Píratar halda prófkjör í öllum kjördæmum

Aðal­fundur Píra­ta­flokks­ins var hald­inn um helg­ina. Kosið var í fram­kvæmda­ráð og stefnu­mála­hópur kynntur. Prófkjör munu stjórna upp­röðun fram­boðs­lista í öllum kjör­dæmum.

Þrír sitja á Alþingi fyrir Pírata, þau Birgitta Jónsdóttir, Ásta Guðrún Helgadóttir og Helgi Hrafn Gunnarsson.
Þrír sitja á Alþingi fyrir Pírata, þau Birgitta Jóns­dóttir, Ásta Guðrún Helga­dóttir og Helgi Hrafn Gunn­ars­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Píratar ætla að halda próf­kjör í öllum kjör­dæmum í sumar til að raða á fram­boðs­lista flokks­ins fyrir alþing­is­kosn­ingar í haust. Aðal­fundur flokks­ins var hald­inn um helg­ina og fram­boðs­list­arnir verði til­búnir í ágúst. Morg­un­blaðið greinir frá.

Píratar hafa mælst stærsta og næst stærsta fram­boðið til Alþingis frá árá­mótum sam­kvæmt Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar. Þrír þing­menn sitja á Alþingi fyrir Pírata, þau Birgitta Jóns­dóttir, Helgi Hrafn Gunn­ars­son og Ásta Guðrún Helga­dóttir. Þau ætla öll að gefa kost á sér til áfram­hald­andi þing­setu eins og Kjarninn hefur greint frá.

[adspot]

Á aðal­fund­inum var einnig kosið í fram­kvæmda­ráð flokks­ins. 27 gáfu kost á sér en aðeins fimm fá fast sæti í ráð­inu og fimm manns til vara. Aðalmenn eru Elín Ýr Arnar-Haf­dís­ar­dóttir (for­maður), Sunna Rós Víð­is­dóttir, Þórlaug Ágústs­dóttir, Rannveig Ernu­dóttir, Eysteinn Jónsson, Halldóra Sigrún Ásgeirs­dóttir og Jason Stein­þórs­son. Tveir síð­ustu voru valdir með slembi­úr­taki úr hópi fund­ar­gesta.

Stefnu­mál flokks­ins í kosn­ingum verða ákvörðuð af sér­stökum stefnu­mála­hóp sem kynntur var á aðal­fund­inum um helg­ina. Að sögn Sigríðar Bylgju Sig­ur­jóns­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Pírata, verða það svo félagar í flokknum sem velja og kjósa áherslu­málin áður en fram­vkæmda­ráð og fram­bjóð­endur flokks­ins kynna málin fyrir kjós­endum.

Fyr­ir­hugað er að halda kosn­inga í haust í kjöl­far þess að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sagði af sér í apríl. Ekki hefur verið gefin út dag­setn­ing fyrir kosn­ing­arnar, þó það verði eigi síðarn en í októ­ber. Stjórn­ar­flokk­arnir tveir, Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur, segj­ast vilja ljúka ákveðnum málum áður en gegnið verður til kosn­inga.

Uppfært kl. 9:48 – Það var ekki ákvörðun aðal­fund­ar­ins að halda próf­kjör eins og greint var frá fyrst. Það hefur verið lag­fært í frétt­inni að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár