Frjósemi aldrei verið minni á Íslandi

Frjósemi kvenna á Íslandi árið 2017 var 1,71 en yfir­leitt er miðað við að frjó­semi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að við­halda mann­fjöld­anum til lengri tíma litið.

Frjósemi íslenskra kvenna árið 2017 var 1,71 barn á ævi hverrar konu og hefur hún aldrei farið lægra frá því að mæl­ingar hófust árið 1853. Árið 2016 var frjó­semi 1,75 en það er næst lægsta frjó­semi sem mælst hefur hér á landi. Und­an­far­inn ára­tug hefur frjó­semi á Íslandi verið rétt um tvö börn á ævi hverrar konu.

Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar.

Árið 2017 fædd­ust 4.071 barn á Íslandi, sem er fjölgun frá árinu 2016 þegar 4.034 börn fædd­ust. Alls fædd­ust 2.112 drengir og 1.959 stúlkur en það jafn­gildir 1.078 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum.

Helsti mæli­kvarði á frjó­semi er fjöldi lif­andi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfir­leitt er miðað við að frjó­semi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að við­halda mann­fjöld­anum til lengri tíma litið.

[adspot]

Meðalaldur mæðra hækkar

Í frétt­inni kemur enn fremur fram að frjó­semi á Íslandi hafi verið með því mesta sem þekk­ist í Evrópu á síð­ustu árum en árið 2016 hafi frjó­semi verið undir tveimur í öllum löndum Evr­ópu­sam­bands­ins. Frjósemi var að með­al­tali 1,6 í 28 löndum Evr­ópu­sam­bands­ins árið 2016, mest var hún í Frakk­landi eða 1,92. Síðustu ár hefur fæð­ing­ar­tíðni innan álf­unnar verið lægst í löndum Suður-Evrópu og er árið 2016 engin und­an­tekn­ing, en fæð­ing­ar­tíðni var 1,34 á Spáni og Ítalíu og 1,36 í Portúgal.

Með­al­aldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síð­ustu ára­tugi og eign­ast konur nú sitt fyrsta barn síðar á ævinni en áður var. Frá byrjun sjö­unda ára­tug­ar­ins og fram yfir 1980 var með­al­aldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda ára­tug­inn hefur með­al­ald­ur­inn hækkað og var 27,8 ár í fyrra. Algeng­asti barn­eigna­ald­ur­inn er á milli 25 til 29 ára. Á þessu ald­urs­bili fædd­ust 108 börn á hverjar 1.000 konur í fyrra.

Fæð­ing­ar­tíðni mæðra undir tví­tugu í fyrra var 5,9 börn á hverjar 1.000 konur. Það er afar lágt miðað við þegar hún fór hæst á ára­bil­inu 1961 til 1965 en þá fædd­ust 84 börn á hverjar 1.000 konur undir tví­tugu. Til sam­an­burðar var með­al­aldur frumbyrja 29 ár í 28 löndum Evr­ópu­sam­bands­ins árið 2016, yngstar voru frumbyrjur í Búlgaríu eða 26 ára en elstar á Ítalíu eða 31 árs.

Tæplega 30% barna fæðast innan hjónabands

Árið 2017 fædd­ust 28,8 pró­sent barna á Íslandi í hjóna­bandi. Rúmlega 56 pró­sent barna fædd­ust í óvígðri sam­búð og 14,8 pró­sent fædd­ust því utan sam­búðar eða hjóna­bands. Af 28 löndum Evr­ópu­sam­bands­ins fæð­ast um 40 pró­sent barna utan hjóna­bands. Næstó­lík­leg­ast, á eftir Íslandi, er að börn fæð­ist innan hjóna­bands í Frakk­landi, eða 59,7 pró­sent, Slóveníu og Búlgaríu, 58,6 pró­sent. Til sam­an­burðar fæð­ast varla börn utan hjóna­bands í Tyrk­landi, eða 2,9 pró­sent, og það sama má segja um Grikk­land eða 9,4 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár