Framkvæmdastjóri Stapa í Panamaskjölunum - búinn að segja upp störfum

Kári Arnór Kárason hættir sem fram­kvæmda­stjóri Stapa líf­eyr­is­sjóðs vegna tveggja félaga hans í Panama­skjöl­unum. Hann segir ekki boð­legt að maður í sinni stöðu teng­ist slíkum félögum og biðst afsök­unar.

Kári Arnór Kárason, fram­kvæmda­stjóri Stapa líf­eyr­is­sjóðs, hefur sagt upp störfum hjá líf­eyr­is­sjóðnum vegna tveggja félaga sem hann átti og fund­ust í Panama­skjöl­unum. Frá þessu greinir Kári sjálfur á vef­síðu líf­eyr­is­sjóðs­ins í dag.

„Fyrir skömmu fékk ég upp­hring­ingu frá Kast­ljósi þar sem mér var tjáð að nafn mitt sé í hinum svoköll­uðu Panama­skjölum og teng­ist þar tveimur félögum,“ skrifar Kári Arnór. Annars vegar hafi verið félag stofnað af Kaup­þingi í Lúx­em­borg árið 1999 og hins vegar félag sem MP banki stofn­aði fyrir hans hönd árið 2004. Fyrra félagið hafi starfað í þrjú ár, en starfs­menn Kaup­þings hafi haft fullt og óskorað umboð til að eiga við­skipti fyrir hönd þess. „Senni­lega hafa fjár­fest­ingar þess ekki gengið vel. Raunar hef ég engin gögn um við­skipti þessa félags. Kastljós hefur ein­hver gögn um félagið en vill ekki veita mér aðgang að þeim.“

Hitt félagið var aldrei notað, að sögn Kára. „Það var talið fram á fram­tölum á verð­mæti stofn­kostn­aðar og afskrifað þremur árum síðar, sem tapað fé. Ég hafði því engan ávinn­ing af þessum félögum og þau tengj­ast engum skattaund­anskotum.“

Kári segir að honum hafi eflaust borið að til­kynna um til­vist þess­ara félaga til yfir­manna sinna, hann telji víst að svo hafi ekki verið gert og að því leyti hafi hann ekki upp­fyllt starf­skyldur sínar.

„Það voru mörg gylli­boð í gangi hér á Íslandi á ára­tugnum fyrir banka­hrunið. Á þessu má sjá að ég hef ekki verið ónæmur fyrir slíku þótt í þessum til­fellum væru það ekki ferðir til fjár. Ég er ekki stoltur af því að hafa látið glepjast af slíkum boðum. Ég vil þó taka fram að með því er ég ekki afsaka sjálfan mig enda við engan annan að sakast í þessu efni. Ég ber sjálfur ábyrgð á mínum gjörðum.“

Þótt deila megi um alvar­leika þess­ara hluta, segir Kári, metur hann það sem svo að umræðan í sam­fé­lag­inu sé þannig að ekki sé boð­legt að maður sem er for­stöðu­maður aðila sem varslar líf­eyr­is­sparnað fyrir almenn­ing hafi tengst slíkum félögum. „Skiptir þá engu máli þótt langt sé um liðið, hvort þetta var lög­legt eða ólög­legt eða hvort við­kom­andi hafi hagn­ast á slíkum við­skiptum eða ekki. Í ljósi þessa hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem fram­kvæmda­stjóri Stapa líf­eyr­is­sjóðs. Það er að mínu mati eina leiðin sem mér er fær til að axla ábyrgð, enda teng­ist vinnu­veit­andi minn ekki á neinn hátt þessum málum.“

Kári seg­ist leiður yfir mál­inu og biður fjöl­skyldu, vini, sam­starfs­fólk og kollega afsök­unar „á þeim óþæg­indum sem þau munu eflaust verða fyrir vegna umræðu um þennan dóm­greind­ar­brest minn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár