Unnið að gerð stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar

Það mun í síð­asta lagi liggja fyrir á morgun, mánu­dag, hvort að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur verði mynduð. Byrjað er að ræða verka­skipt­ingu og unnið er að gerð stjórn­ar­sátt­mála.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er með stjórnarmyndunarumboðið.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, er með stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið. Mynd: Hringbraut

Full­trúar flokk­anna fjög­urra, sem nú reyna stjórn­ar­myndun, hafa unnið að gerð stjórn­ar­sátt­mála um helg­ina. Þá hafa þeir einnig rætt verka­skipt­ingu og ráð­herra­skipan. Búist er við því að ákvörðun verði tekin á morgun um hvort að myndun stjórn­ar­innar verði eða ekki. Þeir sem taka þátt í við­ræð­unum, for­menn og hluti þing­manna flokk­anna, fund­uðu með þing­flokkum sínum í hádeg­inu í dag til að fara yfir stöðu mála. Eftir að þeim fundum lauk var haldið áfram að funda um myndun rík­is­stjórnar og við gerð stjórn­ar­sátt­mála.

Flokk­arnir fjórir eru Vinstri græn, Sam­fylk­ing, Fram­sókn­ar­flokkur og Pírat­ar. Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, verður næsti for­sæt­is­ráð­herra ef flokk­arnir fjórir ná að klára við­ræður sínar með jákvæðri nið­ur­stöðu. Hún fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð hjá for­seta Íslands á fimmtu­dag og síðan þá hafa form­legar við­ræður staðið yfir. Fyrst fór þær fram á heim­ili Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, í Hruna­manna­hreppi. Þar var fundað á föstu­dag. Vinnunni var síðan haldið áfram í Reykja­vík um helg­ina.

Formenn flokk­anna funda í kvöld til að fara yfir stöðu við­ræðn­anna. Katrín sagði við RÚV að hún ætti ekki von á því að úrslit stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðn­anna ráð­ist á fund­inum í kvöld en sagði að þar myndu við­semj­endur fara eins langt og hægt væri. Hún sagði enn fremur að það yrði að verða orðið ljóst á morgun hvort flokk­arnir mynda saman stjórn eða ekki.

Áhersla lögð á stóru málin

Mál­efna­lega hefur gengið vel að ná saman um þá hluti sem flokk­arnir eru sam­mála um. Þ.e. útgjalda­aukn­ingu í heil­brigð­is­mál, stór­sókn í mennta­málum og mikla inn­spýt­ingu í fjár­fest­ingu í innviðum á borð við vega­kerf­ið. Auk þess mun vænt­an­leg rík­is­stjórn setja jafn­réttis- og loft­lags­mál á odd­inn, beita sér fyrir því að skapa aukna sam­stöðu um mál og beita sér fyrir breyttum vinnu­brögðum á Alþingi.

Á laug­ar­dag fór mik­ill tími í að ræða um þær kjara­við­ræður sem framundan eru á vinnu­mark­aði ásamt því að ræða um kjör aldr­aðra og öryrkja.

Fyrir liggur að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vill fara í gagn­gerar breyt­ingar á fjár­mála­kerf­inu og við­mæl­endur Kjarnans segja að það sé ófrá­víkj­an­leg krafa að hálfu flokks­ins. Þá vill flokk­ur­inn fara í aðgerðir til að draga veru­lega úr vægi verð­trygg­ingar. Ekki er talið að þau mál verði gerð að frá­gangs­sök að hálfu hinna flokk­anna.

Píratar munu þurfa trú­verð­uga nið­ur­stöðu í stjórn­ar­skrár­málum til að bak­land flokks­ins muni geta sætt sig við stjórn­ar­þátt­töku og er unnið að lausn á því máli. Þó liggur fyrir að til­lögur stjórn­laga­ráðs verða ekki óbreyttar grunnur að nýrri stjórn­ar­skrá hjá þess­ari rík­is­stjórn.

Evr­ópu­mál hafa í raun verið afgreidd með því að Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur sagt opin­ber­lega að flokk­ur­inn muni ekki setja það sem skil­yrði í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum að haldin verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um áfram­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið á næsta kjör­tíma­bili.

Viðreisn boðar málefnalega stjórnarandstöðu

Náist að klára myndun rík­is­stjórn­ar­innar þá mun meiri­hlut­inn verða skip­aður 16 konum og 16 körl­um. Katrín Jak­obs­dóttir verður nær örugg­lega for­sæt­is­ráð­herra og aðrir for­menn eða ígildi for­manns, Sig­urður Ingi Jóhanns­son, Logi Ein­ars­son og Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, myndu sitja í stjórn­inni.

Þá má telja nær öruggt að Lilja Alfreðs­dótt­ir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, muni taka sæti í rík­is­stjórn­inni en óljós­ara er hverjir úr hinum flokk­unum myndu gera það. Ráðu­neyt­is­skipt­ing hefur þegar verið reifuð á óform­legum fundum flokk­anna en ekk­ert liggur end­an­lega fyrir í þeim mál­um. Engum dylst þó að Lilja Alfreðs­dóttir hefur mik­inn áhuga á að verða fjár­mála­ráð­herra.

Þá hafa Píratar þá stefnu að ráð­herrar eigi ekki að sitja á þingi. Við þá stefnu verður staðið. Því munu þeir þing­menn Pírata sem setj­ast í rík­is­stjórn segja af sér þing­mennsku og vara­menn þeirra taka við sem þing­menn.

Í stjórn­ar­and­stöðu yrðu fjórir flokk­ar: Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Mið­flokk­ur­inn, Flokkur fólks­ins og Við­reisn. Af þeim 31 þing­manni sem yrði í and­stöðu yrðu átta konur og 23 karl­ar.

Við­reisn væri eini flokk­ur­inn í stjórn­ar­and­stöðu sem væri með jafnt kynja­hlut­fall. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, hefur þegar boðað ann­ars konar stjórn­ar­and­stöðu en tíðkast hefur hér­lendis. Hún hefur sagt að sér lít­ist ágæt­lega á þá rík­is­stjórn sem verið sé að mynda. Flokkur hennar muni stunda mál­efna­lega stjórn­ar­and­stöðu og styðja rík­is­stjórn­ina í góðum verkum. Viðreisn muni hins vegar ekki veita rík­is­stjórn­inni hlut­leysi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár