Þrjú innanlandssmit greindust í gær

Þrjú ný kór­ónu­veirusmit greindust inn­an­lands í gær, en alls voru 383 sýni tekin til grein­ingar á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala. Fjöldi fólks í sótt­kví er kom­inn undir 500.

Tæplega 400 sýni voru greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala í gær.
Tæplega 400 sýni voru greind á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala í gær. Mynd: Þorkell Þorkelsson/Landspítalinn

Þrjú ný kór­ónu­veirusmit greindust inn­an­lands í gær, öll á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala, sem tók 383 sýni til grein­ingar. Alls eru nú 122 manns í ein­angrun með virkt smit á land­inu og 494 ein­stak­lingar eru í sótt­kví.

Áfram er einn ein­stak­lingur á sjúkra­húsi, en sá er ekki á gjör­gæslu. 14 daga nýgengi inn­an­lands­smita er nú komið í 18,5 á hverja 100.000 íbúa hér á landi. Þetta kemur fram á covid.is.

Tvö af þeim þremur sem greindust með smit inn­an­lands í gær voru í sótt­kví, en alls 51 pró­sent þeirra sem greinst hafa með veiruna hér inn­an­lands frá 15. júní hafa verið í sótt­kví þegar sýni úr þeim voru tekin.

Að minnsta kosti tíu virk smit á landamærunum á tveimur dögum

Á sunnu­dag­inn fengu níu manns jákvæða svörun við COVID-19 prófi á landa­mær­unum. Sjö þeirra reynd­ust vera með virk smit, einn með mótefni fyrir veirunni og enn er beðið eftir mótefna­mæl­ingu hjá þeim síð­asta.

[adspot]

Í fengu svo sex manns jákvæða svörun við prófi á landa­mær­unum og að minnsta kosti þrjú eru með virk smit, en enn þá er beðið eftir nið­ur­stöðum úr mótefna­mæl­ingu hjá þremur. Rúmlega tvö þús­und próf voru tekin á landa­mær­unum hvorn dag.[links]

Á mið­nætti taka gildi nýjar og hert­ari reglur á landa­mærum Íslands, en þá munu allir sem til lands­ins koma þurfa að fara í skimun og að því búnu í 4-5 daga sótt­kví, áður en þeir fara aftur í sótt­kví.

Búast má við að sú ráð­stöfun dragi veru­lega úr ferða­vilja bæði til og frá land­inu á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár