Umframeftirspurn eftir bréfum í Eik, sem er metið á 23,6 milljarða

Hluta­fjár­út­boði í Eik fast­eigna­fé­lagi lauk í gær. Alls ósk­uðu um 2.100 fjár­festar eftir því að fá að kaupa hluta­bréf í félag­inu fyrir sam­tals 8,3 millj­arða króna. Seldir voru 485 millj­ónir hlutir, alls 14 pró­sent hluta­fjár, fyrir 3,3 millj­arða króna. Umfram­eft­ir­spurn nam því fimm millj­örðum króna. Söl­un­gengi á hlut í útboð­inu var 6,8 krónur á hlut og áætlað er að við­skipti með hluti í félag­inu muni hefj­ast í Kauphöll mið­viku­dag­inn 29. apríl. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar vegna loka útboðs­ins.

Það er Arion banki sem seldi þá hluti sem voru til sölu í útboð­inu. Um er að ræða nán­ast allan hlut bank­ans í félag­inu, sem var að öðru leyti að mestu í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Arion á eftir söl­una 0,2 pró­sent í Eik.

Þriðja fasteignafélagið á markað


Eik er annað fast­eigna­fé­lagið sem fer á markað á þessu ári og það þriðja frá upp­hafi. Hluta­bréf í Reitum voru tekin til við­skipta fyrr í þessum mán­uði og fast­eigna­fé­lagið Reginn hefur verið á mark­aði frá árinu 2012.

Í hluta­fjár­út­boði Reita var 13,25 pró­sent af heild­ar­hlutafé félags­ins til sölu. Arion banki var eig­andi þess alls. Með­al­gengið í útboð­inu var tæp­lega 63,9 krónur á hlut. Heild­ar­sölu­and­virði útboðs­ins var því tæp­lega 6,4 millj­arðar króna.

Mun meiri eft­ir­spurn var eftir hlutum í Reitum en fram­boð. Alls bár­ust til­boð upp á 25,5 millj­arða króna. Því var umfram­eft­ir­spurnin fjór­föld.

Nokkrum dögum eftir að bréf með Reiti voru tekin til við­skipta til­kynnt Lands­bank­inn að hann hefði ákveðið að selja tíu pró­sent hlut í fast­eigna­fé­lag­inu Reitum, en bank­inn á alls um 18 pró­sent hlut í félag­inu. Hlut­ur­inn verður seldur í gegnum mark­að­við­skipti bank­ans og lág­marks­gengi í útboð­inu verður 63 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár