Mynd: EPA

Maður sem drekkur hvítvín úr bjórglasi rænir voninni

Sam Allardyce hefur stýrt Everton í fimm langa mánuði. Á þeim tíma hefur honum tekist það sem engum öðrum vondum knattspyrnu­stjóra hefur tekist á rúmum 30 árum, að fjarlægja það eina sem var eftir fyrir sárþjáða stuðnings­menn, vonina.

Að horfa á fótbolta er ekki alltaf góð skemmtun. Oftar en ekki er það kvöð sem skilar manni fáu öðru en tveimur töpuðum klukku­tímum og tíma­bundnu vondu skapi. Þ.e. ef maður horfir einungis á fótbolta sem spilaður er annað hvort af Þrótti eða Everton.

Af einhverjum ástæðum, sem ekkert rökrænt útskýrir, virðist nær ómögulegt að rjúfa þennan vítahring. Og fyrst það er ekki hægt að rjúfa hann þá er alveg eins hægt að kryfja hann.

Ég hef áður skrifað um sérkennilegt hlut­skipti þeirra sem fylgja Everton að málum. Það er einmanaleg eyðimerkur­ganga og í ljósi þess að hefð­bundinn árangur virðist ómögulegur þá verður maður góður í að búa til sigra úr hversdags­legum hlutum og blekkja sig í að halda að þeir skipti einhverju máli.

Hitt sem stuðnings­maður lélegs knattspyrnu­liðs þarf að hafa er von. Hún þarf ekki einu sinni að vera rökrétt en án hennar er fylgni við Everton ansi eymdarlegt hlut­skipti. Síðustu mánuði hef ég, í fyrsta skipti í rúma þrjá áratugi, ekki haft þessa von. Ástæðan fyrir því heitir Sam Allardyce.

Persónuleiki fram yfir hæfileika

Fyrst þarf kannski að útskýra vonina. Hún er er nefnilega breytileg og byggir á mismun­andi forsendum eftir tímabilum. Á níunda áratugnum var þetta hefð­bundin von um að Everton ynni titla, enda var liðið þá eitt það besta í Englandi og Evrópu. Á tíunda áratugnum var enn svo stutt síðan að liðið var á toppnum að vonin snérist um að leiðin aftur þangað væri rétt handan við hornið.

Þegar komið var inn í hinn rúma áratug David Moyes, sem stóð frá 2002 til 2013, þá var vonin orðin önnur. Sjálfs­mynd liðsins var sú að það væri lítil­magni. Að það væri á leið í byssu­bardaga með vasahníf en að sá sem héldi á hnífnum væri svo stór persónu­leiki að það skipti ekki máli. Maður trúði, vonaði, alltaf að liðið gæti gert hið ómögulega. Og oftar en ekki gerðist það.

Á meðan að Moyes var knattspyrnu­stjóri Everton þá var nettó eyðsla félagsins í leikmenn á ári 800 þúsund pund. Til að setja þá tölu í samhengi þá tekur það Alexis Sanchez, leikmann Manchester United og launa­hæsta leikmann deildarinnar, um ellefu daga að þéna þá upphæð.

Hann keypti leikmenn á borð við Seamus Coleman (60 þúsund pund), Phil Neville (3,5 milljónir punda), Tim Cahill (1,5 milljónir punda), Nigel Martyn (37 ára þegar hann var keyptur), Leighton Baines (tæpar sex milljónir punda), Sylvain Distin (fallegasti maður á jarðríki), Steven Pienaar (tvær milljónir punda), Kevin „Zinedine“ Kilbane (undir einni milljón pund) og besta litla Spánverja sem við vitum um, Mikel Arteta (undir tveimur milljónum punda). Þessum mönnum klístraði hann saman með sköllóttu vitfirringunum Gravesen og Carsley, haug af vafasömum senterum (nú er tímabært að rifja upp Kanada­manninn Tomasz Radzinski, hinn þunga James Beattie, mennska traktorinn Marcus Bent, hinn aldna fyrir aldur fram Yakubu og auðvitað braslíska undrið Jo) og gullmolum sem Moyes pikkaði upp fyrir slikk eða ekkert en voru síðan seldir á háar upphæðir á borð við Joleon Lescott, John Stones, Jack Rodwell og Wayne „Volvo“ Rooney.

Liðin hjá Moyes skorti oft hæfileika. Það ætla varla margir að halda því fram að t.d. Tim Cahill eða Phil Neville séu tæknilega á tiki taka-getustigi. Þeir spiluðu meira eins og vonda liðið í fimmtudags­boltanum mínum í Sport­húsinu en atvinnu­menn í knatt­spyrnu.

En þetta voru, og eru, nær allt risa­stórir persónu­leikar. Áhuga­verðir einstaklingar sem svitnuðu ástríðu, gáfu alltaf allt, öskruðu ósérhlífni og voru óhræddir að láta skína í skoðanir sínar. Vegna þeirra var alltaf von til staðar. Von um að í upphafi leiks þá trúði maður alltaf að liðið myndi vinna. Það gerðist auðvitað ekki nærri því alltaf, en áhorfið varð betra. Upplifunin jákvæðari. Og tilfinningin fyrir þessari sérkenni­legu tíma­eyðslu sem knattspyrnu­áhorf er réttlætanlegri.

Peningum eytt til að verða verri

Síðan að Moyes fór hafa þrír fastráðnir stjórar stýrt Everton. Roberto Martinez kom fyrstur, og varð fljótt mjög óþolandi vegna þess að hann reyndi alltaf að segja skoðun í að minnsta kosti níu þúsund orðum og notaði efsta stig lýsingar­orða um nánast allt sem gerðist. Þrátt fyrir hörmuleg töp þá var frammistaðan iðulega sögð „phenomenal“, Gareth Barry var allt í einu orðinn einn af bestu leik­mönnum Englands í sögunni að hans mati og Tom Cleverley stóð honum víst ekki langt að baki. Eftir stórkost­lega byrjun þá fjaraði hratt undan Phenonemal-Bobby samhliða því sem að varnar­skipulags­töfrar Moyes týndust.

Þegar Martinez var loks rekinn tók andstæðan, Ronald Koeman, við. Hann var fáorður og lítið fyrir að sykurhúða skoðanir sínar á frammistöðu leikmanna þegar við átti. Þessu fylgdi ákveðinn fersk­leiki til að byrja með en fór að verða pirrandi þegar leið á.

Koeman var ráðinn af íranska milljarðamæringnum Fahad Moshiri, sem keypti tæplega helmings­hlut í Everton í janúar 2016 og hefur síðan þá dælt peningum inn í félagið. Á yfir­standandi tímabili hefur Everton keypt leikmenn fyrir 202 milljónir punda, sem þýðir að einungis fimm lið í Evrópu hafa eytt meiri pening í síðustu tveimur félaga­skipta­gluggum.

Kunnugleg sjón á yfirstandandi tímabili, Everton að fá á sig mark í tapleik.
Kunn­ug­leg sjón á yfir­stand­andi tíma­bili, Everton að fá á sig mark í tap­leik.

Fyrir þann pening var keyptur haugur af „tíum“ og fullt af allt of dýrum ofborguðum leik­mönnum með hefð­bundna nútíma-knattspyrnu­manna-skort-á-persónu­leika (sjá PR-menn að sjá um froðu Twitter-reikninga þeirra, línu­hárgreiðslur og viðtöl sem eru minna áhugaverð en endur­sýning á Opinberun Hannesar á besta tíma á föstudags­kvöldi).

Enginn þessara leikmanna hefur náð því að gera það sem til var ætlast af þeim, að smávaxna mark­verðinum Jordan Pickford. Allir aðrir hafa verið hrein­ræktuð vonbrigði.

Kaupin virtust illa undirbúin, illa framkvæmd og mörg hver ansi tilviljunar­kennd. Þau gerðu það að verkum að leik­manna­hópurinn er í mjög einkenni­legu jafnvægi, sem hefur skilað því að Ashley Williams (ekki fótbolta­leikmaður) og Cuco Martina (einhverskonar fótboltaleg gjörningar innsetning) hafa samtals spilað yfir 50 leiki á tíma­bilinu. Koeman var enda rekinn í október, þegar Everton sat í fallsæti, og mjög er farið að hitna undir Steve Walsh, yfirmanni knattspyrnu­mála sem sér um öll innkaupin.

Vonin um að peningar myndu gera hlutina bærilegri reyndist byggð á sandi. Því fleiri dýrir leikmenn sem Everton kaupir, því verra verður liðið.

Að ná engum árangri en komast samt til metorða

Þá komum við að ástæðu þess að þetta lélega tímabil hefur verið verra en öll hin lélegu tímabilin. Eftir að mistekist að ráða þá knattspyrnu­stjóra sem liðið vildi helst frá (sjá Silva og Fonseca) var ákveðið að snúa sér að Sam Allardyce.

Sá hefur verið knattspyrnu­stjóri nær samfleytt frá árinu 1991. Á því tímabili hefur honum tekist að vinna einn titil, fyrstu deildina í Írlandi með Limerick árið 1992 og er með vinnings­hlutfall á ferli sínum upp á 39 prósent (Mauricio Pochettino er með 45 prósent, Jurgen Klopp er með um 50 prósent, Arsene Wenger með 54 prósent, Antonio Conte er með 58 prósent, Jose Mourhino er með 65 prósent og Pep Guardiola er með 72,1 prósent).

Undan­farin ár hefur Allardyce getið sér gott orð fyrir að taka við félögum í fall­baráttu og bjarga þeim fyrir horn með ljótum leikstíl. Það skilaði honum, af einhverjum ástæðum, knattspyrnu­stjóra­starfinu hjá enska lands­liðinu. Og um leið varð hann best launaðasti lands­liðsstjóri í heimi með árslaun upp á þrjár milljónir punda.

Þar tókst honum að stýra liðinu einu sinni áður en að hann var rekinn eftir að blaðamenn með faldar mynda­vélar tóku hann upp á leyni­legum fundi þar sem hann var að aðstoða þykjustu­fjárfesta með því að upplýsa þá um leiðir til að komast framhjá banni enska knattspyrnu­sambandsins á eignar­haldi þriðja aðila á leik­mönnum. Samhliða ætlaði Allardyce að gera samning upp á 400 þúsund punda greiðslu við gervi­mennina. Á fundinum drakk Allardyce líka hvítvín úr troðfullu pint-bjórglasi, sem eitt og sér ætti að vera einhvers konar brottrekstrarsök. Þar gerði hann líka grín af talsmáta Roy Hodgson, fyrr­verandi landsliðs­þjálfara Englands, sem ber iðulega R fram sem W.

Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Allardyce hefur verið grunaður um að selja sálu sína fyrir smá pening. Áratug áður birti Panorama-frétta­skýringar­þátturinn á BBC umfjöllun þar sem Allardyce og sonur hans voru bendlaðir við að þiggja greiðslur undir borðið frá umboðs­mönnum fyrir að kaupa ákveðna leikmenn til Bolton, sem Allardyce stýrði þá.

Semsagt, huggu­legur náungi.

Niðurlægingin

Með Allardyce, Stóra Sam, fylgdi hans nánasti samstarfs­maður í gegnum árin, Sammy Lee, eða Litli Sam. Sá er hrein­ræktaður Liverpool-maður. Spilaði með erki­fjendum Everton í áratug, þjálfaði þar í annan áratug og hefur alltaf stutt liðið. Það er niður­lægjandi að sjá slíkan í Everton-úlpu á hliðar­línunni. Líklega svipað og fyrir sósíal­ista að sjá Brynjar Níelsson leiða lista Vinstri grænna í Reykjavík-suður.

Sammy Lee ásamt Rafa Benitez á Liverpool-árunum.
Sammy Lee ásamt Rafa Benitez á Liverpool-árunum.

Allardyce spilar mjög leiðinlegan fótbolta, en hann hefur sagt að fótboltinn verði að vera enn leiðinlegri ef liðið á að vinna fleiri leiki. Flatneskja ríkir og leikmenn virðast andlausir. Mörgum virðist einfald­lega bara vera sama.

Allardyce er þeirrar gerðar að honum finnst aldrei neitt vera sín sök. Þegar hann var gripinn með hvítvínið í bjór­glasinu að selja gervi­mönnum leið­beiningar um hvernig þeir gætu snið­gengið reglur atvinnu­rekenda hans þá taldi hann sig hafa verið fórnar­lambið. Rök hans fyrir því eru ekki ósvipuð þeim sem fyrr­verandi forsætis­ráðherra Íslands beitti fyrir sig eftir að hann var gómaður við að ljúga í viðtali um eignar­hald sitt á aflandsfélagi. Ef Everton vinnur þá er það iðulega Allardyce að þakka. Ef liðið tapar þá er það iðulega einhverjum öðrum að kenna.

Hann getur oft ekki borið fram nöfn leikmanna sinna eða man ekki hvað þeir heita. Mjög eftir­minnilegt var þegar að hann kallaði Gylfa Sigurðsson, lang­dýrasta leikmann í sögu Everton, tvívegis Guðna i viðtali eftir leik í haust. Allardyce þjálfaði einu sinni Guðna Bergsson og heldur því kannski að allir Íslendingar heiti bara Guðni.

Sam Allardyce á fundinum fræga með gervimönnunum, sem kostaði hann stjórastarfið hjá Englandi. Að drekka bjórglas fullt af hvítvíni.
Sam Allardyce á fund­inum fræga með gervi­mönn­unum, sem kost­aði hann stjóra­starfið hjá Englandi. Að drekka bjór­glas fullt af hvítvíni.

Stuðnings­menn upp til hópa þola hann ekki og finnst vera hans í starfi vera merki um algjört stefnu- og metnaðar­leysi. Hann afneitar þó þeirri staðreynd þrátt fyrir að sönnun fyrir henni megi heyra um nánast hverja helgi úr stúkunni, og í hverri könnuninni sem gerð er á fætur annarri. Á blaðamanna­fundi í gær, sem var haldinn vegna nágranna­slagsins gegn Liverpool sem fram fer í dag, virðist Allardyce vera í algjörri afneitun gagnvart því að það er varla hægt að finna stuðnings­mann Everton sem styður hann. „Hvar eru efasemdar­mennirnir?,“ spurði hann blaðamenn og sagði þá láta samfélags­miðla á borð við Twitter, Facebook og Instagram stýra lífi sínu of mikið. Fyrir honum er bara um lítinn minni­hluta stuðnings­manna að ræða.

Allardyce klykkti síðan út með því að sú staðreynd að Everton myndi enda fyrir ofan West Bromwich Albion í deildinni sýni svart á hvítu að tími hans á stjóra­stóli hafi gengið vel. Það eru 19 lið fyrir ofan West Bromwich í ensku deildinni. Það eru 20 lið í þeirri deild.

Það sem er óásættanlegt

Saman­dregið þá er hægt að sætta sig við ýmislegt þegar maður heldur með Everton. Það er hægt að sætta sig við lélegan fótbolta. Það er hægt að sætta sig við að liðið hafi varla getað eytt neinum pening í leikmenn áratugum saman. Það er hægt að sætta sig við að vinna aldrei neitt. Það er meira að segja hægt að sætta sig við Ashley Williams og Cuco Martina í leik og leik.

En það er ekki hægt að sætta sig við andstyggilegan mann við stjórnvölinn. Mann sem hefur nánast engan siðferðis­þröskuld, enga ábyrgðar­tilfinningu, enga raun­veruleika­tengingu og drekkur hvítvín úr pint-bjórglasi. Að halda með honum er eins og að ætla að halda með banka eða oliufélagi, ekki hægt.

Slíkur maður rænir manni voninni. Og þar af leiðandi einu ástæðunni fyrir því að horfa leiki liðsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár