Loftslagsmarkmið Íslands nást með „norsku leiðinni“

Markmið um sam­drátt í losun frá vega­sam­göngum á Íslandi nást ef við förum sömu leið og Norðmenn þegar kemur að raf­bíla­væð­ingu. „Við státum okkur af silf­ur­verð­launum, sem ég er orð­inn hund­leiður á,“ segir sviðs­stjóri lofts­lags­mála hjá Orku­stofnun.

Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðsstjóri loftslagsmála, orkuskipta og nýsköpunar hjá Orkustofnun
Sigurður Ingi Frið­leifs­son, sviðs­stjóri lofts­lags­mála, orku­skipta og nýsköp­unar hjá Orku­stofnun Mynd: Orkustofnun

Sigurður Ingi Frið­leifs­son, sviðs­stjóri lofts­lags­mála, orku­skipta og nýsköp­unar hjá Orku­stofnun, segir okkur hafa tvö ár „til að rífa þetta í gang“, stefna á topp­inn í nýskrán­ingum nýorku­bíla í stað þess að sætta okkur við silfrið. Með því að setja markið á að allir nýir fólks- og bíla­leigu­bílar sem komi á íslenskar götur árið 2030 gangi fyrir nýorku (raf­magni, vetni o.s.frv.) megi ná þeim lofts­lags­mark­miðum sem sett eru fram í aðgerða­á­ætl­unum stjórn­valda. Nýtt orku­skipta­líkan Orku­stofn­unar hrundi næstum því er spár um fjölgun bíla­leigu­bíla á næstum árum var færð inn. „Við verðum að fara í þessa átt,“ segir Sigurður með áherslu, um nauð­syn þess að raf­væða bíla­leigu­bíla­flot­ann, „ef við ætlum að ná þessum mark­miðum“.

Orku­skipta­líkan Orku­stofn­unar var kynnt á fundi í Grósku í vik­unni. Líkanið er gagn­virkt tól sem eykur gagn­sæi og aðgengi að upp­lýs­ingum um fram­tíð­ina. Líkanið nær til orku­skipta jarð­efna­elds­neytis yfir í nýja orku­gjafa og hvaða áhrif það hefur á raf­orku­þörf. Orku­skipta­líkanið má því nota sem verk­færi í áætl­ana­gerð út frá still­an­legum for­sendum sem geta rímað við mark­mið, stefnu og skuld­bind­ingar Íslands í orku- og lofts­lags­málum.

„Þetta er hörku­líkan,“ sagði Sigurður Ingi, er hann tók til máls á kynn­ing­ar­fund­inum. „Þetta er nýja Play Station fyrir ykkur til að leika með og taka réttar ákvarð­anir.“

[links]Hann sagði að þótt það væri eflaust aldrei jafn flókið og nú að spá fyrir um fram­tíð­ina væri það að hluta til­komið vegna þess að „við getum í dag haft miklu meiri áhrif á fram­tíð­ina en við gátum áður fyrr.“

Í erindi sínu beindi hann sjónum sínum að vega­sam­göngum, „því þar erum við í miðri á, þar eru mestu mögu­leik­arnir og þar getum við gert ótrú­legar umbreyt­ingar fyrir 2030“.

Hann brá því næst upp á skjá­inn mynd af spá um orku­notkun bif­reiða til árs­ins 2040. „Óttist þið eigi þó að orku­þörf sé að hrynja,“ sagði hann um það sem myndin sýndi. „Þetta er feg­urðin í raf­væð­ingu sam­gangna.“ Með henni minnkar orku­þörf, þ.e.a.s. orku­ein­ingum sem þarf í sam­göngur mun fækka í fram­tíð­inni „sem eitt og sér ætti að hvetja ykkur til að raf­væða sem allra mest“.

Sú grunn­spá sem er lögð til grund­vallar í orku­skipta­lík­an­inu gerir ráð fyrir að árið 2030 nemi olíu­notkun bif­reiða 223 þús­und tonnum olíu­í­gilda eða um 79 pró­sentum af heild­ar­orku­þörf sam­gangna. Slík olíu­notkun mun valda losun koltví­sýr­ings upp á 681 þús­und tonn, um 11 pró­sentum minna en árið 2005. Það er ekki nóg til að ná mark­miðum Íslands í lofts­lags­málum.

Ferðamennirnir: Hið villta hross

Sú mikla aukn­ing í losun frá vega­um­ferð sem orðið hefur síð­ustu ár skýrist að miklu leyti af gríð­ar­legri fjölgun ferða­manna. Ferðir þeirra um landið eru „mjög elds­neyt­is­drifnar“ því þeir fara flestir um á bíla­leigu­bílum eða hóp­ferða­bílum sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti. En nú er stefnt að því að ná los­un­inni niður „og ná tökum á þessu villta hrossi“, svo gripið sé til sam­lík­ingar sem Sigurður not­aði.

Samkvæmt núver­andi aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum, sem þarfn­ast orðið upp­færslu, er áætlað að losun frá sam­göngum á landi verði 615 þús­und tonn árið 2030 en hún var 776 þús­und árið 2005. Þess er því vænst, sam­kvæmt áætl­un­inni, að hún drag­ist saman um 161 þús­und tonn á þessu tíma­bili.

En, benti Sigurður á, þar sem los­unin í vega­sam­göngum hefur auk­ist frá árinu 2005 í 950 þús­und tonn þarf sam­drátt­ur­inn að vera mun meiri en búist var við eða 355 þús­und tonn í stað 161 þús­unda. Og miðað við grunn­spá lík­ans­ins verður losun frá vega­sam­göngum 681 þús­und tonn árið 2030, og verk­efnið því orðið miklu stærra.

„Menn þurfa ekki að vera miklir stærð­fræð­isnill­ingar til að sjá að það er ekki 615 þús­und tonn.“ Þannig að miðað við mark­mið þá er þegar komið stórt og án frek­ari aðgerða óbrúað gat. „Áætlunin dugar ekki til. Og hvað gerum við þá? Þá þarf að herða tökin.“

Til að rann­saka hvað til þarf svo lofts­lags­mark­miðin náist kemur orku­skipta­líkanið að góðum þörfum. Í því er hægt að breyta marg­vís­legum for­sendum og sjá hvaða áhrif það hefur á loka­nið­ur­stöð­una.

Sigurður Ingi kynnti því næst til sög­unnar það sem hann kallar „norsku leið­ina“. Norðmenn eru eins og frægt er orðið fremstir meðal þjóða þegar kemur að nýskrán­ingum nýorku­bíla. Þeir hafa nú sett sér þau mark­mið að allir nýskráðir fólks­bílar árið 2025 verði nýorku­bílar. Það sama gildir um alla bíla­leigu­bíla og sendi­ferða­bíla. Norðmenn stefna enn­fremur að því að árið 2030 gangi helm­ingur nýskráðra hóp­ferða- og vöru­flutn­inga­bíla fyrir nýorku.

Ef Norðmenn geta þetta ...

Noregur er veð­ur­fars­lega á svip­uðum slóðum og Ísland, benti Sigurður á, það ætti því að vera jafn erfitt að fara í orku­skipti þar og hér. „Þannig að ég veit ekki af hverju við ættum ekki að geta gert þetta líka,“ sagði hann um nýskrán­ing­ar­mark­mið Norð­manna.

Það eru tvö ár þar til árið 2025 gengur í garð, „við höfum tvö ár til að rífa þetta í gang, inn­viði og annað. Til að mark­aðs­setja raf­bíl­inn sem bíla­leigu­bíl. Við verðum að fara í þessa átt ef við ætlum að ná þessum mark­miðum“.

Svo stór­tækir eru í bíla­leigu­bílar þegar kemur að hlut­deild í losun, svo „rosa­lega þykkir“, líkt og Sigurður orð­aði það, að þegar tölur um þá voru settar inn í líkanið miðað við spá Ferða­mála­stofu í ferða­manna­fjölda til næstu ára, „þá nán­ast hrundi líkanið“. Þetta segir hann sýna vel hversu mikla áherslu þurfi að setja á þá í tengslum við lofts­lags­mark­miðin.

Silfrið ekki nóg

En er norska leiðin raun­hæf?

Í Noregi er nýskrán­ing­ar­hlut­fall raf­bíla komið í 80 pró­sent. Og séu tengilt­vinn­bílar teknir með er hlut­fallið komið í 90 pró­sent. „Ég myndi segja að það væri ein­hver raun­hæfni í því,“ sagði Sigurður. „Við státum okkur af silf­ur­verð­launum, sem ég er orð­inn hund­leiður á. Ég stefni alltaf á gullið. Það eru þannig séð engar tækni­legar hindr­anir í vegi fyrir því að við getum náð sama marki og Norðmenn.“

Hann benti á að íviln­anir fyrir raf­bíla í Noregi eru ekki meiri en á Íslandi en að álögur á jarð­efna­elds­neyti væru þó eitt­hvað hærri.

Ívilnanir eru fjárfestingar

Það er algjör „no brainer“ að fá sér raf­bíl hvað varðar allan rekstr­ar­kostnað slíkrar bif­reiðar miðað við bruna­bíla, sagði Sigurður. „Raf­bíll­inn borgar sig á öllum sviðum.“ Að auki fáum við einnig mikið sem sam­fé­lag með því að raf­bíla­væð­ast. „Við fáum aukið orku­ör­yggi, minni heilsu­spill­andi mengun, við náum lofts­lags­skuld­bind­ingum okkar og svo mætti áfram telja.“ Ekki sé óeðli­legt að borga fyrir slíkan sam­fé­lags­á­vinn­ing með íviln­unum. „Íviln­anir eru fjár­fest­ingar, sér­stak­lega þegar kemur að orku­skiptum.“

Norska leiðin skilar okkur í mark

En hvað myndi það þýða fyrir los­un­ar­mark­mið okkar að fara norsku leið­ina? Svarið er: Með henni náum við mark­miðum okkar og rúm­lega það. „Málið leyst. Það þarf ekk­ert að ræða það frekar.“

Sigurður fjall­aði einnig um annan mjög góðan kost sem stendur til boða: Breyttar ferða­venjur. Í lík­an­inu er hægt að breyta for­sendum og sjá hvaða áhrif það hefur á lofts­lags­mark­mið okkar að fækka bílum eða fækka eknum kíló­metrum. Síðari kost­ur­inn er að hans mati lík­legri til að raun­ger­ast. Fólk sé lík­legra til að nota bíl­inn minna en að eiga hann alls ekki.

Breyttar ferða­venjur; að vinna heima, nota strætó, hjóla eða ganga í vinn­una, eru „hag­kvæm­asti, skil­virkasti, ódýr­asti og besti kost­ur­inn í orku­skiptum. Gleymum því aldrei þegar við erum að skoða flotta raf­bíla.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár