Milljónir evrópskra vegabréfa hverfa árlega

Landamæraeftirlit í Danmörku, og víðar í Evrópu, hefur verið hert undanfarin misseri.
Landamæra­eft­ir­lit í Danmörku, og víðar í Evrópu, hefur verið hert und­an­farin miss­eri. Mynd: EPA

Evrópsk vega­bréf eru verð­mæt sölu­vara, ekki síst dönsk og sænsk. Millj­ónir evr­ópskra vega­bréfa og per­sónu­skil­ríkja hverfa árlega. Sum týn­ast, önnur seld en flestum þó stolið. Mörg hund­ruð þús­und fölsuð vega­bréf eru í umferð um allan heim.


og fyrir nokkru urðu til dæmis danskir blaða­menn vitni að því þegar hópur flótta­fólks á leið til Þýska­lands og Sví­þjóðar keypti dönsk og sænsk vega­bréf á götu­horni í Istanbúl í Tyrk­landi. Þótt lög­reglu­yf­ir­völd hvar­vetna líti illa fengin eða fölsuð vega­bréf ætíð alvar­legum augum er flótta­fólk sem reynir að kom­ast landa á milli ekki helsta áhyggju­efnið.

Vegabréf lykilþáttur glæpa og hryðjuverka

Að mati Alþjóða­lög­regl­unnar Interpol og Evr­ópu­lög­regl­unnar Europol eru stolin og fölsuð vega­bréf einn af lyk­il­þáttum skipu­lagðra glæpa, hryðju­verka­starf­semi og mansals. Það sé fremur regla en und­an­tekn­ing að hryðju­verka­menn not­ist við illa fengin eða fölsuð vega­bréf. Að minnsta kosti tveir til­ræð­is­mann­anna í París í nóv­em­ber í fyrra (þarsem 130 lét­ust) voru með stolin per­sónu­skil­ríki. Inn­an­rík­is­ráð­herra Frakk­lands sagði fyrir nokkru að Daesh hefði orðið sér úti um vega­bréf frá Írak, Sýrlandi og Líbíu gagn­gert til að nota við ”eigin vega­bréfa­fram­leiðslu” einsog ráð­herr­ann orð­aði það. Um svipað leyti kom það fram að rúss­neska leyni­þjón­ustan hefði hand­tekið 14 menn sem höfðu í fórum sínum full­kom­inn búnað til að útbúa vega­bréf og per­sónu­skil­ríki. Þeir voru jafn­framt grun­aðir um að hafa látið Daesh slík skil­ríki í té.

Sér­stakur gagna­banki með upp­lýs­ingum um horfin vega­bréf og önnur per­sónu­skil­ríki varð til hjá Interpol eftir hryðju­verkin í Banda­ríkj­unum 11. sept­em­ber 2001. 170 lönd senda upp­lýs­ingar í gagna­bank­ann. Á síð­asta ári komst upp um 125 þús­und til­vik þar sem reynt var að nota stolin vega­bréf en að mati Interpol er sú tala einsog dropi í hafið.

Bandaríkin herða sífellt reglurnar

Banda­rísk yfir­völd hafa miklar áhyggjur af hve mikið af stolnum og fölsuðum vega­bréfum er í umferð víða um heim. 21. jan­úar síð­ast­lið­inn tóku gildi í Banda­ríkj­unum sér­stakar reglur til við­bótar þeim ströngu reglum sem fyrir voru. Þessi við­bót þýðir að þeir sem eru með tvö­faldan rík­is­borg­ara­rétt, annan evr­ópskan en hinn súd­anskan, íraskan, íranskan eða sýr­lenskan geta ekki ferð­ast til Banda­ríkj­anna án vega­bréfa­á­rit­unar. Sama gildir um fólk sem ferð­ast hefur til ofan­greindra fjög­urra landa eftir 1. mars 2011.

Al-Qeda bæklingurinn

Í sér­stökum leið­bein­inga­bæk­lingi fyrir hryðju­verka­menn, sem al-Qaeda lét gera á sínum tíma og Daesh gaf út, með breyt­ingum og við­bótum, er langur kafli um fölsuð vega­bréf. Þar er lögð áhersla á að kynna sér vega­bréfið vel og vita sem mest um við­kom­andi land. Þekkja nöfn helstu ráða­manna, stærstu borgir og atvinnu­vegi, íbúa­fjölda, nöfn stærstu íþrótta­fé­laga og annað sem varðar landið. Þar er einnig sér­stak­lega mælt með að vera með tvö vega­bréf í fórum sínum, annað þeirra vand­lega falið.

Þau dönsku eftirsótt

Dönsk vega­bréf eru eft­ir­sótt og gang­verð á einu slíku talið sam­svara rúm­lega 400 þús­und íslenskum krónum ”á svörtum mark­aði”. Á síð­asta ári hurfu rúm­lega 43 þús­und dönsk vega­bréf, ýmist týnst, verið stolið eða seld og frá árinu 2010 er talan sam­tals 226 þús­und. Þetta er mik­ill fjöldi, sam­an­borið við önnur ESB lönd. Engin aug­ljós skýr­ing er á þessum mikla fjölda en danska lög­reglan telur hugs­an­legt að hana megi að hluta rekja til þess að fram til þessa hefur verið mjög auð­velt, og til­tölu­lega ódýrt, að fá nýtt vega­bréf. Athygli hefur vakið að nokkur hópur fólks, einkum karla, hefur margoft fengið ný vega­bréf á til­tölu­lega skömmum tíma. Grunur leikur á að vega­bréfin hafi verið seld enda ”gang­verðið” nokkuð hátt.

Svíar geta mest fengið þrjú vegabréf á fimm árum

Í Svíþjóð var svipað upp á ten­ingnum og í Danmörku. Stór hópur fólks fékk sí og æ nýtt vega­bréf og skýr­ingin ætíð sú sama: vega­bréfið hefði tap­ast. Nú hafa Svíar sett ný lög, frá og með 1. júlí á þessu ári getur hver ein­stak­lingur í mesta lagi fengið útgefin þrjú vega­bréf á hverju fimm ára tíma­bili. Danir íhuga nú að fara þessa leið.

Dönsk vegabréf týnast í póstinum

Þegar danskur rík­is­borg­ari ætlar að verða sér úti um nýtt vega­bréf fer hann á Borg­ara­þjón­ust­una, fær tekna af sér mynd og sýnir gamla vega­bréfið, sem gert er ógilt, eða gild per­sónu­skil­ríki. Eftir tíu til tólf daga er nýja vega­bréfið til­búið og þá getur eig­and­inn sótt það á Borg­ara­þjón­ust­una eða, sem er lang algeng­ast, fengið vega­bréfið sent í pósti. En, vega­bréfin kom­ast ekki öll í hendur við­tak­anda með póst­inum. Á síð­asta ári hurfu 244 vega­bréf á leið­inni frá fyr­ir­tæk­inu sem útbýr vega­bréfið til við­tak­and­ans. Skýr­inga­laust.

Danski dóms­mála­ráð­herr­ann sagði fyrir nokkrum dögum í blaða­við­tali að þótt 244 vega­bréf séu út af fyrir sig ekki mik­ill fjöldi væri þetta óvið­un­andi. þetta væri óvið­un­andi. Bent hefur verið á að ef eig­and­inn yrði sjálfur að mæta á Borg­ara­þjón­ust­una til að sækja vega­bréfið væri búið að girða fyrir vand­ann. Flestir vilja hins vegar vera lausir við að þurfa að fara tvær ferðir á Borg­ara­þjón­ust­una og velja því að fá vega­bréfið með póst­inum. Hvorki danska lög­reglan né póst­ur­inn Danska lög­reglan hafa viljað tjá sig um ástæður þess að vega­bréfin skila sér ekki til eig­end­anna. Á síð­asta ári voru gefin út 694 þús­und vega­bréf í Danmörku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár