Vigdís gagnrýnir Einar K. og starfsfólk Alþingis

Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, segir að skýrsla meiri­hluta nefnd­ar­innar, um einka­væð­ingu bank­anna hina síð­ari, verði að form­legri þing­skýrslu á morgun þegar hún verði tekin út úr fjár­laga­nefnd. Það sé orð­heng­ils­háttur hjá for­seta þings­ins, Einari K. Guð­finns­syni að segja skýrsl­una ekki vera skýrslu í skiln­ingi þing­skapa Alþingis. „Það er verið að hanga í ein­hverjum tækni­legum atriðum en ekki efn­is­legum,“ sagði Vigdís í morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun.

Einar sagði í gær að það væri afstaða hans að sam­an­tekt þeirra Vigdísar og Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, vara­for­manns nefnd­ar­innar, sé ekki skýrsla í skiln­ingi þing­skapa, „enda hefur sam­an­tektin ekki hlotið form­lega með­ferð í fjár­laga­nefnd í sam­ræmi við ákvæði þing­skapa. Ég lít því svo á að skýrslan sé enn til umfjöll­unar í fjár­laga­nefnd og hafi ekki hlotið afgreiðslu nefnd­ar­innar.“

Vigdís gaf ekki mikið fyrir orð Einars. „Mikið hefur aum­ingja mað­ur­inn slæma ráð­gjafa, því haldið þið að ég sem þing­maður og Guð­laugur Þór vara­for­maður fari að vinna eitt­hvert mál í þing­inu sem er gegn þing­sköpum?“ sagði hún í morgun.

Þá beindi hún sjónum sínum að þing­sköp­unum sem hún gagn­rýndi mjög, þótt hún seg­ist ekki hafa starfað í mót­sögn við þau. „Ég veit að for­sætis­nefnd þings­ins er að fá ráð­gjöf frá þeim aðilum sem hafa verið að breyta þing­skap­ar­lögum hér und­an­farin ár. Sem ég tel að hafi verið gert á þann hátt að það er ekki nógu lög­fræði­lega gott. Það er svona ama­töra­yf­ir­bragð á því. Líklega þiggur for­sætis­nefnd þings­ins ráð frá þessum aðilum, ég veit það ekki. En þing­menn hafa fullt frelsi til athafna, fullt frelsi til að gera það sem þeir vilja innan þings­ins. Ef það verður fram­tíðin að for­seti þings­ins ætlar að fara að setja þing­menn niður eða veita þeim eitt­hvað til­tal, þá erum við ekki lengur búandi í lýð­ræð­is­ríki.“

Hún sagð­ist halda að Einar væri að bregð­ast við æsingi í þing­inu og hafi lík­lega sagt meira en hann hafi ætlað.

Þingsköpum breytt af þverpólitískri nefnd

Vigdís hefur gagn­rýnt breyt­ingar á þing­sköpum áður, og sagði í morgun að það væri „ama­töra­yf­ir­bragð“ á breyt­ing­unum sem gerðar hafi verið á þing­skap­ar­lögum und­an­farin ár og þær séu ekki nógu „lög­fræði­lega“ góðar.

Breyt­ing­arnar sem gerðar hafa verið á þing­sköpum und­an­farin ár hafa að mestu komið frá tveimur þverpóli­tískum nefndum. Sjá má á vef Alþingis að meðal þeirra sem komu á fundi þing­skapa­nefndar vet­ur­inn 2010 til 2011 voru Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis og Þór­hallur Vil­hjálms­son, yfir­lög­fræð­ingur Alþingis.

Vigdís sak­aði einnig starfs­menn Alþingis um það á ný í morgun að hafa lekið upp­lýs­ingum um hana til fjöl­miðla þegar greint var frá bréfi rík­is­end­ur­skoð­anda til for­seta Alþingis þar sem kvartað var undan starfs­háttum hennar. Hún segir að þess vegna hafi hún haft áhyggjur af því að sam­an­tekt hennar nú læki út, af því að hún hafi fengið starfs­menn Alþingis til að próf­arka­lesa hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár