Mælt fyrir frumvarpi sem kúvendir fiskveiðistjórnunarkerfinu

Frumvarp þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka um eðl­is­breyt­ingu á því umhverfi sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki starfa í hér­lendis, verður tekið til umræðu á þingi í dag sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi dag­skrá.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er formaður Viðreisnar. Hún er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er for­maður Við­reisnar. Hún er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Á dag­skrá Alþingis í dag er frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um stjórn fisk­veiða, lagt fram af þing­flokki Við­reisnar og full­trúum úr tveimur öðrum stjórn­ar­flokkum, Sam­fylk­ingu og Pírötum.

Ef frum­varpið yrði að lögum myndi það brjóta upp fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið eins og það er í dag, og hefur verið um all langt skeið.

[links]Í frum­varp­inu fel­ast þrjár megin breyt­ingar. Í fyrsta lagi verði þeir aðilar skil­greindir sem tengdir sem eiga að minnsta kosti tíu pró­sent hluta­fjár í öðrum sem heldur á meira en eitt pró­sent kvóta. Sama gildi um kröfur sem geri það að verkum að ætla megi að eig­andi þeirra hafi áhrif á rekstur aðila sem ræður yfir eitt pró­sent hluta­fjár eða meira. Samkvæmt gild­andi lögum þarf sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki að eiga meiri­hluta í annarri útgerð til að hún telj­ist tengd, en eft­ir­lit með því hvað telj­ist tengdir aðilar hefur auk þess verið í lama­sessi.

Í öðru lagi er lagt til að allir þeir sem ráða yfir eitt pró­sent heild­ar­afla­hlut­deildar þurfi að stofna hluta­fé­lag um rekst­ur­inn og skrá félagið á markað. Það myndi þýða, að óbreyttu, að 21 sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki þyrftu að skrá sig á markað til við­bótar við Brim, sem er eina fyr­ir­tækið sem heldur á kvóta sem er skráð í dag.

[adspot]Í þriðja lagi leggur frum­varpið til að að settar verði tak­mark­anir við hluta­fjár­eign eða atkvæð­is­rétt ein­stakra hlut­hafa og tengdra aðila í útgerðum sem fara með átta til tólf pró­sent af kvóta. Í frum­varp­inu segir að í slíkum útgerð­ar­fyr­ir­tækjum eigi eng­inn aðili, ein­stak­lingur, lög­að­ili eða tengdir aðilar, að eiga „meira en tíu pró­sent af hlutafé, stofnfé eða atkvæð­is­rétti í við­kom­andi aðila. Þessu ákvæði er ætlað að koma í veg fyrir frek­ari sam­þjöppun eign­ar­að­ildar í allra stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­unum.“

Líkt og áður sagði þá stendur allur þing­flokkur Við­reisnar að frum­varp­inu og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður flokks­ins, er fyrsti flutn­ings­maður þess. Haldi dag­skrá þings­ins í dag mun hún því mæla fyrir mál­inu. Auk þeirra eru Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, og Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, flutn­ings­menn þess.

Flokk­arnir þrír sem standa að frum­varp­inu hafa verið að mæl­ast með á bil­inu 35 til 38 pró­sent sam­eig­in­legt fylgi í könn­unum und­an­farna mán­uði og starfa þegar saman í meiri­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, ásamt Vinstri grænum.

Fimm tillögur um breytta skilgreiningu

Rík­is­stjórnin hefur sjálf verið að vinna að til­lögum um mögu­legar breyt­ingar á kvóta­þaki og skil­grein­ingu á tengdum aðilum. Verk­efna­stjórn var skipuð til þess í jan­úar í fyrra. Stjórn­ar­and­staðan á full­trúa í þeirri verk­efna­stjórn, Oddnýju G. Harð­ar­dóttur, þing­mann Sam­fylk­ing­ar­innar.

Eftir að Sam­herj­a­málið kom upp í nóv­em­ber var þeirri verk­efna­stjórn gert að flýta ákveðnum hluta vinna sinnar og skila fyrir lok síð­asta árs. Loka­skýrsla hennar á svo að liggja fyrir í mars. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru deilur innan verk­efna­stjórn­ar­innar um hvort lækka eigi kvóta­þakið – það hlut­fall af úthlut­uðum fisk­veiði­kvóta sem einn hópur tengdra aðila má halda á sam­kvæmt lögum – úr tólf pró­sentum í lægri pró­sentu og lítið hefur verið rætt á vett­vangi hans um hvert hlut­fall meiri­hluta­eignar í tengdum aðilum, sem í dag er 50 pró­sent, ætti að vera.

Verk­efna­stjórnin skil­aði hins vegar fimm til­lögum um breytta skil­grein­ingu á tengdum aðilum 30. des­em­ber 2019. Í bréfi sem for­maður hennar, Sigurður Þórð­ar­son, sendi Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra vegna til­lögu­skil­anna sagði: „Verk­efna­stjórnin vill taka fram, að í til­lögum sem hér fylgja með er hvorki tekin afstaða til reglna um hámarks­afla­hlut­deild né kröfu um hlut­fall meiri­hluta­eignar í tengdum aðilum. Verk­efna­stjórnin áformar að taka þessi atriði til skoð­unar og fjalla um í loka­skýrslu sinni.“

Í til­lög­un­um, fimm felst að skil­grein­ing á tengdum aðilum verði látin ná til hjóna, sam­búð­ar­fólks og barna þeirra, að ákveðin stjórn­un­ar­leg tengsl milli fyr­ir­tækja leiði til þess að fyr­ir­tækin eru talin tengd nema sýnt sé fram á hið gagn­stæða, að skil­greint verði hvað felst í raun­veru­legum yfir­ráðum, að aðilar sem ráða meira en sex pró­sent af afla­hlut­deild eða 2,5 pró­sent af krókafla­hlut­deild skulu til­kynna til Fiski­stofu áætl­aðan sam­runa, eða kaup í félagi sem ræður yfir hlut­deild eða kaup á hlut­deild og koma kaupin ekki til fram­kvæmda nema sam­þykki Fiski­stofu liggi fyrir og að Fiski­stofu verði veittar auknar heim­ildir til afla gagna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár