Netanyahu hringdi þrjátíu sinnum í forstjóra Pfizer

For­stjóri Pfizer seg­ist hafa rætt við nokkra þjóð­höfð­ingja og að ísra­elski for­sæt­is­ráð­herr­ann hafi verið mjög ýtinn og að lokum sann­fært hann um að Ísrael væri rétti stað­ur­inn til að gera rann­sókn á virkni bólu­efn­is­ins á.

Albert Bourla, forstjóri Pfizer.
Albert Bourla, for­stjóri Pfizer. Mynd: EPA

Albert Bourla, for­stjóri lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Pfizer, hrós­aði for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, Benjamin Net­anyahu, fyrir „þrá­hyggju­kennda“ ýtni hans við að tryggja samn­ing við fyr­ir­tækið um bólu­efni fyrir Ísraela. „Hann hringdi þrjá­tíu sinnum í mig,“ sagði Bourla í við­tali við ísra­elska sjón­varps­stöð.

Yfir fimm millj­ónir Ísraela hafa fengið fyrri skammt­inn af bólu­efn­inu og tæp­lega 4 millj­ónir eru full­bólu­settir. Íbúar lands­ins eru um 9,3 millj­ónir.

Bourla var í við­tali á sjón­varps­stöð­inni Channel 12 fyrr í vik­unni og sagði þá m.a. að það væri „mjög við­eig­andi fyrir mann­kynið“ að eitt land væri valið til rann­sókna á virkni bólu­efnis Pfizer.

„Ég tal­aði við nokkra þjóð­höfð­ingja. Ég tal­aði við for­sæt­is­ráð­herr­ann ykkar og hann sann­færði mig um að Ísrael væri rétti stað­ur­inn með réttu aðstæð­urnar,“ sagði Bourla. „Mér þótti hrein­skiln­is­lega mikið til þrá­hyggju for­sæt­is­ráð­herr­ans ykkar koma. Hann hringdi í mig þrjá­tíu sinnum.“

Hann sagði ísra­elska heil­brigð­is­kerfið ein­stakt og að Ísrael hefði reynslu af því að fást við krísur.

Í við­tal­inu var hann spurður um þá stað­hæf­ingu Net­anyahu að aðeins hann gæti tryggt Ísraelum bólu­efni og svar­aði Bourla því til að fyr­ir­tæki hans gerði samn­inga við ríki – ekki ein­staka leið­toga. Þing­kosn­ingar fara fram í Ísrael 23. mars. „Við gerum ekki samn­inga við ein­stök fyr­ir­tæki eða stofn­anir. Bólu­efnið verður selt öllum löndum – hver svo sem leið­togi þeirra er.“

Bourla er fæddur í Grikk­landi. For­eldrar hans lifðu hel­för­ina af. Hann átti að koma í heim­sókn til Ísrael í byrjun mars, rétt fyrir kosn­ing­arnar, en frestaði för sinni.

Í frétt blaðs­ins Times of Israelum við­talið kemur fram að Net­anyahu hafi ítrekað sagt að það hafi verið vegna per­sónu­legra sam­skipta sinna við Bourla sem hinir ein­stöku bólu­efna­samn­ingar við Pfizer voru tryggðir. Gagnrýnt hafði verið að Bourla kæmi til Ísrael svo skömmu fyrir kosn­ingar. Hann segir þá gagn­rýni þó ekki hafa verið ástæðu þess að hann frestaði ferð­inni. Hún hafi reynst of flókin í fram­kvæmd vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Hann er ekki enn full­bólu­settur og hefur neitað að fá bólu­efni á undan þeim sem eru í for­gangs­hópum. „Mitt starf hefur ekk­ert að gera með póli­tík,“ sagði hann og bætti við að hann hefði ekki hug á því að reyna að hafa áhrif á úrslit kosn­ing­anna.

Íslensk yfir­völd voru í des­em­ber og jan­úar í við­ræðum við Pfizer um að hér á landi yrði gerði fjórða fasa rann­sókn á bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins. Þegar við­ræð­urnar hófust í des­em­ber var nokkur fjöldi smita að grein­ast dag­lega en þegar sótt­varna­læknir og fleiri fund­uðu með full­trúum Pfizer í febr­úar voru nær engin smit að grein­ast og var það nið­ur­staða fund­ar­ins að rann­sóknin myndi því ekki skila því gagni sem að var stefnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár