Gögn frá Facebook sýna að fólk er meira á ferðinni á höfuðborgarsvæðinu

Þegar við erum á ferð­inni með sím­ann okkar í vas­anum getur Facebook aflað gagna um stað­setn­ingu okkar. Vís­inda­menn við Háskóla Íslands hafa rýnt í hreyf­ingar fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og segja: Fólk er meira á ferð­inni þessa dag­ana og dreifir sér meira.

Samkvæmt gögnum frá Facebook er fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu meira á ferð­inni nú en síð­ustu vikur og mán­uði. Hópur vís­inda­manna við Háskóla Íslands, sem gert hefur spálíkan um þróun far­ald­urs kór­ónu­veirunnar, segja blikur á lofti – að tæp vika sé til jóla og „greini­legt að umsvif eru að vaxa í þjóð­fé­lag­inu“.

Margir ótt­ast að fjórða bylgjan skelli á okkur í jan­úar – jafn­vel fyrr – enda sam­komur fólks, þótt smáar séu í sniðum, meiri á aðventu og jólum meiri en síð­ustu vikur og mán­uði.

Í gær greindust 12 manns með COVID-19 hér á landi og fjórir voru utan sótt­kvíar. Dagana þar á undan höfðu færri greinst og hlut­falls­lega fleiri verið í sótt­kví.

Facebook hefur frá því í júní birt gögn um hvernig hreyf­ing­ar­mynstur not­enda er á tímum COVID-19. Í upp­færslu á gögn­unum frá því í gær má sjá hvernig hreyf­ing fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur verið frá 1. mars til 15. des­em­ber.

„Það er greini­legt hvað dró úr umsvifum í mars, apríl og maí,“ segir í rýni vís­inda­manna HÍ, í gögn Facebook. „Síðan aukast umsvif um sum­arið. Aðeins dró úr í lok júlí en tekur kipp uppá við í ágúst. Um miðjan sept­em­ber dregur svo úr umsvifum en hefur byrjað að leita upp á við í nóv­em­ber og síðan haldið áfram að vaxa í des­em­ber.

Með auknum umsvifum og hreyf­ingu fólks aukast líkur á dreif­ingu veirunnar.“

Önnur aðferð til að meta hreyf­ingu fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er þegar land­svæði þess er skipt upp í um það bil 600×600 metra ramma. Dagleg hreyf­ing höf­uð­borg­ar­búa er svo metin út frá því hversu marga ramma þeir heim­sækja.

Um það bil fjórð­ungur hélt sig innan ramma í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins. Svo lækk­aði það hlut­fall er smitum fækk­aði veru­lega í sumar en hækk­aði aftur í þriðju bylgju. „Und­an­farið hefur þetta hlut­fall lækkað aftur sem sýnir að fólk er meira á ferð­inni og dreifir sér meira,“ segja vís­inda­menn HÍ í rýni sinni. „Nú reynir á að draga úr umsvifum eins og kostur er.“

Nánar má lesa um aðferð­ar­fræð­ina hér.

Gögn Facebook má nálg­ast hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár