Móðurfélagi Norðuráls spáð miklum þrengingum og jafnvel gjaldþroti

Norðurál rekur meðal annars álverið á Grundnartanga.
Norðurál rekur meðal ann­ars álverið á Grundn­ar­tanga.

Grein­ing­ar­vef­síðan Seeking Alpha spáir því í nýrri grein­ingu að gjald­þrot sé mögu­lega framundan hjá Century Aluminum, móð­ur­fé­lagi Norð­ur­áls, í Banda­ríkj­unum. Hluta­bréfa­verð geti lækkað um meira en 50 pró­sent og í versta falli horfi það fram á gjald­þrot. Til að forða því sé því lík­legt að eigið fé félags­ins verði aukið á næst­unni.

Í grein­ing­unni eru færð rök fyrir því að Century hafi grætt á því frá­viki sem varð á Midwest álag­inu ofan á álverð. Midwest álagið (MWP) er álagið sem ákvarðar verð á allri sölu á áli í Banda­ríkj­unum. Álagið fór í hæstu hæðir í upp­hafi árs­ins 2014 og það jók tekjur Century Aluminum veru­lega árið 2014 og á fyrri helm­ingi þessa árs. Nú hefur þessi staða hins vegar gjör­breyst og álagið hríð­lækkað. Lækkunin hefur hins vegar ekki enn komið almenni­lega fram í tölum fyr­ir­tæk­is­ins og hluta­bréfa­verði þess, að mati grein­ar­höf­undar hjá Seeking Alpha. Hluta­bréfa­lækkun sem vissu­lega hefur orðið und­an­farið hafi að megn­inu til stafað af almennum áhyggjum af efna­hags­á­standi og veik­ara álverði. Hins vegar hafi Midwest álagið veru­leg áhrif hjá Century Aluminum.

Þessi gríð­ar­lega hækkun á álag­inu varð til þess að EBITDA hagn­aður Century fór úr 11 millj­ónum Banda­ríkja­dala árið 2013 í 217 millj­ónir dala árið 2014. Næstum öll hækk­unin var vegna hærra álags, þar sem álverð á álmark­aði London Metal Exchange (LME) hélst nán­ast það sama, en það fer nú lækk­andi eins og kunn­ugt er. Breyting á álag­inu um 22 doll­ara á tonn jafn­gildir fimmtán millj­óna dala breyt­ingum á EBIDTA hjá fyr­ir­tæk­inu, svo að jafn­vel þótt álagið hald­ist þar sem það er nú muni EBIDTA hagn­aður Century Aluminum lækka um 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala.

Grein­ing­ar­að­ilar spá því að minni eft­ir­spurn á alþjóða­vísu, og offram­boð af áli, muni halda áfram að ýta verði á áli niður á við á næstu tveimur árum. Spár sem Seeking Alpha taka með í reikn­ing­inn gera ráð fyrir því að verðið lækki um tíu pró­sent á næsta ári til við­bótar við þá lækkun sem orðið hefur á þessu ári.

„Í bjart­sýnni sviðs­mynd þar sem LME verð hald­ast flöt á núver­andi verð­inu 1.550 dalir á tonn mun EBITDA félags­ins lækka um 270 millj­ónir dala. Ef mark­að­ur­inn hefur rétt fyrir sér og verðin lækka um tíu pró­sent, lækkar EBITDA um 50 millj­ónir dala til við­bótar,“ segir í grein­ing­unni á Seeking Alpha.

Hlutabréfin hafa lækkað mikið og afkastagetan minnkuð

Eflaust eru skiptar skoð­anir á þess­ari grein­ingu. Fyr­ir­tækið mun birta upp­gjör þriðja árs­hluta þann 29. októ­ber næst­kom­andi og þá verður vænt­an­lega hægt að fá aðeins gleggri mynd af stöð­unni.

En ef litið er á hluta­bréfa­verð Century Aluminum und­an­farið ár sést að það hefur lækkað veru­lega eftir miklar hækk­anir nán­ast allt árið 2014. Verð á hlut fór hæst í um 31 doll­ara í lok nóv­em­ber í fyrra en við lokun mark­aða í gær var það 4,86 doll­arar á hlut.

Fyr­ir­tækið hefur rekið fjögur álver í Banda­ríkj­unum, auk álvers­ins á Grund­ar­tanga. Í ágúst síð­ast­liðnum til­kynnti félagið að það hygð­ist stöðva fram­leiðslu í álver­inu í Hawesville í Kentucky frá og með lokum októ­ber, vegna lágs álverðs og mik­ils útflutn­ings frá Kína, nema að mjög miklar breyt­ingar yrðu á verð­um­hverf­inu. Í lok sept­em­ber var hins vegar til­kynnt að ekki yrði lokað alveg heldur yrði fram­leiðslan í kringum 40 pró­sent af afkasta­getu álvers­ins. Þá sagði for­stjór­inn Michael Bless að það væri ein­fald­lega ekki hægt að keppa við útflutn­ing Kínverja á álvörum, sem væri nið­ur­greiddur á ósann­gjarnan hátt. Það væri þessu að kenna að álverð hefði lækkað og að þetta fyr­ir­mynd­ar­ál­ver í Kentucky væri sett í hættu. Fleiri álf­ram­leið­endur hafa talað á svip­uðum nótum og kvartað yfir aðferðum Kínverja.

Þessi ákvörðun um álverið í Hawesville kom í kjöl­far þess að fyr­ir­tækið til­kynnti í júní að það myndi end­an­lega loka álveri sínu í Ravenswood í Vestur-Virginíu, en fram­leiðsla þar var stöðvuð árið 2009. Stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins sagði auk­inn útflutn­ing Kínverja hafa mikið um það að segja, og einnig það að ekki hefði tek­ist að tryggja sam­keppn­is­hæfan orku­samn­ing fyrir álverið.

Norðurál greiðir minnst fyrir orkuna en þarf að semja aftur

Álverið á Grund­ar­tanga er sem fyrr segir eitt álver­anna sem Century Aluminum á, en eign­ar­haldið er í gegnum Norðurál. Í álver­inu hér á landi starfa um 600 manns og í fyrra voru tæp­lega 300 þús­und tonn af áli fram­leidd. Samkvæmt árs­reikn­ingi Norð­ur­áls fyrir síð­asta ár var hagn­aður álvers­ins hér á landi 10,7 millj­arðar íslenskra króna, eða 82,7 millj­ónir Banda­ríkja­dala, þrefalt meira en árið 2013. Miklu munar um tekjur vegna geng­is­hagn­aðar, sem voru 2,7 millj­arðar króna, en árið á undan var geng­is­tap upp á 2,3 millj­arða króna.

Samkvæmt grein­ingum á raf­orku­verði til álvera hér á landi, sem Ketill Sig­ur­jóns­son hefur gert, greiðir Norðurál lægsta raf­orku­verðið til Lands­virkj­unar, en lágt verð til Norð­ur­áls og Fjarða­áls dragi niður með­al­verð á raf­orku til álvera hér á landi niður í rúm­lega 26 Banda­ríkja­dali á megawattstund.

Norðurál kaupir líka orku af Orku­veitu Reykja­víkur og HS Orku, en samn­ingur á milli HS Orku og Norð­ur­áls hefur verið mikið í umræð­unni vegna þess að HS Orka vill losna út úr honum. Samn­ing­ur­inn kveður á um orku­sölu vegna álvers í Helguvík, sem ekki eru taldar neinar líkur á að rísi, en Norðurál vill ekki rifta þeim samn­ingi. Ein kenn­ing um ástæður þess er að fyr­ir­tækið vilji nota ork­una í álverið á Grund­ar­tanga.

Samn­ingar Norð­ur­áls við Lands­virkjun eru nefni­lega að renna út árið 2019, með mögu­leika á fram­leng­ingu, og fram hefur komið að þegar eru hafnar við­ræður um fram­haldið. Lands­virkjun hefur hins vegar gert allt öðru­vísi samn­inga und­an­farin ár en tíðk­að­ist þegar núver­andi orku­sölu­samn­ingur var gerður og því ljóst að verðið sem Norð­ur­áli býðst verður hærra en það sem nú er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár