömrunum á þessum tíma. Maðurinn sem yfirgaf Everton til að sigra heiminn en hefur síðan ekki sigrað neitt.

Von kviknaði í brjósti allra þjáningar­bræðra- og systra sem þjást af Everton hlaðinni sjálfs­eyðingar­hvöt að þetta myndi duga til að láta Moshiri skipta um skoðun. Að hann myndi sleppa því að ráða Stóra Sam og leyfa Stóra Dave bara að klára tímabilið. Sigurinn hafði nefnilega fært Everton í þægilega fjarlægð frá botninum og þótt liðið væri lélegt, þá voru bersýni­lega nægilega mörg verri lið í deildinni til að fyrir­liggjandi var að fall myndi ekki verða niður­staðan í lok tímabils. Og þá væri hægt að ýta á ctrl-alt-reboot. Leiðrétta mistök fyrra sumars og byrja upp á nýtt.

En af því varð ekki. Þess í stað var ýtt á play á martröðinni. Og voninni tíma­bundið rænt.

Af hverju getur Steve Staunton ekki alltaf verið í marki?

Ellefu dögum síðar var fyrri Merseyside-derby leikur tíma­bilsins á Anfield, þar sem Norðmenn fara til að horfa á fótbolta. Það skal viðurkennt aftur sem áður, með tölu­verðri skömm, að þegar maður heldur með liði sem vinnur aldrei neitt, og rænir mann oftast geðheilsunni við áhorf, þá þarf maður að leita að gleðinni á skrýtnum stöðum. Efst á þeim lista að vinna Liverpool. Það er það eina sem beðið er um. En það gerðist síðast 17. október 2010, þegar besti litli Spánverji sem við þekkjum skoraði síðara markið eftir að Tim Cahill boxaði horn­fánann í kjölfar þess að hafa skorað það fyrra.

Á Anfield gerðist það síðast 27. september 1999, í leik þar sem Kevin Campell skoraði og Sander Westerweld og Franny Jeffers voru reknir út af fyrir hin frægu „handtösku­slagsmál“, sem létu hvorugan líta neitt sérstak­lega vel út og skiluðu því að einhvers konar vinstri­bakvörðurinn Steve Staunton endaði í markinu hjá Liverpool. Það hjálpaði líka Everton mjög að á þessum tíma þótti bara eðlilegt að menn eins og Titi Camara og Erik Meijer spiluðu leiki fyrir Liverpool.

Þótt Liverpool hafi tekist að gefa Everton víti 13 mínútum fyrir leikslok þennan desemberdag í fyrra, og þar með jafntefli, var leikurinn afleitur. Everton var með boltann í 21 prósent hans, en Liverpool í 79 prósent leik­tímans. Everton átti þrjár mark­tilraunir. Liverpool 23. Everton byrjaði með bæði Ashley Williams og Cuco Martina inn á. Liverpool byrjaði með Mo Salah og Philippe Coutinho spilaði nær allan leikinn.

Sú fegurð

Nú er allt breytt. Stóri Sam var blessunar­lega rekinn strax eftir að síðasta tímabili lauk. Sama var gert við Steve Walsh, vanhæfan yfirmann knattspyrnu­mála, sem bar ábyrgð á tilviljunar­kenndu kaupum á heilu kippunum af lélegum fótbolta­mönnum í innkaupa­gluggum síðustu ára. Það gerðist í kjölfar stans­lausra mótmæla stuðnings­manna, kannana sem sýndu að þeir þoldu ekki Allardyce og ótrúlegrar orðasúpu af rugli og rang­hugmyndum sem hann bar á borð eftir hvern einasta leik. Eini stöðug­leikinn sem var til staðar var sá að Sam Allardyce virtist aldrei vera að horfa á sama leik og aðrir.

Í stað Allardyce og Walsh komu Marco Silva og Marcel Brands. Í stað ójafnvægis í hópnum komu leikmenn sem hentuðu í þær stöður sem þurfti að fylla í. Í stað niður­lægingar og lélegasta fótboltans kom von og skýr hugmynd um hvernig ætti að spila: hratt og hátt.

Neville Southall er ekki bara fallegur. Hann er líka sá leikmaður sem hefur spilað flesta Merseyside-derby leiki frá upphafi, eða 41 alls.
Neville Southall er ekki bara fal­legur. Hann er líka sá leik­maður sem hefur spilað flesta Merseyside-derby leiki frá upp­hafi, eða 41 alls.

Nú er gaman að horfa á Everton. Bestu leik­mennirnir sem voru keyptir í sumar komu flest allir frá Barcelona eða hafa spilað lands­leiki fyrir Brasilíu. Brasilíu­menn sem heita ekki Jo eða Anderson Silva heldur Richarlison og Bernard. Brasilíu­menn sem halda bolta, sækja hratt og geta skotið í skeytin. Þess utan hefur Silva gert það sem góðir stjórar gera, hann hefur gert leikmenn sem voru oftast hræðilegir á síðasta tímabili frábæra. Skýrustu dæmin um það eru Michael Keane og Gylfi Sigurðsson, sem voru athlægi fyrir ári síðan en hafa verið á meðal bestu leikmanna deildarinnar í ár.

Umsnúningurinn hold­gerist síðan í Andre Gomes, fallegasta leikmanni sem leikið hefur með Everton frá því að Neville Southall lagði hanskana á hilluna. En Andre er ekki bara fallegur, hann er líklega besti leikmaður sem hefur leikið með Everton í áratugi. Tæknin, leik­skilningurinn, sendinga­getan og öll hin gæðin eru svo bersýnileg. Það er ótrúlegt að horfa á knattspyrnu­mann ná slíkum tökum á leik að leikurinn fer fram í þeim takti sem hann ákveður. Hverfist um þennan eina leikmann. Andre Gomes er þannig leikmaður.

Hver man ekki eftir Cadamarteri

Síðar í dag, þegar ár og tveir dagar eru liðnir frá því að fótbolta­lega myrkrið skall á, spilar Everton við Liverpool á Anfield.

Það er, í alvöru, sú von til staðar á meðal stuðnings­manna Everton að þeir geti raun­verulega unnið þar í fyrsta sinn í 19 ár. Eins og fyrir­liðinn Seamus Coleman sagði í vikunni þá er auðvelt fyrir liðið að segja alla réttu hlutina í viðtölum fyrir þessa leiki, líkt og leikmenn hafa gert síðustu áratugi, en vera svo ekki mættir til að setja peninganna þar sem munnurinn er þegar á hólminn er komið. „Við þurfum að mæta á sunnudag og láta verkin tala á vellinum. Þetta er risa­leikur fyrir borgina okkar og við erum búnir að vera í tapliðinu of oft.“

Vonin flytur fjöll. En hún er líka hættuleg. Og stundum er betra að stilla væntingum í hóf. Það er betra að koma á óvart en að valda vonbrigðum. Það þekkjum við fylgis­menn lélegra fótbolta­liða mjög vel af biturri reynslu. Þótt liðið sé loksins, í fyrsta sinn síðan að það varð fjárhags­lega samkeppnis­hæft, með rétta knattspyrnu­stjórann og réttu blönduna af gæða­leikmönnum, þá er auðvitað mjög skammt liðið á það jafnvægi.

Þar af leiðandi er, því miður, líklegasta leiðin að sigri sú að einhver leikmaður Liverpool endur­leiki greiða­starfsemi Norð­mannsins Bjørn Tore Kvarme frá því fyrir 21 ári síðan, þegar hann gaf Danny Cadamarteri annað markið í epískum 2-0 sigri. Eða að Neil Ruddock taki fram skóna og skori aftur epískt og þakklátt sjálfs­mark.

Líkurnar á því að það gerist eru þó svipaðar og ferill Cadamarteri eftir það mark, eða nýlegar yfir­lýsingar Ruddock í fjöl­miðlum, frekar daprar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár