Fölsunarmarkaðurinn stækkar og stækkar

Hvað er raun­veru­legt og hvað falskt? Borgþór Arn­gríms­son fjallar um risa­vax­inn markað með fals­aðar vörur.

Auguste Rod­in gerði margar eftirmyndir af Hugsuðinum. Hér ein styttan fyrir utan Rodin-safnið í Fíladelfíu. Sú stytta var gerð í lífstíð Rodins.
Auguste Rod­in gerði margar eft­ir­myndir af Hugs­uð­inum. Hér ein styttan fyrir utan Rodin-safnið í Fíla­delfíu. Sú stytta var gerð í lífs­tíð Rodins. Mynd: Scott D. Welch

Er mað­ur­inn við hlið­ina á þér í bið­röð­inni með Rolex úr og konan við hlið­ina á honum með tösku merkta Louis-Vutton? Ef svo er, hvernig veistu hvort þessir hlutir eru „ekta” eða keyptir á götu­mark­aði í stór­borg? Þig getur grunað hið síð­ar­nefnda en þú veist það ekki. Ef annað þeirra er enn­fremur með brons­styttu af „Hugs­uð­inum” eftir Rodin undir arm­inum er síður en svo öruggt að hún sé „ekta”.

Margir sem ferð­ast hafa erlendis hafa ugg­laust litið við á götu­mörk­uðum sem er að finna í borgum og bæjum um allan heim. Meðal þess sem þar er iðu­lega að finna eru svo­kall­aðar merkja­vörur, svosem arm­bandsúr, hand­töskur, striga­skór og íþróttafatn­aður af ýmsu tagi, ferða­töskur og snyrti­vörur svo fátt eitt sé nefnt. Það sem þessar götu­mark­aðs­vörur eiga sam­eig­in­legt er að verðið er allt annað og lægra en sjá má í versl­unum. Við fyrstu sýn er kannski ekki ýkja mik­ill útlits­munur á hand­tösku frá þekktum tísku­vöru­fram­leið­anda, og keypt er í verslun hans, og annarri sem keypt er á götu­mark­aði. Kunn­áttu­fólk seg­ist sam­stundis sjá hvort við­kom­andi taska er „ekta” eða ekki. Það sem hins­vegar skilur á milli er verðið. Taska frá þekkta fram­leið­and­anum kostar kannski sem svarar til tvö til þrjú hund­ruð þús­unda króna, eða jafn­vel miklu meira, en á götu­mark­aðnum má fá ”sam­svar­andi” tösku á tvö til þrjú þús­und krónur! Þótt hér sé hand­taska tekin sem dæmi gildir þetta um ótal margt annað.

Margir muna kannski eftir fjöl­miðlaum­fjöllun um hús­gögn í ráð­húsi Reykja­víkur haustið 2014 en þá hafði komið í ljós að sófar þar voru eft­ir­lík­ingar. Borgin brást við með því að eyði­leggja eft­ir­lík­ing­arnar en ítalski fram­leið­andi „ekta” sófans hafði ella hótað máls­sókn líkt og gert hefur verið í mörgum löndum. Þótt ugg­laust séu þess mörg dæmi að fólk hafi keypt eft­ir­lík­ingar í góðri trú eru þeir án efa fleiri sem vita vel að við­kom­andi hlutur er ekki ”ekta” en kæra sig koll­ótta. Þess eru líka dæmi að stórar versl­ana­keðjur hafi selt eft­ir­lík­ingar þekktra vöru­merkja. Fyrir þrem árum var danska versl­ana­sam­steypan Dansk Super­mar­ked dæmt fyrir að hafa aug­lýst og selt nokkur þús­und bómull­ar­boli merkta Ralph-Lauren fyr­ir­tæk­inu, sem voru fram­leiddir á lít­illi sauma­stofu í Tælandi og hafði engin tengsl við Ralph-Lauren.

Danska forsætisráðherrafrúin með eftirlíkingartösku

Árið 2006 gerðu danskir fjöl­miðlar sér mik­inn mat úr því að danska for­sæt­is­ráð­herra­frúin, Anne-Mette Rasmus­sen, hefði margoft sést með ódýra tösku, eft­ir­lík­ingu af tösku frá hinu þekkta fyr­ir­tæki Louis-Vutton. Meðal ann­ars á mynd með banda­rísku for­seta­hjón­unum George og Laura Bush. Myndin birt­ist í nær öllum dönskum dag­blöðum og sömu­leiðis í tísku­rit­inu Cosmopolitan. Í kjöl­farið var mikið fjallað um fals­aðar vörur í dönskum fjöl­miðlum en danskir hús­gagna­fram­leið­endur hafa orðið illi­lega fyrir barð­inu á föls­ur­unum.

Fölsunarmarkaðurinn stækkar og stækkar

Í nýrri skýrslu Efnahags-og fram­fara­stofn­un­ar­innar, OECD, kemur fram að við­skipti með fals­aðar vörur og eft­ir­lík­ingar fer sívax­andi. Að mati stofn­un­ar­innar námu við­skiptin með slíkar vörur jafn­gildi 120 þús­und millj­arða íslenskra króna. Þrátt fyrir marg­hátt­aðar aðgerðir stjórn­valda vinda þessi við­skipti stöðugt uppá sig

Fölsuð lyf og matvörur alvarlegast

Þótt flestum detti kannski Rolex úr, sól­gler­augu og hand­töskur í hug þegar minnst er á eft­ir­lík­ingar og fals­anir veldur fram­leiðsla slíks tísku­varn­ings ekki yfir­völdum mestum áhyggjum. Sala á fölsuðum lyfjum er mjög fyr­ir­ferð­ar­mikil, reyndar stærsti ein­staki vöru­flokk­ur­inn, og þrátt fyrir að yfir­völd reyni hvað þau geta til að koma í veg fyrir slíka sölu eykst hún stöðugt. Á eftir lyfj­unum koma mat­væli og fæðu­bót­ar­efni, skótau og fatn­aður, raf­magns­vörur, snyrti­vörur, ekki síst ilm­vötn, og svo úrin og tösk­urnar. Þessi sala fer einkum fram á net­inu og þótt slíkum net­versl­unum hafi á síð­ustu árum verið lokað í hund­raða­tali spretta sam­stundis upp nýjar.

Kínverjar lang stórtækastir í framleiðslunni

Af ein­stökum löndum er Kína, með Hong Kong, langstærst á þessu sviði sam­kvæmt áður­nefndri skýrslu OECD. Þaðan koma um það bil 85% fram­leiðsl­unnar en 15% frá Tyrk­landi, Singapúr, Tælandi, Indlandi, Marokkó og fleiri löndum.

Af hverju kaupir fólk eftirlíkingar?

Svarið við þess­ari spurn­ingu er ein­falt. Í flestum til­vikum er verðið ein­ungis brot af því sem borga þarf fyrir „ekta” vöru. Margir segja sem svo: af hverju ætti ég að borga hund­ruð þús­unda fyrir Rolex úr eða Gucci tösku þegar ég get keypt slíka hluti, sem líta næstum eins út, fyrir nokkra þús­und­kalla? Þarna liggur vand­inn því að í þessum efnum, eins og mörgum öðrum, stjórn­ast inn­kaupin af budd­unni.

Rodin réttarhöldin í Kaupmannahöfn

Þessa dag­ana standa yfir í Bæj­ar­rétti Kaup­manna­hafnar rétt­ar­höld í föls­un­ar­máli. Þar er ekki tek­ist á um úr og töskur, heldur er það lista­verk sem um er deilt. Nánar til­tekið 37 senti­metra háa styttu af Hugs­uð­inum, einu þekktasta verki franska mynd­höggv­ar­ans Auguste Rodins (1840 – 1917). Lista­mað­ur­inn gerði all­margar útgáfur af þessu verki, í mörgum stærðum, og hefur stundum verið kall­aður fyrsti fjölda­fram­leiðslu­lista­mað­ur­inn. Rodin safnið í París hefur einka­rétt á svoköll­uðum ”ekta afsteypum” verka hans sem selj­ast fyrir háar upp­hæðir. Sú stað­reynd, að ”gang­verðið” er hátt hefur freistað margra fals­ara. Styttan sem rétt­ar­höldin í Kaup­manna­höfn snú­ast um er talin tengj­ast stærsta föls­un­ar­máli Frakk­lands fyrr og síðar. Þrír Danir eiga í hlut.

Hertoginn af Búrgúndí

Í árs­byrjun 1992 stöðv­aði franska lög­reglan flutn­inga­bíl í eigu manns sem árum saman hafði selt kúa­bændum ýmis konar lyf handa bústofn­inum. Lög­reglan taldi að í bílnum væru ólög­leg efni, vaxt­ar­horm­ónar ætl­aðir naut­gripum. Eigandi bíls­ins var maður að nafni Guy Hain, hann fékk síðar við­ur­nefndið Her­tog­inn af Búrgúndí. Lög­reglu­þjón­arnir ráku upp stór augu þegar þeir sáu farm­inn.

+Þar voru engin fæðu­bót­ar­efni handa naut­gripum en hins­vegar fjöld­inn allur af lista­verkum úr bronsi. Verkin voru öll afsteypur verka þekktra franskra lista­manna, afsteypur verka Rodins í miklum meiri­hluta. Lög­reglan var þarna komin á slóð afkasta­mesta högg­mynda­fals­ara Frakk­lands fyrr og síðar. Guy Hain var hand­tek­inn og lög­reglan fann síðar afsteypu­verk­stæði í eigu hans í París og Búrgúndí og sam­tals rúm­lega 400 afsteypur af verkum Rodins, auk ann­arra lista­manna. Guy Hain hafði um tíma rekið list­verka­verslun í París undir nafn­inu Her­tog­inn af Búrgúndí og þaðan kom við­ur­nefnið. Lög­reglan taldi að hann hefði þénað sem sam­svarar fimm millj­örðum íslenskra króna á sölu eft­ir­lík­ing­anna og Guy Hain hlaut fjög­urra ára fang­els­is­dóm. Eftir að hann var laus úr prís­und­inni tók hann aftur til við fyrri iðju og árið 2002 hlaut hann annan dóm, að þessu sinni fimm ára fang­elsi.

Heimilt að gera tólf númeraðar afsteypur

Samkvæmt frönskum lögum er lista­manni heim­ilt að gera tólf núm­er­aðar afsteypur af verkum sínum. Hafi lista­mað­ur­inn ekki gert þetta meðan hann lifði er afkom­endum hans heim­ilt að láta gera slíkar afsteypur síðar. Guy Hain komst í sam­band við fyr­ir­tæki sem ann­ast hafði gerð afsteypna verka Rodins, og fleiri lista­manna, og komst þannig yfir mót sem gerð höfðu verið til að vinna afsteyp­urnar. Sér­fræð­ingar eru á einu máli um að afsteypur þær sem Guy Hain gerði séu mjög vel gerðar og það sé ein­ungis á færi örfárra ein­stak­linga að þekkja þær frá þeim ”upp­runa­legu”. Talið er að Guy Hain hafi sam­tals gert um það bil sex þús­und afsteypur af verkum franskra lista­manna, lang­flestar af verkum Rodins, og ein­ungis sé vitað hvar um það bil þriðj­ungur þess­ara verka er nið­ur­kom­inn. Vitað er að virt upp­boðs­hús hafa margoft selt afsteypur Guy Hain, Her­tog­ans af Búrgúndí, þótt slíkt sé fátítt í dag. Ein slík sala teng­ist rétt­ar­höld­unum sem nú standa yfir í Kaup­manna­höfn.

Christie´s uppboðshúsið seldi styttuna árið 1996

Árið 2012 kom dönsk kona með brons­styttu í upp­boðs­hús Bruun Rasmus­sen í Kaup­manna­höfn. Styttan var Hug­s­uð­ur­inn (Gru­bleren). Konan sagð­ist hafa erft stytt­una eftir stjúp­föður sinn sem hafi keypt hana hjá Christie´s í New York árið 1996 og þá greitt fyrir hana 200 þús­und doll­ara. Christie´s taldi stytt­una á þeim tíma ekta.

Bruun Rasmus­sen fékk. Jérome le Blay, einn helsta sér­fræð­ing Frakka á þessu sviði til að skoða stytt­una. Hann sagði hana fals­aða. Ekkert varð því af söl­unni hjá Bruun Rasmus­sen og konan fór heim með stytt­una. Hún hefur síðar greint lög­reglu frá því að hún hafi selt einum mann­anna sem nú eru ákærðir stytt­una fyrir 200 þús­und krónur danskar, sem er hátt verð fyrir eft­ir­lík­ingu.

Reyndu að selja hana gegnum Christie´s

Þre­menn­ing­arnir sem keyptu stytt­una, af dönsku kon­unni, fóru með hana til Christie’s í Lundúnum árið 2013 og ósk­uðu eftir að fyr­ir­tækið seldi hana á upp­boði. Christie´s óskaði eftir vott­orði um að styttan væri “ekta” afsteypa en það gátu menn­irnir af skilj­an­legum ástæðum ekki lagt fram. Christie´s hafði sam­band við dönsku lög­regl­una sem hefur nú stytt­una í sinni vörslu. Í jan­úar á þessu ári voru þre­menn­ing­arnir ákærðir og rétt­ar­höldin standa enn yfir. Ákæran hljóðar uppá að þeir hafi vís­vit­andi reynt að selja falsað lista­verk í hagn­að­ar­skyni. Menn­irnir neita en segja að ætl­unin hafi verið að fá Christie´s til að borga skaða­bætur vegna þess að upp­boðs­húsið seldi lista­verkið árið 1996 sem “ekta” afsteypu. Þessi skýr­ing vakti hlátur við­staddra en sak­sókn­ari vakti athygli á að ábyrgð upp­boðs­húss­ins vegna hugs­an­legra svika gilti ein­ungis í fimm ár og væri því löngu útrunnin.

Nöfn þre­menn­ing­anna hafa ekki verið gefin upp en þeir eru að sögn fjöl­miðla þekktir í Danmörku. Tveir þeirra hafa feng­ist við lista­verka­sölu og sá þriðji, sem er mál­ara­meist­ari er umsvifa­mik­ill í dönsku við­skipta­lífi.

Dómur á að falla síðar í þessum mán­uði. Þangað til bíður Hug­s­uð­ur­inn í pappa­kassa (utan af kaff­inu sem lög­reglan drekkur) í kjall­ar­anum á lög­reglu­stöð­inni í Kaup­manna­höfn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár