Hækkun á iðgjöldum mun kosta atvinnurekendur nálægt 30 milljarða króna á ári

Nýtt kjara­samn­inga­líkan gerir ráð fyrir því að atvinnu­rek­endur hækki laun minna, en greiði þess í stað mun hærri iðgjöld í líf­eyr­is­sjóði

Í nýju samn­ings­lík­ani aðila vinnu­mark­að­ar­ins er gert ráð fyrir að líf­eyr­is­rétt­indi á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði verði jöfnuð, meðal ann­ars með því að iðgjöld á almenna vinnu­mark­að­inum verða hækkuð í úr um tólf pró­sentum í 15,5 pró­sent. Sú hækkun lendir að öllu leyti á atvinnu­rek­endum, en hlut­fallið sem þeir eiga að greiða fer úr átta pró­sent af launum í 11,5 pró­sent.

Atvinnu­rek­endur greiddu sam­tals 61,3 millj­arða króna í iðgjöld til almennra líf­eyr­is­sjóða á árinu 2014. Ef þær breyt­ingar sem nú eru í píp­unum hefðu verið komnar til áhrifa hefði sú upp­hæð verið 88,1 millj­arðar króna, eða 26,9 millj­örðum krónum hærri.

Til höfuðs "höfrunarhlaupinu"

Heild­ar­sam­tök launa­fólks og atvinnu­rek­enda á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði skrif­uðu á þriðju­dag undir sam­komu­lag um breytt vinnu­brögð við gerð kjara­samn­inga. Sam­komu­lagið er afrakstur af vinnu svo­kall­aðs SALEK-hóps, þar sem eiga sæti helstu við­semj­endur á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði. 

Hin breyttu vinnu­brögð snú­ast um inn­leið­ingu á nýju samn­ings­lík­ani á íslenskum vinnu­mark­aði.

Í raun er líkanið til­tölu­lega ein­falt. Í fyrsta lagi á svig­rúm til launa­breyt­inga að vera skil­greint út frá sam­keppn­is­stöðu gagn­vart helstu við­skipta­löndum. Þá eiga útflutn­ings­fyr­ir­tæki, eða fyr­ir­tæki sem eru í sam­keppni við inn­fluttar vörur og þjón­ustu, að móta svig­rúm til launa­breyt­inga. Þetta á að skila því að íslenska hag­kerfið eigi alltaf inni­stæðu fyrir þeim launa­hækk­unum sem ákveðnar verða.

Takist það munu kjara­samn­ingar leiða af sér aukin kaup­mátt og stöðugt gengi, í stað verð­bólgu og óstöð­ug­leika sem hið svo­kall­aða „höfr­ung­ar­hlaup“ veldur vegna víxl­verk­anna launa­hækk­anna og verð­bólgu. Þá eiga vextir, eina tæki Seðla­bank­ans til að takast á við verð­bólgu, að lækka, en þeir hafa að með­al­tali verið þrisvar sinnum hærri hér­lendis en á hinum Norð­ur­lönd­unum frá ald­ar­mótum. Lægri vextir þýða lægri fjár­magns­kostnað heim­ila.

Það er því öllum í hag að inn­leið­ing þessa lík­ans tak­ist.

Vilja auðvelda tilfærslu milli markaða

Til þess að ná þeim áfanga þarf hins vegar að takast á við við­var­andi vanda­mál á íslenskum vinnu­mark­aði, mun­inn milli opin­bera og almenna mark­að­ar­ins. Í ein­földu máli hefur staðan verið þannig lengi að þeir sem starfa hjá hinu opin­bera fá lægri laun en betri líf­eyr­is­rétt­indi en þeir sem starfa á almenna mark­aðnum. Þessi staða hefur gert það að verkum að erf­ið­ara er fyrir fólk að færa sig á milli slíkra starfa. Þ.e. opin­berir starfs­menn færa sig síður yfir á einka­markað til að verja líf­eyr­is­rétt­indi sín og starfs­menn á almennum vinnu­mark­aði fara síður í opin­ber störf vegna þess að laun þar eru lægri.

Nýja samn­ings­líkanið gerir ráð fyrir tvennum grund­vall­ar­breyt­ingum til að breyta þess­ari stöðu. Í fyrsta lagi á að tryggja opin­berum starfs­mönnum aukna hlut­deild í launa­skriði á almenna vinnu­mark­aðnum. Þannig á að koma í veg fyrir að opin­ber störf verði skilin eftir í launa­þróun og verði, líkt og því miður mörg mik­il­væg slík störf eru orðin, lág­launa­störf. Þetta verður gert með svo­kall­aðri launa­skriðs­trygg­ingu.

Í nýju samn­ings­lík­ani er einnig gert ráð fyrir að líf­eyr­is­rétt­indi á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði verði jöfnuð. Það verður meðal ann­ars gert með því að iðgjöld á almenna mark­aðnum verða hækkuð í 15,5 pró­sent. Í dag er lág­mark þeirra 12 pró­sent af launum.

Greiðsla þess skipt­ist þannig að atvinnu­rek­endur greiða um átta pró­sent fram­lag en laun­þegar fjögur pró­sent. Nú stendur til að hækka fram­lag atvinnu­rek­enda í 11,5 pró­sent og með því verði iðgjald á almenna mark­aðnum 15,5 pró­sent.

Til­gang­ur­inn er meðal ann­ars á að gera fólki auð­veld­ara fyrir að færa sig á milli starfa hjá hinu opin­bera og fyr­ir­tækja á einka­mark­aði.

Launahækkanir fara í iðgjöld

Þessari breyt­ingu mun fylgja tölu­verður kostn­aður fyrir atvinnu­rek­endur. Í skýrslu sem Fjár­mála­eft­ir­litið gerði um stöðu líf­eyr­is­sjóð­anna á árinu 2014 kemur fram að atvinnu­rek­endur greiddu sam­tals 61,2 millj­arða króna í iðgjöld á því ári. Ef hlut­fall launa sem þeir greiða í sjóð­ina hækkar úr átta pró­sentum í 11,5 pró­sent, líkt og samn­ings­líkanið gerir ráð fyrir, munu iðgjalds­greiðslur atvinnu­rek­enda aukast um tæp 44 pró­sent.

Ef breyt­ingin sem nú er stefnt að hefði verið við lýði í fyrra þá hefðu atvinnu­rek­endur greitt 88,1 millj­arð króna í iðgjöld, eða 26,9 millj­örðum króna meira en þeir gerðu í fyrra.

Til­gangur þessa er meðal ann­ars að halda aftur af launa­hækk­unum, sem skila sér iðu­lega í auk­inni einka­neyslu sem leiðir af sér verð­bólgu. Í stað hárra launa­hækk­anna í formi ráð­stöf­un­ar­fjár um mán­að­ar­mót á launa­fólk á almenna mark­aðnum að fá stærri hluta af launa­hækk­unum sínum í formi hærri líf­eyris.

Við­mæl­endur Kjarnans innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins segja þessa breyt­ingu vera svo stóra, og að upp­hæð­irnar sem um ræðir séu svo háar, að þær dragi veru­lega úr þörf­inni fyrir að reka áfram sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparn­að­ar­kerfi hér­lendis, verði breyt­ing­arnar að veru­leika.

Vilja klára samþættingu lífeyriskerfisins

Athygli vakti að ekki voru öll stétt­ar­fé­lög til­búin að skrifa undir ramma­sam­komu­lagið. Það nær ekki til 30 pró­sent launa­fólks í land­inu. Þar ber helst að nefna BHM og Kenn­ara­sam­bandið, sem bæði eru með þús­undir opin­berra starfs­manna innan sinna ráða. Sú ákvörðun teng­ist ekki með neinum hætti vilja­leysi þess­ara stétt­ar­fé­laga gagn­vart því að hætta „höfr­ung­ar­hlaup­inu“. Sá vilji er sann­ar­lega til staðar.

Í sam­komu­lag­inu er hins vegar verið að biðja félags­menn þeirra um að afsala sér til­tek­inni launa­upp­hæð sem þegar er búið að semja um gegn því að fá launa­skriðs­trygg­ingu. Og það sem skiptir mestu máli fyrir opin­bera starfs­menn er að stefnt er að jöfnun líf­eyr­is­kjara á næstu árum.

Unnið hefur verið að því að sam­þætta opin­bera og almenna líf­eyr­is­kerfið frá árinu 2009 þannig að rétt­inda­vinnsla verði sú sama. Þessi vinna hefur farið fram í starfs­hópi sem allir sem að mál­inu koma sitja í. Þrátt fyrir að starfið hafi staðið yfir í sex ár hefur ekki tek­ist að landa nið­ur­stöðu.

BHM og Kenn­ara­sam­bandið vilja klára þá vinnu áður en að félögin skuld­binda sig til þátt­töku í nýja kjara­samn­ings­lík­an­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár