Boko Haram til liðs við Íslamska ríkið

Níger­íski hryðju­verka­hóp­ur­inn Boko Haram hefur svarið Íslamska rík­inu holl­ustu sína. Þetta kemur fram í mynd­bandi sem birt hefur verið á net­inu. Mynd­bandið birt­ist á Twitter síðu Boko Haram. Það er hljóð­upp­taka og leið­tog­inn Abubakar Shekau er tal­inn sá sem talar.

„Við til­kynnum holl­ustu okkar við kalífa múslima...og munum hlusta og hlýða á tímum erf­ið­leika og vel­gengni, í þreng­ingum og þæg­indum, og við munum þola að vera beittir mis­rétti, og munum ekki deila um stjórnun við vald­hafa,“ kemur meðal ann­ars fram í skila­boðum sam­tak­anna. Þá var einnig kallað eftir því að múslimar um allan heim sverðu kalíf­anum holl­ustu sína.

Kalífinn er Abu Bakr al-Baghdadi, leið­togi Íslamska rík­is­ins. Hryðju­verka­hópar í Mið­aust­ur­löndum, Afganistan, Pakistan og ann­ars staðar í Afríku hafa lýst yfir holl­ustu sinni við hryðju­verka­sam­tökin sem stjórna nú hluta Íraks og Sýrlands.

Boko Haram er stærsti hryðju­verka­hóp­ur­inn sem lýsir yfir tryggð sinni við Íslamska ríkið hingað til. Ljóst hefur þótt í nokkurn tíma að teng­ing væri milli þess­ara tveggja hryðju­verka­sam­taka en óljóst er þó hversu mikil sam­hæf­ing verður á milli þeirra í kjöl­far þess­arar til­kynn­ingar.

Ryan Cummings, sér­fræð­ingur hjá red24, sem hefur fylgst með Boko Haram náið frá árinu 2011, segir við New York Times að yfir­lýs­ingu leið­toga Boko Haram sé ætlað að senda þeim skila­boð að hryðju­verka­sam­tökin tvö séu á sömu blað­síðu. En Boko Haram er ekki eins­leitur hópur heldur hagar sér eins og margar litlar ein­ingar, svo það sé of snemmt að segja til um það hvort sam­tökin muni heyra beint undir Íslamska ríkið.

Boko Haram hefur í sex ár staðið í hern­aði til að reyna að mynda íslamskt ríki í norð­ur­hluta Nígeríu. Að minnsta kosti þrettán þús­und manns hafa lát­ist í árásum hryðju­verka­sam­tak­anna. Síðast lét­ust tæp­lega sex­tíu manns í fimm sprengju­árásum í og nálægt borg­inni Mai­dug­uri í gær. Samtökin hafa einnig rænt hund­ruðum stúlkna sem flestar eru enn ófundnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár