Meirihluti landsmanna á móti því að taka upp viðræður við ESB

Þeir sem eru með hæstu tekj­urnar og mestu mennt­un­ina vilja taka upp við­ræður að nýju. Þeir sem eru eldri, búa á lands­byggð­inni, eru tekju­lægri, með minni menntun og kjósa Sjálf­stæðis- eða Fram­sókn­ar­flokk eru á móti.

Alls segj­ast 45 pró­sent þeirra sem taka afstöðu vera fylgj­andi því að Ísland taki aftur upp aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið (ESB) en 55 pró­sent eru því and­vígir. Þetta kemur kemur fram í nýrri könnun sem Gallup vann fyrir Já Ísland.

Þar sést að stuðn­ingur við það að aðild­ar­við­ræður verði teknar aftur upp hefur auk­ist frá því að sam­bæri­leg könnun var gerð í febr­úar 2017, en hann er minni nú en hann var í upp­hafi árs 2016.

[links]Hlutfall þeirra sem vilja taka aftur upp við­ræður er aðeins hærra en þeirra sem myndu vilja ganga í sam­bandið ef kosið væru um það í dag, en Kjarninn greindi frá því á mánu­dag að 40,2 pró­sent Íslend­inga væru fylgj­andi aðild en 59,8 pró­sent á móti. Stuðn­ingur við aðild hefur auk­ist umtals­vert frá því að hann var kann­aður síð­ast í febr­úar 2017, en þá sögð­ust 33,9 pró­sent vera fylgj­andi aðild.

Viðræðum slitið 2014

Ísland sótti um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu sum­arið 2009. Þá sat að völdum rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, sam­steypu­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna. Vorið 2013 tók ný rík­is­stjórn Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks, undir for­sæti Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, við. Þann 21. febr­úar 2014 lagði Gunnar Bragi Sveins­son, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að draga umsókn Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu til baka.

Líkt og í flestum Evr­ópu­tengdum mál­efnum er mik­ill munur á afstöðu eftir kyni, aldri, búsetu, tekjum, menntun og stjórn­mála­skoð­unum gagn­vart því hvort vilji sé til þess að hefja við­ræður að nýju. Karlar eru mun viljugri til að taka upp við­ræður á ný en konur og yngra fólk hefur meiri áhuga á því en þeir sem eldri eru. Þannig segj­ast sex af hverjum tíu sem tóku afstöðu í ald­urs­hópnum 18-24 ára vera fylgj­andi því að taka aftur upp aðild­ar­við­ræður en rúm­lega sex af hverjum tíu lands­mönnum sem eru yfir 55 ára eru því and­vígir. Raunar eru fleiri á móti því að taka upp við­ræður en fylgj­andi í öllum ald­urs­hópum nema þeim yngsta.

[adspot]Íbúar Reykja­víkur eru mun meira áfram að taka aftur upp við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið en þeir sem búa í ann­ars staðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða á lands­byggð­inni. Þannig segj­ast um 56 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu, og búa í Reykja­vík, vera fylgj­andi því að taka upp við­ræður að nýju. Innan sveit­ar­fé­laga utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru hins vegar tveir af hverjum þremur sem taka afstöðu á móti því að taka upp aðild­ar­við­ræður að nýju.

Mikill munur milli kjósenda flokka

Alls segj­ast 55 pró­sent þeirra sem eru með yfir eina milljón króna í fjöl­skyldu­tekjur og tóku afstöðu í könn­un­inni að þeir séu fylgj­andi því að taka upp við­ræður um aðild að nýju. Þá er áber­andi mik­ill stuðn­ingur við slíkt á meðal þeirra sem eru með háskóla­menntun, en 59 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu eru fylgj­andi því. Tveir af hverjum þremur sem eru ein­ungis með grunn­skóla­próf og tóku afstöðu í könnun Gallup eru hins vegar and­vígir því að hefja við­ræður að nýju.

Það kemur vart á óvart að nær allir sem segj­ast kjósa Sam­fylk­ing­una og Pírata eru fylgj­andi því að taka upp við­ræður að nýju en það vekur athygli að fleiri kjós­endur Vinstri grænna eru fylgj­andi því en á móti. And­staðan við að hefja aðild­ar­við­ræður er mest á meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar sem tæp­lega níu af hverjum tíu sem tóku afstöðu eru á móti því að hefja aðild­ar­við­ræður að nýju. And­staðan er lítið eitt minni hjá kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks­ins og þá eru kjós­endur Flokks fólks­ins mun and­víg­ari við­ræðum en hlynnt.

Könn­unin var unnin fyrir Já Ísland og var fram­kvæmd 11-24. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Um var að ræða net­könnun og úrtakið var 1.435 manns um allt land. Allir þátt­tak­endur voru 18 ára og eldri og voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup. Þátt­töku­hlut­fall var 59,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár