Mikil fækkun starfsfólks í einkennandi greinum ferðaþjónustu

Samkvæmt nýbirtum skamm­tíma­hag­vísum ferða­þjón­ustu dróst virð­is­auka­skyld velta í geir­anum saman um 59 pró­sent í mars-apríl í ár miðað við sama tíma­bil í fyrra. Sam­dráttur í gistin­óttum hefur verið mik­ill í sumar sam­kvæmt skamm­tíma­hag­vís­unum.

Virð­is­auka­skatt­skyld velta ein­kenn­andi greina ferða­þjón­ustu dróst saman um 59 pró­sent í mars og apríl sam­an­borið við sömu mán­uði í fyrra sam­kvæmt nýupp­færðum skamm­tíma­hag­vísum í ferða­þjón­ustu sem Hag­stofan heldur utan um. Í mán­uð­unum tveimur nam veltan í ár 34 millj­örðum króna en 84 millj­örðum í fyrra.

Í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar vegna útgáfu hag­vísanna segir að í mars hafi 23 þús­und verið starf­andi í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu eða um 12 pró­sent færri en á sama tíma í fyrra. „Flestir voru starf­andi við rekstur gisti­staða og veit­inga, eða tæp­lega 14 þús­und, sem er 14% lækkun borið saman við sama mánuð árið áður. Á tíma­bil­inu apríl 2019 til mars 2020 fækk­aði starf­andi í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu um 6% sam­an­borið við síð­ustu 12 mán­uði þar áður,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Viðbúið er að fjöldi starf­andi í ein­kenn­andi greinum ferða­þjón­ustu eigi eftir að lækka í hag­vísum Hag­stof­unnar á kom­andi mán­uðum. Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar sem fjallar um júlí kemur fram að um 7.700 manns hafi verið sagt upp í hóp­upp­sögnum frá því í mars, að stærstum hluta í ferða­þjón­ustu. Þá hefur atvinnu­lausum í almenna bóta­kerf­inu fjölgað hlut­falls­lega meira meðal fólks úr ferða­þjón­ustu­tengdum greinum á síð­ustu mán­uðum sam­kvæmt skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar.

Mikill samdráttur gistinátta í sumar

Í nýj­ustu útgáfu skamm­tíma­hag­vísa í ferða­þjón­ustu eru, meðal ann­ars, birtar upp­færðar tölur um gistinætur. Í júní síð­ast­liðnum voru gistinætur alls rúm­lega 263 þús­und og fækk­aði þeim um 72 pró­sent frá sama mán­uði í fyrra en þá voru gistinætur alls tæp­lega 943 þús­und. Af þeim voru gistinætur á hót­elum og gisti­heim­ilum alls tæp­lega 128 þús­und í mán­uð­inum og fækkar þeim um 78 pró­sent milli ára, úr rúmum 574 þús­undum.

Minni sam­dráttur varð í gistin­óttum á gisti­stöðum af öðrum teg­undum. Aðrar teg­undir skráðra gisti­staða eru tjald­svæði, far­fugla­heim­ili, orlofs­hús, skálar í óbyggðum, íbúða­gist­ing, svefn­pokag­isti­staðir og heimagisti­staðir. Í júní nam heild­ar­fjöldi gistin­átta á þess konar gisti­stöðum tæp­lega 136 þús­und. Sam­drátt­ur­inn í þessum flokki dróst saman um 63 pró­sent en í sama mán­uði í fyrra nam fjöldi gistin­átta í flokknum rúmum 368 þús­undum.

Samkvæmt bráða­birgða­tölum Hag­stof­unnar, sem gefnar voru út fyrr í mán­uð­inum, er áætlað að gistinætur á hót­elum í júlí hafi verið 269 þús­und. Í sama mán­uði í fyrra voru þær tæp­lega 508 og sam­drátt­ur­inn því áætl­aður vera 47 pró­sent á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár