Stöðugleikaskattur gæti lagst á Byr þótt að allar eignir hans lendi hjá íslenskum aðilum

Svo gæti farið að eignir slita­bús Byrs, sem eru 98 pró­sent í íslenskum krónum, renni að öllu leyti til íslenskra kröfu­hafa en að stöð­ug­leika­skattur muni samt sem áður leggj­ast á eign­irnar. Ástæðan er sú að úti­lokað er að ágrein­ings­málum tengd slita­bú­inu ljúki fyrir ára­mót, þegar frestur slita­búa fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja til að ljúka nauða­samn­ingum lýkur.

Stjórn­völd kynntu for­dæma­lausar aðgerðir sína til að losa um fjár­magns­höft mánu­dag­inn 8. júní síð­ast­lið­inn. Þeim er meðal ann­ars ætlað að taka á þeim mikla vanda sem 1.200 millj­arða króna eignir í íslenskum krónum sem eru í eigu fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja valda íslensku hag­kerfi. Þorri þeirra eigna munu renna til erlendra kröfu­hafa þegar slitum á búum fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna lýkur en Ísland á ekki gjald­eyri til að skipta íslenskum krónum þeirra í gjald­eyri.

Þess vegna fela aðgerðir stjórn­valda í sér tvo val­kosti: annað hvort mæta slita­búin ákveðnum stöð­ug­leika­skil­yrðum og gefa eftir hluta eigna sinna fyrir ára­mót eða íslenska ríkið leggur á þau 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatt. Stærstu kröfu­hafar Kaup­þings, Glitnis og Lands­bank­ans hafa allir sam­þykkt að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda, en þessi þrjú slitabú eiga langstærstan hluta þess vanda sem þarf að leysa. Til­gang­ur­inn er að vernda efna­hags­legan stöð­ug­leika Íslands.

Aðgerð­irnar ná hins vegar einnig yfir minni slitabú, eins og bú Byrs, sem er dverg­vaxið í sam­an­burði við hin þrjú, og mögu­legt er að allar greiðslur verði í íslenskum krónum til íslenskra aðila. Í við­bót­ar­um­sögn Byrs um frum­varp um stöð­ug­leika­skatt segir enda að "and­séð er hvernig greiðslur til íslenskra aðila ógni fjár­hags­legum stöð­ug­leika".

Allar krónurnar gætu endað hjá innlendum aðilum


Eignir slita­bús Byrs nema í dag um sjö millj­örðum króna. Um 98 pró­sent þeirra eru í íslenskum krónum. Sam­þykktar kröfur í búið nema um 60 millj­örðum króna. Þar af eru 50 millj­ónir króna for­gangs­kröfur. Um 62 pró­sent krafna eru í eigu erlendra kröfu­hafa og 38 pró­sent í eigu íslenskra kröfu­hafa, sem eru að stærstum hluta eft­ir­launa- og líf­eyr­is­sjóðir. Til sam­an­burðar má nefna að heild­ar­eignir Kaup­þings, Glitnis og Lands­bank­ans eru um 2.200 millj­arðar króna, og þar af eru um 900 millj­arðar króna í íslenskum krium.

Hins vegar eru nokkur stór ágrein­ings­mál vegna krafna sem slita­stjórn Byr hefur hafnað enn fyrir dóm­stólum. Á meðal þeirra er búskrafa Íslands­banka vegna kaupa bank­ans á end­ur­reistum Byr árið 2011. Íslands­banki borg­aði 6,6 millj­arða króna fyrir hinn bank­ann en vill meina að til­teknar eignir sem fylgdu með hafi verið ofmetnar í bók­haldi og að þær hefðu átt að vera afskrif­aðar að hluta eða öllu leyti. Íslands­banki lýsti kröfu upp á 8,4 millj­arða króna í bú gamla Byrs vegna þessa, sem slita­stjórn Byrs hafn­aði.

Í við­bót­ar­um­sögn slita­stjórnar Byrs um breyt­ingar á lögum fjár­mála­fyr­ir­tæki og frum­varpi til laga um stöð­ug­leika­skatt, sem skilað var inn til efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis 22. júní síð­ast­lið­inn, segir: „Mál vegna þessa er nú rekið fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur og er komið til­tölu­lega stutt á veg og langt er í að það klárist. Að sama skapi hefur Íslands­banki hf. stefnt íslenska rík­inu til greiðslu skaða­bóta vegna eign­hlutar rík­is­ins. Fram­an­greind máls­sókn Íslands­banka hf. hefur sett öll búskipti Byrs spari­sjóðs í upp­nám og hefur slita­stjórn enga stjórn á máls­hraða yfir­stand­andi mats­máls þar sem Íslands­banki hf. er mats­beið­andi.“

Eva B. Helga­dóttir, sem situr í slita­stjórn Byrs, sagði í sam­tali við Kjarnann að úti­lokað væri að öllum ágrein­ings­málum tengdum Byr sem rekin eru fyrir dóm­stólum ljúki fyrir ára­mót.

Nauðasamningur til að komast hjá stöðugleikaskatti


Því er sú staða uppi að ekki er hægt að klára nauða­samn­ing Byrs fyrir ára­mót nema að hann verði skil­yrtur með ein­hverjum hætti, enda ljóst að ágrein­ings­málum sem eru fyrir dóm­stólum verður ekki lokið. Með öðrum orðum yrði slikur nauða­samn­ingur til mála­mynda og ein­ungis gerður til að kom­ast hjá því að stöð­ug­leika­skattur yrði lagður á slitabú Byrs.

Ef nauða­samn­ingur verður ekki gerður mun 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur falla á á slita­búið. Í við­bót­ar­um­sögn slita­stjórnar Byrs segir að fari svo að „ágrein­ings­mál þessi falli Byr í óhag þá kann að vera komin upp sú staða að for­gangs­kröfur nemi hærri fjár­hæð en eignir Byrs. Þar sem for­gangs­kröfur eru að fullu í eigu íslenskra aðila þá mun stöð­ug­leika­skatt­ur­inn ein­ungis leggj­ast á greiðslur til íslenskra aðila, en vand­séð er hvernig greiðslur til íslenskra aðila ógni fjár­hags­legum stöð­ug­leika.

Jafn­framt gerir þessi óvissa slita­stjórn Byrs spari­sjóð veru­lega erfitt um vik að gera nauða­samn­inga fyrir ára­mót þar sem hvorki eigna né skulda­staða Byrs er ljós. Slíkir samn­ingar yrðu því háðir veru­legum fyr­ir­vörum um báða þessa þætti og myndu því ekki leysa neinn vanda annan en að kom­ast hjá fullum stöð­ug­leika­skatti.“

Ekkert tillit tekið til athugasemda Byrs


Að mati slita­stjórnar Byr vantar því til­finn­an­lega inn í frum­varpið um stöð­ug­leika­skatt ákvæði um að uppi sé ágrein­ingur þess eðlis sem Byr stendur í við Íslands­banka og að skatt­lagn­ing ætti að frest­ast þar til að því ágrein­ings­máli yrði lokið og rétt eign­ar­staða bús­ins liggi fyrir. Það væri til að mynda hægt að leysa slíkt með bráða­birgða­á­kvæði.

Eva segir að ekki hafi verið til­lit til athuga­semda slita­stjórnar Byrs þegar breyt­ingar á lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki og frum­varp um stöð­ug­leika­skatt voru sam­þykktar á Alþingi í síð­ustu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár