Minnast látins trans fólks með fánum við Ráðhúsið

Alþjóð­legur minn­ing­ar­dagur trans fólks er í dag, hald­inn á dán­ar­degi trans kon­unnar Chanelle Pickett sem var myrt í Boston árið 1995. Harpa skartar einnig litum trans fán­ans.

Trans fánum er flaggað við Ráðhús Reykja­víkur í dag í til­efni af alþjóð­legum minn­ing­ar­degi trans fólks.

„Dagurinn er til að minn­ast trans fólks sem hefur verið myrt eða tekið eigið líf,“ segir í færslu á Facebook síðu Reykja­vík­ur­borgar.

„Dagurinn er hald­inn árlega um allan heim þann 20. nóv­em­ber, á dán­ar­degi trans kon­unnar Chanelle Pickett sem var myrt í Boston,“ segir enn­fremur.

Í grein á vef Reykja­vík­ur­borgar kemur fram að í ár sé minnst 281 trans ein­stak­linga sem myrt hafa verið frá 1. októ­ber 2024 til 30. sept­em­ber 2025. „90% þeirra voru trans konur eða mann­eskjur með kven­læga kyntján­ingu sam­kvæmt tölum Trans­gender Europe (TGEU), regn­hlíf­ar­sam­taka trans sam­taka í Evrópu og Mið-Asíu,“ segir í grein­inni. „Þess ber að nefna að það hefur færst í auk­ana að tals­fólk og aðgerð­ar­sinnar séu fórn­ar­lömb morða, eða rúm 14%. Tekið skal fram að talan byggir ein­göngu á skráðum fjölda morða á trans ein­stak­lingum.“

…
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Andúðin út í þetta blessaða fólk er eitthvað sem ég get ekki skilið sem betur fer.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár