Miðflokkurinn mælist stærri en Sjálfstæðisflokkur og Viðreisn. Samfylkingin er enn stærst. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu sem fjallað var um í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Miðflokkurinn mælist með 17,3 prósent fylgi og hefur aldrei verið stærri í mælingum Maskínu. Sjálfstæðisflokkur mælist með 15,3 prósent. Viðreisn stendur í 13,5 prósentum.
Fylgi Samfylkingar mælist 29,1 prósent, svipað og í síðustu könnun.
Könnun Maskína 13.–18. nóvember 2025
Samfylkingin
29,1%
Miðflokkurinn
17,3%
Sjálfstæðisflokkurinn
15,3%
Viðreisn
13,5%
Framsókn
6,6%
Flokkur fólksins
5,6%
Píratar
4,9%
Vinstri græn
4,8%
Sósíalistaflokkurinn
2,8%
0%5%10%15%20%25%30%
Heimild: Maskína. Strikalínan er 5% þröskuldurinn fyrir jöfnunarsæti.
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Því miður hafa populistar náð ótrúlegum árangri að rugla allt of marga í ríminu. Þeir bjóða upp á óraunhæfar skyndipatentlausnir sem í raun eru eins og hverjar aðrar sjónhverfingar. Þetta er forsætisráðherrann sem gekk í burtu út úr viðtali við sænska blaðamenn þegar þeir lögðu fyrir hann viðkvæmar spurningar varðandi leynireikninga og aflandsfélag sem hann var aðstandandi að.
Þetta er orðið líkt því sem gerist á hinum norðurlöndunum, einn stór sosial-demókrata flokkur á vinstri væng en síðan margir flokkar sem skipta með sér hægra og miðju fylginu.
2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Þetta er forsætisráðherrann sem gekk í burtu út úr viðtali við sænska blaðamenn þegar þeir lögðu fyrir hann viðkvæmar spurningar varðandi leynireikninga og aflandsfélag sem hann var aðstandandi að.