Danir ætla að sleppa því að nota bóluefni Janssen

Dönsk yfir­völd hafa ákveðið að sleppa því að nota bólu­efni Janssen í bólu­setn­ing­ar­á­ætl­unum sínum, en heil­brigð­is­ráð­herra lands­ins tjáði þing­mönnum allra flokka þetta á fundi í dag. Ákvörð­unin teng­ist fágætum auka­verk­unum sem fram komu í Banda­ríkj­unum.

Bóluefni Janssen eða Johnson & Johnson verður ekki notað í bólusetningaráætlun Dana.
Bóluefni Janssen eða Johnson & Johnson verður ekki notað í bólu­setn­ing­ar­á­ætlun Dana. Mynd: EPA

Dönsk yfir­völd hafa ákveðið að hætta að nota bólu­efni Janssen. Frá þessu segja bæði Politi­ken og Ekstra Bladet í dag og hafa eftir heim­ildum að heil­brigð­is­ráð­herr­ann Magnus Heunicke hafi sagt þing­mönnum allra flokka frá þessu á fundi í danska þing­inu í dag.

Politi­ken segir frá því að stjórn­völd hafi áður áætlað að þetta komi til með að seinka loka­degi dönsku bólu­setn­ing­ar­á­ætl­un­ar­innar um þrjár vikur, en Danir höfðu pantað heilar átta millj­ónir skammta af bólu­efni Janssen. Einungis þarf einn skammt af bólu­efni Janssen.

Danir ákváðu að bíða með að hefja bólu­setn­ingu með bólu­efni Janssen eftir að Banda­ríkin settu bólu­efnið tíma­bundið á hill­una þann 13. apríl, í kjöl­far þess að örfá til­felli sjald­gæfra blóð­tappa greindust í kjöl­far þess að átta milljón manns höfðu fengið bólu­setn­ingu með efn­inu. Næstum öll til­fellin voru hjá konum undir fimm­tugu og lét­ust þrjár vegna þess­ara sjald­gæfu auka­verk­ana.

Bandaríkjamenn stöðvuðu og héldu áfram en Danir ætla ekki að byrja

Nú virð­ist ljóst að hléið verður var­an­legt í Danmörku, en Banda­ríkja­menn hófu aftur notkun á bólu­efn­inu frá Janssen, sem vest­an­hafs er talað um sem bólu­efnið frá Johnson & Johnson, þann 24. apríl. Dönsk yfir­völd eru því búin að taka bæði bólu­efni AstraZeneca og Janssen úr opin­berum bólu­efna­á­ætl­unum sínum.

[adspot]

Ekstra Bladet segir þó frá því í frétt sinni að dönsk heil­brigð­is­yf­ir­völd hafi ekki úti­lokað að bólu­efni sem ekki er lengur hluti af opin­beru bólu­efna­á­ætl­un­inni gætu staðið ákveðnum hópum til boða, ef þeir vilji. En um það þyrfti að taka ákvarð­anir á sviði stjórn­mál­anna. Politi­ken segir frá því sama.

Aukinn kraftur hefur verið í bólu­setn­ingu Dana und­an­farnar vikur rétt eins og hér á landi. Þar eru nú tæp­lega 11,5 pró­sent lands­manna orðin full­bólu­sett og 23,4 pró­sent til við­bótar hafa fengið að minnsta kosti eina sprautu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár