Bæta þarf við rannsóknir á heilsufarsáhrifum loftslagsbreytinga á Íslandi

Umfjöllun um mögu­leg áhrif lofts­lags­breyt­inga á heilsu­far hefur ekki haft mikið vægi í heil­brigð­is­rann­sóknum á Íslandi og þarf veru­lega að bæta við rann­sóknir um þetta efni á næstu árum, sam­kvæmt sér­fræð­ingi.

Ný skýrsla vís­inda­nefndar um lofts­lags­breyt­ingar, sem kom út síð­ast­liðið vor, bætir ekki miklu við umfjöllun um mögu­leg áhrif lofts­lags­breyt­inga á heilsu­far á Íslandi. Ástæða þess er sú að þetta umfjöll­un­ar­efni hefur ekki haft mikið vægi í heil­brigð­is­rann­sóknum á Íslandi. Hlutverk vís­inda­nefndar er að taka saman fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar og ástand þekk­ingar, nefndin stundar ekki sjálf­stæðar rann­sóknir. Verulega þarf að bæta við rann­sóknir um þetta efni á næstu árum svo betur megi tryggja að nauð­syn­leg þekk­ing verði til staðar.

Þetta segir Halldór Björns­son‚ veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands, í grein um lofts­lags­breyt­ingar og heilsu­far sem birt­ist í Lækna­blað­inu og kom út í byrjun mán­að­ar­ins.

Hann bendir á að í skýrls­unni sé þó rætt ítar­legar um hlýnun og frjó­korna­tíma­bil, og hugs­an­lega teng­ingu hlýn­unar og auk­innar tíðni myglu inn­an­dyra vegna meiri loft­raka, en sam­kvæmt erlendum rann­sóknum getur tíðni myglu inn­an­dyra á köldum svæðum auk­ist um 5 til 10 pró­sent við hlýnun. „Í nið­ur­lagi umfjöll­unar um lofts­lags­breyt­ingar og heilsu­far á Íslandi er end­ur­tekin sam­an­tekt fyrri skýrslna um að miðað við þrótt heil­brigð­is­kerf­is­ins bendi ekk­ert til ann­ars en að það muni ráða við það álag sem breyt­ing­unum kann að fylgja,“ segir Halldór. 

Hann byrjar grein­ina á því að útskýra að frá síð­asta fjórð­ungi lið­innar aldar hafi hlýnað við­stöðu­lítið víð­ast hvar á yfir­borði jarðar. Afleið­ingar hlýn­un­ar­innar séu þegar farnar að koma fram í bráðnun jökla, hækk­andi sjáv­ar­stöðu, auk­inni tíðni óveðra, bæði hita­bylgna og aftaka­úr­komu. Bein áhrif á líf­ríki séu nú þegar nokkur, og gæti breyt­inga á útbreiðslu dýra- og plöntu­teg­unda, tíma laufg­unar trjáa auk þess sem árs­tíða­bundin hegðan dýra­teg­unda (koma far­fugla, ganga fiski­stofna) hafi breyst með áhrifum á stofn­stærð og víxl­verkun við aðrar teg­undir.

Þjóðfélög mismunandi berskjölduð

Halldór bendir jafn­framt á að mis­mun­andi sé hversu ber­skjölduð þjóð­fé­lög eru fyrir áhrifum lofts­lags­breyt­inga og ráð­ist það af styrk inn­viða, atvinnu­háttum, stjórn­ar­háttum og öðrum þjóð­fé­lags­legum þáttum, – en ekki bara af umfangi lofts­lags­breyt­inga.

Hann segir að ofan­greind upp­taln­ing ætti ekki að koma á óvart, því búið hafi verið að spá þess­ari þróun fyrir nokkru síðan. Spár um hlýnun jarðar séu nokk­urra ára­tuga gamlar, og upp­taln­ing á lík­legum afleið­ingum fyrir vist­kerfi og félags­kerfi margar frá því fyrir síð­ustu alda­mót.

Í fyrr­nefndri skýrslu vís­inda­nefndar er farið yfir þekk­ingu vís­inda á lofts­lags­breyt­ingum og afleið­ingum þeirra á Íslandi. Halldór segir að meðal ann­ars komi fram að afleið­ingar hlýn­unar síð­ustu ára­tuga hér á landi séu auð­sæjar og víð­feðmar, birt­ist í þynn­ingu jökla, grænkun lands og breyt­ingum á komu­tíma far­fugla og teg­unda­sam­setn­ingu. Skýrslan ræði einnig vænt­an­legar lofts­lags­breyt­ingar á kom­andi öld, en á Íslandi verði hlýnun að jafn­aði nærri hnatt­rænni hlýnun, þó óvissa um þróun á haf­svæð­unum umhverfis landið sé veru­leg.

„Hversu mikið hlýnar hnatt­rænt fer eftir losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, verði hún í takt við ákvæði sam­komu­lags­ins sem náð­ist í París 2015 verður hnatt­ræn hlýnun innan við 2°C,“ segir hann.

Loftslagsbreytingar hafa líklega áhrif á heilsu milljóna manna

Halldor bendir enn fremur á að í skýrslu vís­inda­nefndar frá árinu 2008 sé stutt­lega fjallað um hvaða áhrif lík­legt sé að lofts­lags­breyt­ingar hafi á heilsu­far á hnatt­ræna vísu og sé þar byggt á úttekt milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna (IPCC) frá 2007. Þar komi fram að lík­lega muni lofts­lags­breyt­ingar hafa áhrif á heilsu millj­óna manna, einkum hópa sem hafa litla getu til aðlög­unar. Meðal helstu áhyggju­efna hafi verið vannær­ing og sjúk­dómar henni tengdir, nið­ur­gangs­sóttir og önd­un­ar­færa­sjúk­dómar, slys og sjúk­dómar tengdir nátt­úru­ham­förum, hita­bylgjum, fár­viðri og flóðum og að lokum hafi verið bent á að smit­leiðir kynnu að breyt­ast og smit­berar að nema ný lönd.

„Skýrslan ræddi einnig stöðu þekk­ingar á heilsu­fars­á­hrifum lofts­lags­breyt­inga á Íslandi, og bent á að helstu áhættu­þættir væru taldir smit­sjúk­dómar og aukin tíðni ofnæm­is­sjúk­dóma, en síð­ari þátt­ur­inn tengd­ist breyt­ingum á gróð­ur­fari. Sjúk­dómar á borð við veiru­heila­himnu­bólgu og Borreli­osis sem tengj­ast smá­maurnum Ixodes ricinus hafa breiðst út í Norður Evrópu, og nái maur­inn land­festu kynni slíkt að ger­ast hér. Hlýnun ein og sér nægir þó ekki til því hin fábreytta fána villtra spen­dýra á Íslandi og lít­ill þétt­leiki þeirra vinnur gegn við­komu maurs­ins sem er háður slíkum milli­hýslum,“ segir Halldór.

Hægt er að lesa grein­ina í heild á vef­síðu Lækna­blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár