Íslendingar vilja frekar íslenska krónu en evru

Stuðn­ings­menn Pírata eru helst fylgj­andi upp­töku evru en stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokks mest á móti því. Fleiri kjós­endur Vinstri grænna vilja evru en þeir sem vilja halda íslensku krón­unni.

Alls segj­ast 39,4 pró­sent lands­manna vera fylgj­andi upp­töku evru sem gjald­mið­ils á Íslandi í stað íslensku krón­unnar, en 43,3 pró­sent eru á móti því. Þá segj­ast 17,3 pró­sent ekki taka afstöðu til máls­ins. Þetta kemur fram í nýlegri könnun sem Gallup vann fyrir Já Ísland. Stuðn­ing­ur­inn við upp­töku evru er mestur hjá kjós­endum Pírata (86 pró­sent) en minnstur hjá kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins (16 pró­sent).

[links]Athygli vekur að fleiri kjós­endur Vinstri grænna eru hlynntir upp­töku evru sem gjald­mið­ils á Íslandi í stað íslensku krón­unnar en eru á móti því. Alls segj­ast 40 pró­sent kjós­enda þess flokks sem mælist að jafn­aði stærstur á land­inu í skoð­ana­könn­unum vera fylgj­andi upp­töku evru en 31 pró­sent eru and­vígir því. 29 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna segj­ast ekki hafa skoðun á mál­inu.

Kjós­endur Sam­fylk­ingar (79 pró­sent) og ann­arra óskil­greindra flokka (64 pró­sent) í könn­un­inni, sem eru að öllum lík­indum Viðreisn og Björt fram­tíð, eru líka mun meira fylgj­andi upp­töku evru en á móti því. Kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins (24 pró­sent) og Flokks fólks­ins (32 pró­sent) eru hins vegar mjög ber­sýni­lega frekar á móti slíkri upp­töku en fylgj­andi henni.

Meiri menntun og hærri tekjur þýða meiri vilja til að taka upp evru

Líkt og varð­andi aðild að Evr­ópu­sam­band­inu þá er skýr munur á afstöðu milli kynja, ald­urs­hópa, eftir búsetu, tekjum og menntun. Þannig eru til að mynda 52 pró­sent þeirra sem eru með fjöl­skyldu­tekjur yfir einni milljón króna á mán­uði fylgj­andi upp­töku evru en ein­ungis 26 pró­sent þeirra sem eru með fjöl­skyldu­tekjur á bil­inu 400 til 549 þús­und krónur á mán­uði. Þegar nið­ur­stöð­urnar eru skoð­aðar eftir menntun kemur í ljóst að 49 pró­sent þeirra sem eru með háskóla­próf eru fylgj­andi upp­töku evru en 34 pró­sent á móti. Hjá þeim sem eru ein­ungis með grunn­skóla­próf snýst dæmið algjör­lega við. Þar eru 29 pró­sent fylgj­andi upp­töku evru en 54 pró­sent á móti.

[adspot]Þá liggur fyrir að stuðn­ingur við upp­töku evru sem gjald­mið­ils er mun meiri í yngstu ald­urs­hóp­unum en á meðal þeirra eldri. Fleiri eru fylgj­andi upp­töku evru en á móti henni á meðal Íslend­inga frá 18 ára aldri og að 44 ára aldri. Mestur er stuðn­ing­ur­inn hjá yngstu ald­urs­hóp­unum. Í ald­urs­hópnum 45-54 ára er afstaðan nokkuð jöfn, 43 pró­sent eru fylgj­andi upp­töku evru en 44 pró­sent eru á móti. Í elstu ald­urs­hóp­unum, hjá 55 ára og eldri, er and­staðan hins vegar mest. Þar eru 34 pró­sent fylgj­andi upp­töku evru en 52 pró­sent á móti.

Stuðn­ingur við upp­töku evru er áber­andi mestur í Reykja­vík þar sem umtals­verður meiri­hluti vill taka hana. Dæmið snýst aftur algjör­lega við þegar horft er á nið­ur­stöður úr könn­un­inni á lands­byggð­inni. Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er annar hver maður alfarið á móti upp­töku evru en ein­ungis 31 pró­sent fylgj­andi henni. Þá eru karlar mun jákvæð­ari gagn­vart upp­töku evru en konur.

Nær ómögulegt að taka upp evru einhliða

Evr­ópu­sam­bandið hefur tekið það skýrt fram að ein­hliða upp­taka evr­unnar yrði aldrei með þeirra sam­þykki og að upp­taka hennar yrði aldrei leyfð fyrr en eftir aðild að sam­band­inu og að sam­leitn­is­skil­yrðum upp­fylltum. Seðla­banki Íslands hefur auk þess kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu, í ítar­legri skýrslu um mögu­leika Íslands í gjald­miðla­málum sem birt var 2012, að í raun séu raun­hæfir val­kostir hvað varðar gjald­miðil ein­ungis tveir: íslensk króna eða upp­taka evru með aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

Könn­unin var unnin fyrir Já Ísland og var fram­kvæmd 11-24. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Um var að ræða net­könnun og úrtakið var 1.435 manns um allt land. Allir þátt­tak­endur voru 18 ára og eldri og voru handa­hófs­valdir úr Við­horfa­hópi Gallup. Þátt­töku­hlut­fall var 59,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár