Hjón, sambúðarfólk og börn verða skilgreind sem tengdir aðilar í sjávarútvegi

Kristján Þór Júl­í­us­son kynnti fimm til­lögur um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun. Hluti þeirra snýr að breyttri skil­grein­ingu á því hvað telj­ist tengdir aðilar.

Kristján Þór Júlíusson er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son er sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, kynnti til­lögur verk­efna­stjórnar um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni er varðar end­ur­skoðun á meðal ann­ars skil­grein­ingu á tengdum aðilum í lögum um stjórn fisk­veiða á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun. Í til­lög­unum er hvorki tekin afstaða til reglna um hámarks­afla­hluts­deild né kröfu um hlut­fall meiri­hluta­eignar í tengdum aðilum. Þau mál er enn til skoð­unar hjá nefnd­inni og verður fjallað um þau í loka­skýrslu hennar, sem á að skila í mars næst­kom­andi.

Í til­lög­unum, sem eru fimm tals­ins, felst að skil­grein­ing á tengdum aðilum verði látin ná til hjóna, sam­búð­ar­fólks og barna þeirra, að ákveðin stjórn­un­ar­leg tengsl milli fyr­ir­tækja leiði til þess að fyr­ir­tækin eru talin tengd nema sýnt sé fram á hið gagn­stæða, að skil­greint verði hvað felst í raun­veru­legum yfir­ráðum, að aðilar sem ráða meira en sex pró­sent af afla­hlut­deild eða 2,5 pró­sent af krókafla­hlut­deild skulu til­kynna til Fiski­stofu áætl­aðan sam­runa, eða kaup í félagi sem ræður yfir hlut­deild eða kaup á hlut­deild og koma kaupin ekki til fram­kvæmda nema sam­þykki Fiski­stofu liggi fyrir og að Fiski­stofu verði veittar auknar heim­ildir til afla gagna.

[adspot]Kjarninn greindi frá því í morgun að verk­efna­stjórn um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni hefði skilað inn til­lögum sínum. hún var skipuð í mars 2019 og í henni sátu Sigurður Þórð­ar­son, sem var for­maður, Bryn­hildur Bene­dikts­dóttir, sér­fræð­ingur á skrif­stofu sjáv­ar­út­vegs- og fisk­eldis í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, Elliði Vign­is­son, sveit­ar­stjóri, Hulda Árna­dóttir, lög­maður og Oddný G. Harð­ar­dóttir, alþing­is­maður.

Í nóv­em­ber, í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins, óskaði Kristján Þór eftir því að verk­efna­stjórnin myndi skila þeim hluta vinnu sinnar sem snéri að tengdum aðilum fyrir 1. jan­úar 2020. Henni var skilað skrif­lega 30. des­em­ber 2019.

Í til­kynn­ingu segir Kristján Þór að sam­kvæmt skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um eft­ir­lit Fiski­stofu megi rekja til­raunir starfs­manna Fiski­stofu aftur um rúman ára­tug til að skil­greina hug­tökin „tengdir aðilar“ og „raun­veru­leg yfir­ráð“ í lögum um stjórn fisk­veiða. „Það sjá allir að slík staða er óvið­un­andi. Þær til­lögur sem nú liggja fyrir eru til þess fallnar að skýra það hvað felst í þessum hug­tökum en jafn­framt stuðla að skil­virkara eft­ir­liti með reglum um hámarks­afla­hlut­deild. Það er um leið mik­ill styrkur í því að starfs­hóp­ur­inn sem ég skip­aði í mars sl. nái sam­stöðu um þetta flókna mál og gefur vonir um að þessar til­lögur geti orðið grunnur að því að færa það til betri vegar.“

Eft­ir­lit og eft­ir­fylgni í molum

Rík­is­end­ur­skoðun benti á það í stjórn­sýslu­út­tekt á Fiski­stofu, sem birt var í jan­úar 2019, að hún kanni ekki hvort yfir­ráð tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi yfir afla­hlut­deildum væri í sam­ræmi við lög. Þ.e. að eft­ir­lits­að­il­inn með því að eng­inn hópur tengdra aðila ætti meira en 12 pró­sent af heild­ar­afla væri ekki að sinna því eft­ir­liti í sam­ræmi við lög.

Hingað til hefur eft­ir­litið með þessu verið þannig háttað að starfs­menn frá Fiski­stofu hafa farið tvisvar á ári og spurt sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin um hversu miklum kvóta þau og tengdir aðilar halda á. Sam­kvæmt skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar var um tvö dags­verk að ræða á ári. „Fiski­stofa treystir nán­ast alfarið á til­kynn­ing­ar­skyldu fyr­ir­tækja við eft­ir­lit með sam­þjöppun afla­heim­ilda,“ sagði í skýrsl­unni.

Rík­is­end­ur­skoðun sagði í skýrslu sinni að ráð­ast þyrfti í end­ur­skoðun á ákvæðum laga um stjórn fisk­veiða um „bæði yfir­ráð og tengsl aðila svo tryggja megi mark­visst eft­ir­lit með sam­þjöppun afla­heim­ilda“.

Sú end­ur­skoðun var í kjöl­farið boðuð með skipun áður­nefndrar verk­efna­stjórnar og því flýtt að hann skil­aði hluta af til­lögum sín­um, þeim sem snéru að kvóta­þaki og skil­grein­ingu á tengdum aðil­um, í kjöl­far þess að Sam­herj­a­málið kom upp.

Sam­herji og aðilar tengdir Brim með mik­inn kvóta

Nokkrir tengdir hópar eru mjög umsvifa­miklir í íslenskum sjáv­ar­út­vegi og halda á stórum hluta úthlut­aðs kvóta. Á meðal þeirra er Sam­herji, stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins.

Í sept­­­em­ber 2019 var Sam­herji, stærsta útgerð­­ar­­fyr­ir­tæki lands­ins sem nýlega var ásakað um vafa­­sama og mög­u­­lega ólög­­lega við­­skipta­hætti víða um heim, með 7,1 pró­­­­sent úthlut­aðs kvót­a. Útgerð­­­ar­­­fé­lag Akur­eyr­­­ar, sem er í 100 pró­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­fest­inga­­­fé­lag heldur á 0,64 pró­­­sent hans. Síld­­­­ar­vinnslan heldur á 5,3 pró­­­­sent allra afla­heim­ilda og sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­­­­fyr­ir­tækið Berg­­­­ur-Hug­inn er síðan með 2,3 pró­­­­sent kvót­ans en það er að öllu leyti í eigu Síld­­­­ar­vinnsl­unn­­­­ar.

[adspot]Sam­an­lagt er afla­hlut­­­­deild þess­­­­ara aðila er því rúm­­­lega 16,6 pró­­­­sent.

Brim er það sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki sem heldur á mestum kvóta, en félagið fór yfir hámark sem lög heim­ila í kvóta, í króka­afla­hlut­deild í þorski, í nóv­­em­ber þegar stjórn þess sam­­­þykkti samn­inga um kaup á tveimur sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­­­­fyr­ir­tækjum í Hafn­­­­ar­­­­firði, Fisk­vinnsl­unni Kambi og Grá­brók. Hjálmar Krist­jáns­­son átti 39 pró­­sent í Kambi og allt hlutafé í Grá­brók. Brim var því að kaupa eignir af bróður for­­stjóra síns. Sam­an­lagt kaup­verð nam rúm­­­­lega þremur millj­­­­örðum króna.

Stærsti eig­andi Brim er Útgerð­­­­ar­­­­fé­lag Reykja­vík­­­­­­­ur, sem á um 46,26 pró­­­­sent hlut í því félagi eftir að hafa selt stóran hlut til KG Fisk­verk­unar fyrir skemmstu. Það félag var 1. sept­­­­em­ber síð­­­­ast­lið­inn með 3,9 pró­­­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Auk þess var félagið Ögur­vík (í eigu Brims) með 1,3 pró­­­­sent afla­hlut­­­­deild.

Þann 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn greindi Kjarn­inn frá því að Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­víkur hefði keyptný 33,3 pró­­sent hlut KG fisk­verk­unar í eign­­ar­halds­­­fé­lag­inu Krist­ján Guð­­munds­­son ehf., sem átti 37 pró­­sent í Útgerð­­ar­­fé­lagi Reykja­vík­­­ur.

Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur og mun hverfa úr öllum stjórn­­un­­ar­­störfum í félag­inu. Í orð­­send­ingu sem Kjarn­­anum barst frá Útgerð­­ar­­fé­lagi Reykja­víkur segir að þar með séu „rofin fjár­­hags­­leg tengsl á milli bræðr­anna Guð­­mundar og Hjálm­­ars Krist­jáns­­sona. Eign­­ar­hald félaga þeirra bræðra á hlutafé í Brimi hf. er aðskil­ið.“

Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­víkur er þar af leið­andi að upp­i­­­stöðu í eigu Guð­­mundar Krist­jáns­­son­­ar, sem er einnig for­­stjóri Brims. Eign­­ar­hlutur félags­­ins í Brim er nú 36,13 pró­­sent. Auk þess eiga tvö tengd félög þess hlut, þar af á FISK-­­Seafood eign­­ar­halds­­­fé­lag, í 100 pró­­sent eigu Útgerð­­ar­­fé­lags Reykja­vík­­­ur, 10,05 pró­­sent hlut. Sam­tals á þessi sam­­staða Guð­­mundar Krist­jáns­­sonar því nú 46,26 pró­­sent í sjá­v­­­ar­út­­­vegs­ris­an­­um.

Félag Hjálm­­ars Þór Krist­jáns­­son­­ar, KG Fisk­verkun á Rifi, er líka á meðal stærstu eig­enda Brims, með 6,5 pró­­sent eign­­ar­hlut.

Þeir bræður eru ekki skil­­greindir sem fjár­­hags­­lega tengdir og því nær eign­­ar­hlutur sam­­stæðu Guð­­mundar Krist­jáns­­sonar ekki yfir þau 50 pró­­sent mörk sem þarf til að hann telj­ist tengdur aðili í skiln­ingi laga um hámarks­­út­­hlutun á afla­hlut­­deild.

Sam­an­lagður kvóti þess­­ara þriggja félaga (Brims, Ögur­víkur og Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur), sem eru ekki skil­­greind sem tengd, var 15,6 pró­­sent í byrjun sept­­em­ber síð­­ast­lið­ins. Sú tala gæti hafa tekið breyt­ingum enda mikil við­skipti átt sér stað innan þessa mengis síð­ustu mán­uði.

Fjórir hópar halda á rúm­lega helm­ing

Kaup­­fé­lag Skag­­firð­inga á síðan FISK Seafood, sem heldur á 5,3 pró­­sent heild­­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­­sent í Vinnslu­­stöð­inni í Vest­­manna­eyjum sem er með fimm pró­­sent heild­­ar­afla­hlut­­deild. Þá eign­að­ist FISK allt hlutafé í Soff­an­­ías Cecils­­son hf. síðla árs 2017, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,3 pró­­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­­ar­kvóti þess­­ara þriggja ótengdu aðila 10,6 pró­­sent, og er því undir 12 pró­­sent mark­inu þótt þeir yrðu skil­­greindir með öðrum hætti.

Sú breyt­ing hefur hins vegar orðið á, frá 1. sept­­em­ber síð­­ast­liðn­­um, að Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­víkur keypti ríf­­lega 10,18 pró­­sent hlut FISK Seafood í Brim, sem FISK hafði keypt í ágúst m.a. af líf­eyr­is­­sjóðnum Gildi, á 6,6 millj­­arða króna, á tæp­­lega átta millj­­arða króna þann 9. sept­­em­ber. Hagn­aður FISK var, sam­­kvæmt þessu hátt í 1,4 millj­­arðar króna á nokkrum dög­­um. Í grein sem nokkrir sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­menn í Skaga­­firði skrif­uðu á vef­inn Feyki (í eigu Kaup­­fé­lags Skag­­firð­inga) 20. sept­­em­ber 2019 var óvænt greint frá því að um 4,6 millj­­arðar króna af þessum tæp­­lega átta millj­­arða króna kaup­verði hefði verið greitt með afla­heim­ild­­um. „Það þýðir um 10 pró­­sent aukn­ingu í afla­heim­ildum FISK Seafood í tonnum og um leið umtals­verða aukn­ingu í umsvifum félags­­ins hér á heima­slóð­un­um,“ sagði í grein­inn­i.

Sam­an­lagt héldu þau félög sem talin voru upp hér að ofan, og tengj­­ast Sam­herja, Útgerð­­ar­­fé­lagi Reykja­víkur og Kaup­­fé­lagi Skag­­firð­inga, en eru samt sem áður ekki tengdir aðil­­ar, alls á 42,2 pró­­sent af öllum kvóta í land­inu í byrjun sept­em­ber 2019. Ef við er bætt Vísi og Þor­birni í Grinda­vík, sem héldu sam­an­lagt á 8,4 pró­­sent af heild­­ar­kvót­­anum og hafa verið í sam­eig­ing­­ar­við­ræð­um um nokk­urra mán­aðar skeið, þá fer það hlut­­fall yfir 50 pró­­sent.

Fjórir hópar halda því á rúm­lega helm­ing úthlut­aðs kvóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár