Veldi Storytel stækkar

Fyrstu tíu daga júlí­mán­aðar keypti Storytel ráð­andi hluti í tveimur fyr­ir­tækjum og eitt til við­bótar.

Í lið­inni viku keypti Storytel streym­isveitu arab­ískra hljóð­bóka og ráð­andi hlut í fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í fram­leiðslu hljóð­bóka. Fyrir hafði Storytel keypt ráð­andi hlut í For­lag­inu.

Mið­viku­dag­inn 8. júlí birt­ist til­kynn­ing á vef Storytel þess efnis að félagið hefði fest kaup á einni af stærstu streym­isveitum hljóð­bóka á arab­ísku, Kitab Sawti. Í til­kynn­ing­unni segir að Kitab Sawti sé leið­andi fyr­ir­tæki á sviði fram­leiðslu og streymis á hljóð­bókum á arab­ísku en það var stofnað af sænskum frum­kvöðlum árið 2016.

Vöxtur Kitab Sawti hefur verið mik­ill und­an­farið en í til­kynn­ing­unni kemur fram að sala félags­ins á fyrsta árs­fjórð­ungi 2020 hafi verið 79 pró­sentum meiri en á sama tíma í fyrra. Fyr­ir­tækið hafi því verið öfl­ugur keppi­nautur Storytel á þessu mark­aðs­svæði en Storytel Arabia var sett á lagg­irnar árið 2017. Eftir sam­ein­ingu mun Storytel hafa yfir rúm­lega fimm þús­und hljóð­bókatitlum á arab­ísku að ráða, stærsta ein­staka safni hljóð­bóka á því tungu­máli.

Tveimur dögum síðar birt­ist önnur til­kynn­ing á vef félags­ins um kaup á ráð­andi hlut í Earselect AB en það er nor­rænt fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í fram­leiðslu hljóð­bóka. Fyr­ir­tækið var stofnað árið 2017 og býr yfir hug­bún­aði sem auð­veldar fram­leiðslu hljóð­bóka í fjar­vinnu.

[links]

Í til­kynn­ingu segir að að kaupin muni auka enn frekar skil­virkni í fram­leiðslu Storytel. Haft er eftir Robert Holm­ström, yfir­manni fram­leiðslu hjá Storytel, að tækni Earselect muni hraða fram­leiðslu hljóð­bóka Storytel og auka hag­kvæmni í fram­leiðsl­unni sem gerir fyr­ir­tæk­inu kleift að mæta auk­inni eft­ir­spurn eftir gæða­hljóð­bókum.

Þann 1. júlí keypti Storytel ráð­andi hlut í For­lag­inu. Nú, líkt og þá, er kaup­verðið trún­að­ar­mál. Fyrir 70 pró­senta hlut sinn í For­lag­inu greiðir Storytel með reiðufé en fyrir kaupin á Kitab Sawti og Earselect greiðir Storytel að hluta til með reiðufé og að hluta til með hlutum í Storytel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár