Breska þingið kaus um þingkosningar 8. júní

Bretar ganga að kjör­borð­inu á ný 8. júní næst­kom­andi.

Theresa May lagði tillögu um þingkosningar fyrir þingið.
Theresa May lagði til­lögu um þing­kosn­ingar fyrir þingið. Mynd: Breska þingið á Flickr

Breska þingið kaus með til­lögu Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, um að boðað verði til þing­kosn­inga 8. júní næst kom­andi, eftir 50 daga. 522 kusu með til­lög­unni en 13 á móti.

Til þess að til­lagan yrði sam­þykkt þurftu tveir þriðju hlutar þing­heims að kjósa með til­lög­unni. Á þing­inu sitja 650 þing­menn og þess vegna þurftu 434 þing­menn eða fleiri að sam­þykkja til­lög­una.

Þing­kosn­ingar verða þess vegna haldnar í Bret­landi áður en skiln­að­ar­við­ræður Breta við Evr­ópu­sam­bandið hefj­ast form­lega. Bresk stjórn­völd ósk­uðu form­lega eftir því í lok mars að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Þrátt fyrir að hafa ítrekað lýst því yfir að engar þing­kosn­ingar yrðu boð­aðar í kjöl­far Brex­it-­at­kvæða­greiðsl­unnar fyrr en kjör­tíma­bilið væri liðið árið 2020, þá óskaði May eftir því að breska þingið myndi greiða atkvæði með til­lögu hennar um að boðað yrði til kosn­inga í sumar.

[links]Einu skýr­ing­arnar sem May hefur gefið fyrir því að kosn­ing­arnar séu haldnar svo snemma og með svo skömmum fyr­ir­vara eru að þær gætu treyst umboð stjórn­valda til þess að leiða við­ræð­urnar í þá átt sem ákveðin hefur ver­ið. Þær muni leiða af sér stöð­ug­leika til lengri tíma.

Samkvæmt skoð­ana­könn­unum sem birtar hafa verið í dag virð­ast Bretar vera nokkuð sáttur við þessar snemm­búnu kosn­ingar. Í könnun YouGov sem birt var í dag töldu 49 pró­sent aðspurðra að það hafi verið rétt af Theresu May að boða til kosn­inga snemma.

Að sama skapi telja flestir Bretar, sam­kvæmt könn­unum, að eðli­legt hafi verið að boða til venju­legra þing­kosn­inga heldur en að halda aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár