Píratar fara ekki í ríkisstjórn nema ráðherrar séu utan þings

Það verður ófrá­víkj­an­leg krafa hjá Pírötum fyrir þátt­töku í rík­is­stjórn að ráð­herrar sitji ekki á þingi.

Píratar munu hafna aðkomu að rík­is­stjórn þar sem þing­menn eru einnig ráð­herrar. Það verður gert að „algjörri og ófrá­víkj­an­legri kröfu af hálfu Pírata um stjórn­ar­sam­starf að þessi háttur verði hafður á.“ Þetta kemur fram í ályktun Pírata um sam­skipti ráð­herra og Alþingis, sem var sam­þykkt með miklum meiri­hluta atkvæða í kosn­inga­kerfi Pírata í gær. 115 voru fylgj­andi þessu en 7 á móti.

„Víða erlendis er það við­tekin venja að ráð­herrar sinni engum öðrum störfum; nánar til­tekið, að á þeim hvíli hvorki skyldur né rétt­indi þing­manna. Þessi venja hefur ekki náð fót­festu á Íslandi, þó ekk­ert í stjórn­ar­skrá komi í veg fyrir að henni sé fylgt. Afleið­ing þessa er að for­ysta bæði Alþingis og rík­is­stjórnar - lög­gjafar- og fram­kvæmda­valds - er í höndum sömu ein­stak­ling­anna.“

Ekki er tekið fram hvort fylgja eigi þessu eftir með því að fá utan­þings­ráð­herra eða með því að krefj­ast þess að ráð­herrar víkji úr þing­sætum sínum á meðan þeir gegna ráð­herra­emb­ættum. „Vel má hugsa sér að í einni rík­is­stjórn megi finna hvort tveggja.“

Samkvæmt til­lög­unni er stærsta og veiga­mesta rök­semdin fyrir þessu það að hlut­verk rík­is­stjórnar sé að fram­fylgja vilja þings­ins, og hlut­verk þings­ins sé að fylgj­ast með því að rík­is­stjórn fylgi reglum. „Þegar engin aðgrein­ing er á for­ystu rík­is­stjórnar og þings­ins verður nær ómögu­legt að gera raun­veru­legan grein­ar­mun á því hvort það er þingið eða stofn­anir fram­kvæmda­valds­ins sem ráða för.“

Þá sé það í raun þannig að þing­mönnum sé fækkað um jafn marga og nemur ráð­herra­fjölda hverju sinni, vegna þess að ráð­herra­störf séu svo viða­mikil að úti­lokað sé að sinna bæði þeim og þing­skyldum með við­un­andi hætti.

Píratar segja þetta eiga við hvort sem þeir yrðu leið­andi í stjórn­ar­sam­starfi eða ekki. „Þó er vert að hafa í huga að orða­lagið úti­lokar ekki að Píratar verji minni­hluta­stjórn ann­arra flokka, sem skipuð er þing­mönnum, falli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár