Björguðu ungabörnum staðgöngumæðra frá Nepal en skildu mæðurnar eftir

Boeing 747 þota frá Ísrael fór til Nepals og til baka í gær til að bjarga þaðan ísra­elskum ferða­mönnum. Meðal 229 far­þega um borð voru 15 ísra­elsk unga­börn, sem öll fædd­ust stað­göngu­mæðrum í Nepal á síð­ustu sex vikum.

Sum barn­anna voru í för með ísra­elskum for­eldrum sínum og önnur komu í fylgd ann­arra far­þega. Stað­göngu­mæð­urnar voru hins vegar skildar eftir í Nepal. TIME greinir frá þessu.

Ísraelar hafa bjargað 26 börnum sem fædd­ust með hjálp stað­göngu­mæðra frá því að gríð­ar­lega sterkur jarð­skjálfti reið yfir Nepal á laug­ar­dag­inn. Óttast er að tíu þús­und manns hafi lát­ist og eyði­legg­ing í land­inu er gríð­ar­leg.

Málið hefur vakið athygli á alþjóð­legri stað­göngu­mæðrun sem og þessum lítt þekktu tengslum milli ríkj­anna tveggja, að Ísraelar nota í tals­verðum mæli nepalskar konur til þess að eign­ast börn. Stað­göngu­mæðrun er heimil í Ísrael en aðeins gagn­kyn­hneigð pör eiga auð­velt með að nota stað­göngu­mæður þar í landi. Ein­stæðir for­eldrar og sam­kyn­hneigð pör fara því í tals­verðum mæli til útlanda til þess að eign­ast börn með stað­göngu­mæðrum. Margir fóru til Indlands en eftir að lögum þar var breytt árið 2013 var sam­kyn­hneigðum og pörum sem hafa verið gift í innan við tvö ár bannað að kaupa stað­göngu­móður. Margir Ísraelar voru á þeim tíma í miðju ferl­inu og ind­versku mæð­urnar voru látnar ferð­ast til Nepal til að fæða börnin. Þeir sem komu í kjöl­farið réðu svo nepalskar stað­göngu­mæður.

Um hund­rað konur frá Nepal og Indlandi ganga nú með börn fyrir ísra­elska for­eldra. Rík­is­sak­sókn­ari hefur sagt að þær konur sem eru komnar hvað lengst á leið fái lík­lega að koma til Ísrael til að fæða börn sín, og frá­far­andi inn­an­rík­is­ráð­herr­ann segir að hinum verði gert auð­veld­ara að flytja til Ísrael. Það að bjarga börn­unum var for­gangs­at­riði ísra­el­skra stjórn­valda ásamt því að senda björg­un­arteymi og setja upp tíma­bund­inn spít­ala. Nú segja stjórn­völd að komið sé að því að skoða leiðir til að bjarga stað­göngu­mæðr­unum.

Málið hefur vakið mikla athygli í Ísrael og hefur tals­vert verið gagn­rýnt. Í skoð­ana­grein í Haaretz eru stjórn­völd sökuð um að sýna val­kvæða samúð með því að hjálpa aðeins börn­unum en ekki kon­unum sem gengu með þau. „Hvernig má það vera að engin þess­ara mann­legu frétta minn­ist á þessar konur, sem koma úr erf­iðum félags­legum aðstæðum...að leigja út leg þeirra...og eru núna, rétt eins og börnin sem þær voru að eign­ast, eru fastar á ham­fara­svæð­inu?“ skrif­aði Alon-Lee Green í grein sinni. Við­horfið gagn­vart stað­göngu­mæðr­unum sé lýsandi fyrir einmitt það sem sé vanda­málið við stað­göngu­mæðrun, að kon­urnar séu mark­aðsvara.

Hann seg­ist styðja rétt­inda­bar­áttu hinsegin sam­fé­lags­ins, sem hann til­heyri. Hinsegin fólk eigi að geta stofnað fjöl­skyldur í Ísrael. Hann styðji rétt­inn til þess að ala upp börn og að ríkið við­ur­kenni fjöl­skyldur hinsegin fólks. „En mér finnst ekki að þessi rétt­indi eigi að koma á kostnað ann­arra mann­eskja. Vegna þess að þá fer okkar bar­átta úr því að vera sú rétt­látasta í heim­inum í það að vera bar­átta sem skapar annað órétt­læti. Og mér finnst vega nógu mikið órétt­læti í heim­inum eins og hann er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár