Kjarninn tilnefndur til verðlauna fyrir umfjöllun um Bræðraborgarstígsbrunann

Umfjöllun Sunnu Óskar Loga­dóttur og ann­arra blaða­manna Kjarnans um brun­ann á Bræðra­borg­ar­stíg er til­nefnd til Blaða­manna­verð­launa BÍ í flokknum umfjöllun árs­ins. Verð­launin verða afhent í næstu viku.

Umfjöllun Kjarnans fór í loftið þann 15. nóvember síðastliðinn, en um var að ræða greinaflokk sem fjallaði um eldsvoða sem kostaði þrjár ungar manneskjur lífið, þann mannskæðasta sem orðið hefur í höfuðborginni.
Umfjöllun Kjarnans fór í loftið þann 15. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, en um var að ræða greina­flokk sem fjall­aði um elds­voða sem kost­aði þrjár ungar mann­eskjur lífið, þann mann­skæð­asta sem orðið hefur í höf­uð­borg­inni. Mynd: Golli

Dómnefnd Blaða­manna­verð­launa BÍ hefur til­kynnt um til­nefn­ingar sínar til allra fjög­urra flokka verð­laun­anna. Sunna Ósk Loga­dóttir og aðrir blaða­menn á rit­stjórn Kjarnans hljóta til­nefn­ingu fyrir það sem dóm­nefnd kallar „vand­aða og yfir­grips­mikla umfjöllun um elds­voð­ann á Bræðra­borg­ar­stíg 1 og marg­hátt­aðar afleið­ingar hans.“

Umfjöllun Kjarnans fór í loftið þann 15. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, en um var að ræða greina­flokk sem fjall­aði um elds­voða sem kost­aði þrjár ungar mann­eskjur lífið, þann mann­skæð­asta sem orðið hefur í höf­uð­borg­inni.[links]

Fjallað var um brun­ann frá ýmsum hliðum, en brun­inn hefur verið sagður afhjúpa þær slæmu aðstæður sem útlend­ingar búa oft við hér á landi.

Rík­is­út­varpið er með flestar til­nefn­ingar til Blaða­manna­verð­launa BÍ þetta árið, fjórar tals­ins. Fjöl­miðlar Sýnar hljóta þrjár til­nefn­ingar, Stundin tvær og Kjarninn, Morg­un­blaðið og DV hljóta eina til­nefn­ingu til verð­laun­anna, sem afhent verða föstu­dag­inn 26. mars.

Tilnefningar til Blaðamannaverðlauna BÍ:

Umfjöllun ársins

Birta Björns­dóttir og Guð­mundur Björn Þor­björns­son, RÚV. Fyrir fjöl­breytta, aðgengi­lega og upp­lýsandi umfjöllun af erlendum vett­vangi sem vakið hefur athygli í þátt­unum Heimskviðum.

Erla Björg Gunn­ars­dóttir og Nadine Guðrún Yaghi, Sýn. Fyrir áhrifa­mikla og afhjúp­andi umfjöllun Kompáss um dul­inn vanda kvenna með þroska­hömlun sem leiðst hafa út í vændi.

Sunna Ósk Loga­dóttir, Bára Huld Beck, Þórður Snær Júl­í­us­son, Arnar Þór Ing­ólfs­son og Jónas Atli Gunn­ars­son, Kjarn­anum. Fyrir vand­aða og yfir­grips­mikla umfjöllun um elds­voð­ann á Bræðra­borg­ar­stíg 1 og marg­hátt­aðar afleið­ingar hans.

Viðtal ársins

Erla Hlyns­dóttir, DV. Fyrir áhrifa­mikið við­tal við Elísa­betu Ron­alds­dóttur þar sem lýst er alvar­legu ofbeldi í nánu sam­bandi.

Hlédís Maren Guð­munds­dóttir, Stund­inni. Fyrir við­tal við fjórar ungar íslenskar konur sem eiga rætur að rekja til Asíu og lýsa kyn­ferð­is­legum kyn­þátta­for­dómum í sinn garð allt frá grunn­skóla­aldri.

Orri Páll Orm­ars­son, Morg­un­blað­inu. Fyrir við­tal við Ingva Hrafn Jónsson þar sem hann ræðir um and­lát bróður síns og þá ákvörðun hans að þiggja dán­ar­að­stoð.

Rannsóknarblaðamennska ársins

Aðal­steinn Kjart­ans­son, Helgi Seljan og Stefán Drengs­son, RÚV. Fyrir frétta­skýr­ing­ar­þátt um afdrif tveggja gáma­flutn­inga­skipa sem Eimskip seldi í gegnum milli­lið til nið­ur­rifs í Indlandi þvert á evr­ópsk lög.

Freyr Rögn­valds­son og Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son, Stund­inni. Fyrir frétta­flutn­ing um plast­mengun í Krýsuvík vegna moltu­dreif­ingar umhverf­is­fyr­ir­tæk­is­ins Terra sem Samtök atvinnu­lífs­ins valdi umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins 2020.

Nadine Guðrún Yaghi, Sýn. Fyrir að afhjúpa umfangs­mikil og afdrifa­rík mis­tök sem gerð voru við grein­ingar á leg­háls­sýnum hjá Leit­ar­stöð Krabba­meins­fé­lags­ins.

Blaðamannaverðlaun ársins

Hólm­fríður Dagný Frið­jóns­dóttir, RÚV. Fyrir umfjöllun um atvinnu­leysi þar sem tekið var á sál­rænum, félags­legum og fjár­hags­legum afleið­ingum þess í skugga heims­far­ald­urs COVID-19.

Sunna Karen Sig­ur­þórs­dóttir, Sýn. Fyrir yfir­grips­miklar og áhrifa­ríkar fréttir sem fluttar voru beint af vett­vangi af aur­skrið­unum á Seyð­is­firði og afleið­ingum þeirra.

Þór­hildur Þor­kels­dóttir, RÚV. Fyrir vönduð frétta­tengd við­töl þar sem sjónum er beint að ein­stak­lingum í erf­iðum aðstæðum.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár