Krefjast þess að Sigmundur Davíð verði ráðherra

Það er krafa stuðn­ings­manna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar innan Fram­sókn­ar­flokks­ins að ef flokk­ur­inn ætli í rík­is­stjórn­ar­sam­starf þá verði eina leiðin til sátta við þá að gera Sigmund Davíð að ráð­herra. Þetta segir Sveinn Hjörtur Guð­finns­son, for­maður Fram­sókn­ar­fé­lags Reykja­víkur, við Morg­un­blaðið í dag. Hann segir enn fremur að eina mann­eskjan til að sætta and­stæðar fylk­ingar í flokknum sé Lilja Alfreðs­dóttir, nýkjör­inn vara­for­maður hans.

Anna Kolbrún Árna­dóttir, for­maður Lands­sam­bands fram­sókn­ar­kvenna, segir að hún sé á því að völdum í flokknum hafi verið rænt. „Það voru ekki nema 40 at­kvæði sem skildu Sig­mund Davíð og Sig­urð Inga að og þarna mætti fólk og tók þátt í at­kvæða­greiðsl­unni sem ég hef ekki séð um lang­an tíma í flokks­starf­inu. Það eru eng­ar sætt­ir á leið­inni meðal flokks­manna. Ég mun því íhuga mína stöðu. Ég veit að for­maður og vara­for­maður flokks­ins gera allt sem þeir geta til að kom­ast í rík­is­stjórn en það er mín per­sónu­lega skoðun að við eig­um ekki að gera það.“

Segja hóp hafa hvatt til útstrikana

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk verstu útkomu í 100 ára sögu sinni í síð­ustu kosn­ing­unum þegar hann fékk 11,5 pró­sent fylgi. Í kosn­ing­unum 2013 hafði hann fengið 24,4 pró­sent. Sig­mundur Davíð hefur sagt að átökin á flokks­þingi, þegar hann var felldur sem for­maður, sé helsta ástæða þess að flokk­ur­inn hefði tapað svona miklu fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefði fengið 18-19 pró­sent atkvæða ef hann hefði enn verið for­maður.

Sig­mundur Davíð var sá stjórn­mála­maður í fram­boði sem var strik­aður oft­ast út allra í nýliðnum kosn­ingum. Alls strik­uðu 18 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi hann út og ein­ungis mun­aði nokkrum tugum atkvæða á að útstrik­anir nægðu til að fella hann niður um sæti. Sig­mundur Davíð sagði að hópur fólks innan flokks­ins hafi ákveðið að verja kosn­inga­bar­átt­unni til að hvetja til útstrik­ana á honum fremur en að afla flokknum fylgis. 

Anna Kolbrún segir við Morg­un­blaðið að það sé „fótur fyrir því“ að fólk hafi verið hvatt til að strika út Sigmund Davíð í nýliðnum kosn­ingum þegar það kaus Fram­sókn­ar­flokk­inn í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Páll Marís Páls­son, for­maður Sam­bands ungra fram­sókn­ar­manna, seg­ist hins vegar ekki hafa trú á að staðið hafi verið kerf­is­bundið að því að strika út nafn Sig­mund­ar Davíðs.

Brött brekka Sigmundar Davíðs frá því í apríl

Ástæða þess að kosið var nú í októ­ber, en ekki næsta voru þegar kjör­tíma­bil­inu átti að ljúka, var hið svo­kall­aða Wintris-­mál og vera ann­arra ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar í Pana­ma-skjöl­unum sem opin­beruð voru í byrjun apríl síð­ast­liðn­um. Wintris-­málið sner­ist um að Sig­mundur Davíð hafi átt félag á aflandseyj­unni Tortóla til helm­inga gegn eig­in­konu sinni. Í félag­inu eru miklar eign­ir, þótt að ekki hafi verið greint frá því opin­ber­lega nákvæm­lega hverjar þær eru. Félagið var einnig kröfu­hafi í slitabú föllnu bank­anna. Sig­mundur Davíð var spurður út í félagið í sjón­varps­þætti 3. apríl 2016 og þar sagði hann ósátt um til­urð þess og til­gang. Hann rauk síðan út úr við­tal­inu. Dag­inn eftir mættu 26 þús­und manns á stærstu mót­mæli Íslands­sög­unnar fyrir framan Alþingi og þriðju­dag­inn 5. apríl sagði Sig­mundur Davíð af sér sem for­sæt­is­ráð­herra.

Hann snéri síðan aftur í stjórn­mál í lok júlí og reyndi að koma í veg fyrir að kosn­ingar yrðu haldnar í haust. Hann reyndi einnig að koma í veg fyrir að flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins yrði haldið í aðdrag­anda kosn­inga en hvor­ugt gekk eft­ir. Á flokks­þing­inu bauð Sig­urður Ingi Jóhanns­son sig fram til for­mennsku í Fram­sókn­ar­flokknum gegn Sig­mundi Davíð og sigr­að­i.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn reynir nú hvað hann getur að kom­ast í rík­is­stjórn. Í þeim við­ræðum þá kynna for­svars­menn hans sig, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, sem sjö manna þing­flokk en ekki átta. Með fylgir vil­yrði um að Sig­mundur Davíð muni ekki með neinum hætti hafa aðkomu að þeirri rík­is­stjórn sem Framsókn myndi setj­ast í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár