Stjórnvöld ætluðu alltaf að greiða sannvirði fyrir eignir föllnu bankanna

Íslenska ríkið og Seðla­banki Íslands ætl­uðu sér alltaf að tryggja að upp­skipti eigna milli nýju og gömlu bank­anna myndu „ekki hafa áhrif á heimtur upp í kröfur lána­drottna“. Enn fremur við­ur­kenndu báðir aðilar að það væri „lyk­il­at­riði í rétt­látri með­ferð gagn­vart inn­stæðu­eig­endum og kröfu­höfum á hendur yfir­teknu bönk­unum að nýju bank­arnir greiði sann­virði fyrir þær eignir sem fluttar voru frá gömlu bönk­unum“. Það sann­virði ætti að finna með því að meta eign­irnar.

[caption id="attachment_19005" align="align­right" width="300"] Árni M. Mathiesen, fyrrum fjár­mála­ráð­herra.[/caption]

Árni M. Mathiesen, fyrrum fjármálaráðherra.
Árni M. Mathiesen, fyrrum fjár­mála­ráð­herra.

Þetta kemur fram í vilja­yf­ir­lýs­ingu um áform íslenskra stjórn­valda vegna fjár­hags­legrar fyr­ir­greiðslu hjá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum (AGS) sem var birt 14. nóv­em­ber 2008, sama dag og stof­nefna­hags­reikn­ingar nýju við­skipta­bank­anna þriggja voru birtir. Undir vilja­yf­ir­lýs­ing­una skrif­uðu Davíð Oddsson, þáver­andi for­maður banka­stjórnar Seðla­bank­ans, og Árni M. Mathiesen, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra.

Mikil umræða í kjölfar sendinga Víglundar


Það var því alltaf stefna íslenskra stjórn­valda að greiða kröfu­höfum sann­virði fyrir þær eignir sem teknar voru úr þrota­búum Glitnis, Lands­bank­ans og Kaup­þings og færðar til nýju bank­anna þriggja Íslands­banka, nýja Lands­bank­ans og Arion banka.

Mikil umræða hefur verið að und­an­förnu, í kjöl­far skjala­send­inga Víg­lundar Þor­steins­sonar til þing­manna, um að íslenskur almenn­ingur og fyr­ir­tæki hafi verið snuð­aður um 300-400 millj­arða króna vegna þess að eignir voru færðar inn í nýju bank­anna með afslætti. Víglundur telur að með þessu hafi stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn og eft­ir­lits­að­ilar framið umsvifa­mikil lög­brot og hefur farið fram á rann­sókn á mál­inu.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, hafa tekið undir kröfur Víg­lundar um rann­sókn á mál­inu.

[caption id="attachment_18293" align="alignnone" width="640"] Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur boðað rann­sókn á þeim ásök­unum sem Víglundur Þor­steins­son hefur sett fram.[/caption]

Sigmundur David
Sig­mundur David

 

Hámarka, meta og borga


Þann 17. nóv­em­ber 2008 lagði þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Geir H. Haarde, fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um fjár­hags­lega fyr­ir­greiðslu Íslands hjá AGS. Sú til­laga var í raun und­an­fari þess að Ísland og AGS gerðu með sér áætlun um end­ur­reisn íslensks efna­hags­lífs. Á meðal þess sem fólst í þeirri áætlun voru há lán sem AGS og ýmis þjóð­ríki veittu Íslandi til að takast á við þá erf­ið­leika sem blöstu við þjóð­inni eftir hrun.

Með þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni fylgdi vilja­yf­ir­lýs­ing um áform íslenskra stjórn­valda vegna fjár­hags­legrar fyr­ir­greiðslu hjá AGS. Í henni er meðal ann­ars fjallað um end­ur­skipu­lagn­ingu íslenska banka­kerf­is­ins. Þar segir að ákveðnu skipu­lagi yrði komið á „við skil yfir­teknu bank­anna og leiðir til að hámarka heimtur eigna með gagn­sæjum hætti. Stefna okkar að þessu leyti hefur verið útfærð nánar að und­an­förnu“.

Síðan segir: „Næstu skref í end­ur­skipu­lagn­ing­unni er önnur umferð mats á bæði nýju og gömlu bönk­unum til að tryggja að upp­skiptin hafi ekki áhrif á heimtur upp í kröfur lána­drotta. Virt alþjóð­legt end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki verður ráðið til að hafa yfir­um­sjón með fram­kvæmd­inni og aðstoða Fjár­mála­eft­ir­litið við að móta aðferðir í sam­ræmi við alþjóð­legar kjör­vinnu­reglur sem beitt verður við matið. Aðferða­fræðin á að liggja fyrir 15. nóv­em­ber 2008 en eftir það verða ótengd alþjóð­leg end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki ráðin til sjálfrar matsvinn­unnar sem á að vera lokið fyrir lok jan­úar 2009. End­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækin sem hafa yfir­um­sjón með fram­kvæmd­inni munu stað­festa ekki síðar en 15. febr­úar 2009 að matið hafi farið fram í sam­ræmi við fyr­ir­liggj­andi aðferða­fræði og taka loka­á­kvörðun um matið. Hluti af fram­kvæmd­inni er einnig mat á því hvort stjórn­endur og helstu hlut­hafar hafi gerst sekir um afglöp í rekstri eða mis­notkun á bönk­unum.“

[caption id="attachment_17957" align="alignnone" width="624"] Víglundur Þor­steins­son, fyrrum eig­andi BM Vallár, segir að stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn í ráðu­neytum og Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hafi framið stór­felld og marg­vís­leg lög­brot þegar þeir ákváðu að breyta stofnúr­skurði eft­ir­lits­ins um stofnun nýrra banka á grunni þeirra þriggja sem féllu í októ­ber 2008.[/caption]

Bráðabirgðatölur háðar endurmati


Vilja­yf­ir­lýs­ingin var birt sama dag og stof­nefna­hags­reikn­ingar nýju bank­anna þriggja voru birtir, 14. nóv­em­ber 2008. Í frétta­til­kynn­ingu sem FME sendi frá sér vegna þeirra sagði að um væri „að ræða bráða­birgða­tölur sem háðar eru end­ur­mati sem nú er hafið.“ Í grein­ar­gerð sem Víglundur Þor­steins­son sendi þing­mönnum og fjöl­miðlum heldur hann því fram að bráða­birgða­á­ætlun FME hafi verið hinn end­an­legi úrskurður um virði þeirra eigna sem færðar voru yfir í nýju bank­ana. Vilja­yf­ir­lýs­ingin og til­kynn­ing FME segja annað.

Víglundur Þorsteinsson, fyrrum eigandi BM Vallár, segir að stjórnmálamenn, embættismenn í ráðuneytum og Fjármálaeftirlitið (FME) hafi framið stórfelld og margvísleg lögbrot þegar þeir ákváðu að breyta stofnúrskurði eftirlitsins um stofnun nýrra banka á grunni þeirra þriggja sem féllu í október 2008.
Víglundur Þor­steins­son, fyrrum eig­andi BM Vallár, segir að stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn í ráðu­neytum og Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hafi framið stór­felld og marg­vís­leg lög­brot þegar þeir ákváðu að breyta stofnúr­skurði eft­ir­lits­ins um stofnun nýrra banka á grunni þeirra þriggja sem féllu í októ­ber 2008.

Af vilja­yf­ir­lýs­ing­unni er hins vegar ljóst að bæði Seðla­bank­inn og fjár­mála­ráðu­neytið voru á annarri skoðun. Þvert á móti er fjallað sér­stak­lega um að næsta skref sé önnur umferð mats á bæði „nýju og gömlu bönk­unum til að tryggja að upp­skit­pin hafi ekkki áhrif á heimtur upp í kröfur lána­drottna“. Síðar segir í vilja­yf­ir­lýs­ing­unni að stjórn­völd við­ur­kenni það enn fremur að „það sé lyk­il­at­riði í rétt­látri með­ferð gagn­vart inn­stæðu­eig­endum og kröfu­höfum á hendur yfir­teknu bönk­unum að nýju bank­arnir greiði sann­virði fyrir þær eignir sem fluttar voru frá gömlu bönk­unum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár