Lagt til að starfsnám lækna við upphaf sérnáms komi í stað kandídatsárs

Í nýjum drögum að reglu­gerð­ar­breyt­ingu er lagt til að kandídatsár verði ekki lengur skil­yrði fyrir veit­ingu almenns lækn­inga­leyfis. Læknar í sér­námi munu þess í stað hefja sér­nám á 12 mán­aða starfs­námi. Fyr­ir­myndin sótt erlendis frá.

Læknar ræðast við á göngum Landspítala.
Læknar ræð­ast við á göngum Land­spít­ala. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lagt er til að lækn­inga­leyfi verði veitt að loknu sex ára lækna­námi við Háskóla Íslands og að krafa um kandídatsár fyrir veit­ingu leyf­is­ins verði felld brott. Þess í stað verði 12 mán­aða starfs­nám skylda í upp­hafi sér­náms lækna, svo­kall­aður sér­náms­grunnur. Þetta er lagt til í drögum að reglu­gerð um breyt­ingu á reglu­gerð nr. 467/2015 um menntun, rétt­indi og skyldur lækna og skil­yrði til að hljóta almennt lækn­inga­leyfi og sér­fræði­leyfi en drögin voru birt á sam­ráðs­gátt stjórn­valda í vik­unni.

Þessum breyt­ingum er ætlað að tryggja að sér­náms­læknar séu ekki lakar settir en sér­náms­læknar frá öðrum ríkjum. Í sam­ráðs­gátt­inni segir að æ fleiri ríki bæt­ist í hóp þeirra sem hafa starfs­þjálfun sem hluta af sér­námi en ekki grunn­námi lækna. Í bráða­birgða­á­kvæði er gert ráð fyrir að þau sem lokið hafa kandídatsári muni telj­ast hafa lokið sér­náms­grunni.

Hægt verði að taka sérnámsgrunn á lengri tíma í lægra starfshlutfalli

Um skipu­lag sér­náms­ins segir í drög­unum: „Sérnám skal hefj­ast á sér­náms­grunni sem skal vera 12 mán­aða klínískt nám og þannig skipu­lagður að a.m.k. 4 mán­uðir séu á heilsu­gæslu, 4 mán­uðir á lyf­lækn­inga­deild og 4 mán­uðir á öðrum deildum, hámark tveimur.“

Þá mið­ast lengd sér­náms­grunns við fullt starf en hægt verði að veita und­an­þágu frá þeirri reglu og heim­ila töku sér­náms­grunns á lengri tíma sem mið­ast þá við starfs­hlut­fall. Það megi þó ekki fara niður fyrir 50 pró­sent.

Drögin koma frá vinnu­hóp sem skip­aður var af heil­brigð­is­ráð­herra en honum var falið að end­ur­skoða og skil­greina nánar umgjörð og stjórn­skipu­lag fram­halds­náms í lækn­is­fræði hér á landi. Vinna hóps­ins stendur enn yfir en þær breyt­ingar sem hér eru lagðar til ná aðeins til breyttra skil­yrða fyrir veit­ingu almenns lækn­inga­leyfis.

Líkt og áður segir fjölgar stöðugt í hópi þeirra landa sem hafa starfs­þjálfun sem hluta af sér­námi en ekki grunn­námi lækna. „Nýlega bætt­ist Noregur við og Svíþjóð mun einnig bæt­ast í hóp­inn frá 1. júlí n.k. Í ljósi þess að flestir læknar frá Háskóla Íslands sækja sér sér­fræði­menntun til Sví­þjóðar standa vonir vinnu­hóps­ins til þess að þær breyt­ingar sem hér eru lagðar til öðlist gildi innan EES-svæð­is­ins fyrir 1. júlí 2021,“ segir í sam­ráðs­gátt um breyt­ing­arnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár