Helgi Hrafn myndi íhuga að verða ráðherra

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, segir að hann myndi íhuga það eftir atvikum að þiggja ráð­herra­starf, stæði slíkt honum til boða. „En ég geri það ekki vald­anna vegna. Mér finnst sjúkt að þrá völd. Ég vor­kenni fólki sem gerir það. Vald er við­bjóður og fer illa með sumt fólk.“ Þetta segir Helgi Hrafn í við­tali við Frétta­blaðið í dag.

Þrír umboðs­menn Pírata, Birgitta Jóns­dóttir, Smári McCarthy og Einar Brynj­ólfs­son taka nú þátt í óform­legum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum fimm flokka. Gangi þær eftir munu Píratar vænt­an­lega fá ráð­herra­emb­ætti. Í febr­úar sam­þykktu Píratar ályktun með 94 pró­sent greiddra atkvæða sem í fólst að flokk­ur­inn myndi hafna aðkomu að rík­is­stjórn þar sem þing­menn eru einnig ráð­herr­ar. Það yrði gert að „al­gjörri og ófrá­víkj­an­legri kröfu af hálfu Pírata um stjórn­ar­sam­starf að þessi háttur verði hafður á.“ Í við­tali við Kjarnann skömmu eftir að álykt­unin var sam­þykkt sagði Helgi Hrafn að honum lang­aði ekk­ert til að verða ráð­herra.

Í við­tal­inu við Frétta­blaðið í dag seg­ist Helgi Hrafn geta hugsað sér að halda áfram í stjórn­málum og að hann komi mögu­lega aftur inn á svið þeirra síðar, sér­stak­lega ef stjórn­ar­skrár­málið krefj­ist þess. Margar ástæður hafi verið fyrir því að hann hafi ekki boðið sig aftur fram til Alþingis í þetta sinn, meðal ananrs sú að þing­mennska taki yfir líf manna. „Maður starfar ekki á þingi, maður er þing­maður. Þegar maður tekur þessa ákvörðun þá þarf maður að velja á milli tveggja gjör­ó­líkra lífs­stíla, og ég valdi að vera óbreyttur borg­ari þetta kjör­tíma­bil. Mér finnst ekki gaman að vera stjórn­mála­maður. Mér finnst það glatað eins og staðan er núna. Samt finnst mörgum ég góður stjórn­mála­maður og ég býð mig senni­lega aftur fram en þá verður það ekki til gam­ans.“

Búin til vinstri- og brjálæðingagrýla

Helgi Hrafn segir að á Alþingi líð­ist hegðun sem myndi aldrei líð­ast á öðrum vinnu­stöðum. „Þú ferð í pont­una og rök­styður þitt mál. Þá kemur ein­hver annar í pont­una, tekur það sem þú sagðir, snýr því á hvolf, nið­ur­lægir þig, reynir að gera það sem mest. Þetta er rugl og það eru sjálf­sagt ein­hverjir sem geta ekki sofið. Ég er hepp­inn því ég get það.“ Hann telur að vinnu­staða­sál­fræð­ingar ættu að starfa á Alþingi og að einn slíkur ætti að vera til taks fyrir hvern flokk. Það myndi bæta orð­ræð­una og vinnu­brögðin innan þings­ins.

Að mati Helga var kynnt undir ótta gagn­vart Pírötum í nýlið­inni kosn­inga­bar­áttu. Hann segir að það hafi verið búin til bæði vinstri grýla og brjál­æð­inga­grýla. „Eins og Bjarni Bene­dikts­son orð­aði það þá leist honum ekk­ert á að fá fólk til valda sem ætl­aði að taka stjórn­ar­skrána, rífa hana í tætlur og henda henni í ruslið. Mér fellur illa svona tal. Því auð­vitað er þetta hug­mynd sem eng­inn hefur stungið upp á. Frekar aug­ljóst. Þetta finnst mér áhuga­vert við póli­tík og það sem ég er mest að pæla í þessa dag­ana. Það er hvað óheið­ar­leiki er inn­byggður í stjórn­mál. Þá er ég ekki bara að tala um óheið­ar­leika stjórn­mála­manna sem birt­ist í orðum og gjörðum, líka almenn­ings, kjós­enda. Bjarni upp­lifði sig ekk­ert sem óheið­ar­legan, en þetta er þvæla. Nið­ur­lægj­andi tal. Mér leið­ist þetta[...]Ég er ekk­ert að taka Bjarna sér­stak­lega fyrir, þetta á við um alla og þar á meðal mig sjálfan. Það er ekki þannig að menn gangi inn í Alþing­is­hús og breyt­ist í ein­hverja aum­ingja. Þetta er allt harð­dug­legt fólk sem leggur mikið á sig og upp­sker lítið. En það má breyta hlut­unum til góðs, ég hef trú á því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár