Telur ekki eðlilegt að fjármunum sé mokað út úr sjávarútveginum

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra var spurður á Alþingi í dag út í til­færslu hluta­fjár eig­enda Samherja til barna sinna. Hann segir að málið hafi ekki komið inn á hans borð.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra seg­ist hafa frétt af til­færslu hluta­fjár eig­enda Samherja til afkom­end­anna í fjöl­miðlum rétt eins og aðrir. Hann telur það ekki vera eðli­legt að fjár­munum sé „mokað út úr ein­hverri til­tek­inni atvinnu­grein ef þannig háttar til“. Þetta kom fram í máli ráð­herr­ans í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði að „nú á dög­unum hefði verið sett Íslands­met í arfi þar sem upp­safn­aður ágóði af sam­eig­in­legum auð­lindum þjóð­ar­innar var afhentur nýrri kyn­slóð. Um er að ræða mestu til­færslu á verð­mætum milli kyn­slóða í íslenskri útgerð­ar­sögu af tak­mark­aðri auð­lind okkar.“

Hann spurði því ráð­herr­ann hvað honum fynd­ist um að þær upp­hæðir sem hér um ræðir og koma til vegna afnota af sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar væru ekki skatt­lagðar í rík­ari mæli. Fyndist honum það í fullri ein­lægni vera eðli­legt, sann­gjarnt, heil­brigt, spurði Logi.

„Það er í sjálfu sér ekk­ert nýtt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn deili ekki sýn okkar í Sam­fylk­ing­unni á fisk­veiði­stjórn­ar­kerfið, hvorki um nauð­syn þess að tíma­binda afla­heim­ildir eða kröfu um eðli­legt gjald í stjórn­ar­skrá fyrir afnot af sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ekki ljáð máls á útfærslum, svo sem mark­aðs­leið sem gæti skilað eig­end­unum eðli­legu gjaldi. Þá hafa þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins fellt allar til­lögur okkar um hækkun veiði­gjalda og hafa bein­línis lækkað þau um helm­ing á kjör­tíma­bil­inu og ítrekað aflétt álögum af grein­inni, jafn­vel nú í miðjum veiru­far­aldri. Ég geri mér fylli­lega grein fyrir því að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eru mis­jafn­lega stödd, alveg eins og í öðrum atvinnu­greinum. Það finn­ast reyndar lausnir til að koma á móts við þau. En það er líka morg­un­ljóst að eig­endur margra þeirra stærstu hafa rakað til sín óheyri­lega miklum gróða á síð­ustu árum, jafnt í niður- og upp­sveiflu,“ sagði Logi.

„Það þarf fleiri en einn til þess að ná samningum“

Kristján Þór svar­aði og sagði að ekki væri rétt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði hafnað öllum hug­myndum um til dæmis tíma­bind­ingu á samn­ingum á nýt­ingu sjáv­ar­auð­lind­ar­innar. Hann sagði að slitnað hefði upp úr sam­komu­lagi í nefnd sem þáver­andi þing­maður, Guð­bjartur Hann­es­son, leiddi. „Það var ekki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sem sleit það sam­komu­lag. Þar var kveðið á um lang­tíma­samn­inga á nýt­ingu þess­ara auð­linda. Sömu­leiðis var það ákvæði í stjórn­ar­sátt­mála Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar að taka það upp. En að ein­hverjum ástæðum hefur þetta ekki náð, það þarf að reyna að ná mála­miðl­unum um svona umdeild atriði. En það hefur ekki staðið á Sjálf­stæð­is­flokknum alla­vega að ræða það. Og það þarf fleiri en einn til þess að ná samn­ingum,“ sagði hann.

[links]Enn fremur sagði ráð­herr­ann að alltaf væri hægt að deila um það að gjald­taka og með­ferð slíkra mála væri eðli­leg og sann­gjörn. „Það verður dálítið per­sónu­bundið mat hverju sinni. Í mínum huga hef ég engan efa um það að fiski­miðin eru sam­eign íslensku þjóð­ar­innar. Það er kveðið á um það í fyrstu grein fisk­veiði­stjórn­ar­lag­anna. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur í raun ítrekað talað fyrir því að taka upp auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá þannig að það hefur ekk­ert staðið á okkur í þessi umræðu, að taka hana. En því miður hefur stjórn­mála­öfl­unum á þing­inu ekki auðn­ast að ná sam­stöðu um það og það er engum einum um að kenna í þeim efnum. Við berum öll sam­eig­in­lega ábyrgð á því.“

Spurði hvort þetta væri heilbrigt ástand

Logi svar­aði og sagði að auð­vitað væri mik­il­vægt að í fisk­veiði­stjórn­ar­lög­unum stæði að auð­lindin væri sam­eign Íslend­inga.

„Það er hins vegar ekki nóg þegar ein­stakir útgerð­ar­menn og erf­ingjar þeirra geta mokað út úr grein­inni enda­laust af fjár­munum. Með tíma­bund­inni úthlutun afla­heim­ilda gætum við komið í veg fyrir að hægt sé að færa þær afla­heim­ildir milli kyn­slóða með þessum hætti. Ástæðan fyrir því að ég nefni að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ljái ekki máls á þessu er ein­fald­lega afstaða Sjálf­stæð­is­flokks­ins í vinnu for­manna flokk­anna í stjórn­ar­skránni. Það eru ný tíð­indi og ég vona að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins mæti á næsta fund og fall­ist á það að við setjum inn í stjórn­ar­skrár­á­kvæðið ákvæði um tíma­bind­ingu. Hann hefur ekki ljáð máls á því,“ sagði hann.

„En ég vil fá svör ráð­herra við því hvort honum finn­ist þetta ekki eðli­legt, sann­gjarnt og heil­brigt að það skuli vera skiptar skoð­anir í sam­fé­lag­inu. Ég vil fá svör ráð­herra hvort honum finn­ist þetta heil­brigt ástand,“ sagði Logi.

Ekki komið inn á borð ráðherrans

Kristján Þór kom aftur í pontu og sagði að ekki væri rétt að for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefði ekki mætt á stjórn­ar­skrár­fund­ina. Hann hefði alltaf mætt.

Hann sagði enn fremur að ekki væri eðli­legt að fjár­munum væri mokað út úr grein­inni. „Nei, mér finnst ekk­ert eðli­legt við að fjár­munum sé mokað út úr ein­hverri til­tek­inni atvinnu­grein ef þannig háttar til.“

Varðandi mál Samherja sagði ráð­herr­ann að hann hefði lík­leg­ast fengið spurnir af yfir­færslu fjár­muna eig­enda Samherja til afkom­end­anna á sama tíma og Logi í fjöl­miðlum.

„Það hefur ekki komið inn á mitt borð. Ég verð að segja að mér fannst ekki eðli­legt ef menn standa í ein­hverjum fjár­mokstri út úr til­tek­inni atvinnu­grein. Það er bara þannig. Það gilda bara um þetta ákveðnar reglur, hvort tveggja skatta­legar reglur og ákveðin lög um með­ferð mála og þeim ber að fylgja,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár