Morgunblaðið biðst velvirðingar á birtingu auglýsingar þar sem efast er um bólusetningar

Konan sem keypti heil­síðu­aug­lýs­ingu í Morg­un­blað­inu þar sem varað var við auka­verk­unum vegna bólu­setn­ingar gegn COVID-19 seg­ist ekki skamm­ast sín. Lyfja­stofnun segir aug­lýs­ing­una vill­andi hræðslu­á­róður.

Auglýsingin sem birt var í Morgunblaðinu í gær var nafnlaus, en hafði yfirbragð þess að hún væri á vegum Lyfjastofnunar. Það var hún ekki.
Aug­lýs­ingin sem birt var í Morg­un­blað­inu í gær var nafn­laus, en hafði yfir­bragð þess að hún væri á vegum Lyfja­stofn­unar. Það var hún ekki. Mynd: Samsett

Í Morg­un­blað­inu í dag er birt athuga­a­semd frá Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, vegna birt­ingu á heil­síðu­aug­lýs­ingu í blað­inu í gær. Þar segir: „Vegna mis­taka birt­ist í Morg­un­blað­inu í gær aug­lýs­ing sem ekki var merkt aug­lýsanda og sem jafn­vel hefði mátt ætla af texta aug­lýs­ing­ar­innar að væri frá Lyfja­stofnun. Aug­lýs­ing­una keypti Bjuti ehf. Beðist er vel­virð­ingar á þessum mis­tökum.“

Í umræddri aug­lýs­ingu heil­síðu­aug­lýs­ingu, sem kostar í kringum hálfa milljón króna sam­kvæmt verð­skrá Morg­un­blaðs­ins, var fólk hvatt til að til­kynna auka­verk­anir vegna bólu­setn­ingar fyrir COVID-19 til Lyfja­stofn­unar Íslands, en heima­síða, net­fang og síma­númer stofn­un­ar­innar voru öll upp­gefin í aug­lýs­ing­unni. Síðan voru talin upp alls sautján dæmi um meintar auka­verk­anir, þar á meðal blinda og and­lát.

Undir þeirri upp­taln­ingu stóð svo: „Við erum öll almanna­varnir“ en eng­inn skrif­aður sér­stak­lega fyrir aug­lýs­ing­unni.

Lyfja­stofnun Íslands birti stöðu­upp­færslu í gær þar sem hún árétt­aði að hún stæði ekki á bak­við birt­ingu aug­lýs­ing­ar­innar. „Upp­lýs­ing­arnar sem þarna koma fram um hugs­an­legar auka­verk­anir eru vill­andi. Allar upp­lýs­ingar um mögu­legar auka­verk­anir er að finna í sam­þykktum fylgiseðlum sem eru aðgengi­legir á vef okkar. Hægt er að til­kynna auka­verk­anir á vef okkar en ekki er tekið við auka­verkana­til­kynn­ingum í gegnum tölvu­póst­fang og síma eins og þar kemur fram.“

Rúna Hauks­dótt­ir Hvann­berg, for­stjóri Lyfja­stofn­unar, sagði við mbl.is, frétta­vef Árvakurs, að útgáfu­fé­lagið yrði „auð­vitað að bera ein­hverja ábyrgð á þessu, vegna þess að þarna er verið að blása upp ein­hvern hræðslu­áróður.“

Segist ekki skammast sín

Eigandi félags­ins sem keypti aug­lýs­ing­una, Bjuti ehf., er Vil­borg Björk Hjalte­sted. Hún er systir Þor­steins Hjalte­sted, sem erfði jörð­ina Vatns­enda í Kópavogi á sínum tíma. Kópa­vogs­bær tók hluta hennar eign­ar­námi árið 2007 og greiddi Þor­steini háar fjár­hæðir í bætur. Mikil upp­bygg­ing hefur verið á jörð­inni síðan. Þrátt fyrir þetta glímdi Þor­steinn við fjár­hags­erf­ið­leika fyrir nokkrum árum og hann lést svo, 58 ára gam­all, árið 2018.

[adspot]Vilborg er líf­eind­ar­fræð­ingur með sýkla- og veiru­fræði sem sér­grein. Auðævi hennar , voru metin á 1,3 millj­arða króna í úttekt DV frá árinu 2013 og sögð eiga rætur sínar í Vatns­enda­jörð­inni. Síðustu miss­eri hefur Vilborg sett margar færslur inn á Facebook þar sem hún tor­tryggir og gagn­rýnir bólu­setn­ingar.

Í færslu sem hún setti inn 11. maí, þar sem hlekkjað er í frétt RÚV um fjölda bólu­efna­skammta sem Ísland hefur tryggt sér, segir hún að allt sé koma í ljós. „Nú er kýr­skýrt hvers vegna yfir­völd vildu ekki ná upp hjarð­ó­næmi á eðli­legan hátt í fyrra. Og ná þar með ónæmi fyrir stökk­breyt­ingum líka. Nú er búið að ná sér í áskrift af bólu­setn­ingum, 2-3 á ári. Athygl­is­verð fréttin af kon­unni sem fékk ekki að koma til USA þrátt fyrir að vera full bólu­sett, hún var ekki bólu­sett fyrir því afbrigði sem er að ganga í dag. Hverju er verið að sprauta í fólk? Gæti hugs­ast að sami leikur sé í gangi eins og með flensu­bólu­setn­ing­una ár hvert? Þá giska þeir á hvaða afbrigði gangi að hausti en eru svo ekk­ert að draga til baka þegar þeir giska vit­laust.

Í ummælum við eina stöðu­upp­færsl­una sem sett voru inn í gær er Vilborg gagn­rýnd fyrir aug­lýs­ing­una sem birt­ist í Morg­un­blað­inu og sú aug­lýs­ing kölluð „blöff“. Í svari við þeim ummælum seg­ist Vilborg ekki skamm­ast sín fyrir að vera sam­kvæm sjálfri sér. „Ég vildi að almenn­ingur væri svona gagn­rýn­inn á yfir­völd. Lyfja­stofnun hefði átt að sjá til þess sjálf að fólk fengi upp­lýs­ingar um áhætt­una sem fylgir spraut­unni. Eina blöffið er að kalla þetta bólu­setn­ingu. Bólu­setn­ingar koma í veg fyrir smit, það gerir þessi sprauta ekki, hún er sögð hjálpa fólki í því að verða minna veikt. Er hugs­an­legt að spraut­aðir verði ein­kenna­lausir smit­berar.“

Birtu auglýsingu Samherja um áróðursþátt

Þetta er ekki eina aug­lýs­ingin sem birst hefur í miðlum Árvakurs nýverið sem hefur orðið fyrir gagn­rýni.

Í lok apríl birt­ist stór aug­lýs­inga­borði á mbl.is, sem oft er mest lesni frétta­vefur lands­ins, sem á stóð „Ábyrgð­ar­leysi í Efsta­leiti“. Aug­lýs­ingin var frá útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Samherja og ef ýtt var á hlekk­inn þá var farið inn á Youtube-síðu fyr­ir­tæk­is­ins og á nýtt mynd­band sem það hefur gert um Helga Seljan, blaða­mann hjá frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik, og RÚV.

Um er að ræða þrett­ánda mynd­bandið sem Samherji hefur látið fram­leiða til að draga úr trú­verð­ug­leika þeirra sem stóðu að umfjöllun um athæfi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu sem sýnd var í nóv­em­ber 2019. Helsta skot­mark fyr­ir­tæk­is­ins í mynd­bönd­unum er, auk Helga, Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ar­inn sem er í lyk­il­hlut­verki í rann­sóknum á hendur Samherji á Íslandi og í Namibíu.

Í nýja mynd­band­inu er kvartað yfir að nið­ur­staða siða­nefndar RÚV í nýlegu kæru­máli Samherja á hendur á annan tug starfs­manna fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins, þar sem Helgi var tal­inn hafa verið brot­legur við siða­reglur vegna fjög­urra ummæla sem hann hafi látið falla á sam­fé­lags­miðlum, muni ekki hafa þær afleið­ingar að Helga verði gert að hætta umfjöllun um Samherja.

Í texta sem fylgir mynd­bandi að í ljósi nið­ur­stöðu siða­nefnd­ar­innar sé „óhjá­kvæmi­legt að draga þá ályktun að frétta­mað­ur­inn hafi verið van­hæfur til að fjalla um Samherja vegna per­sónu­legrar afstöðu gegn fyr­ir­tæk­inu og stjórn­endum þess.“

Í mynd­band­inu, sem er í kost­aðri dreif­ingu á Youtube, er einnig kvartað yfir því að RÚV birti „ekki jákvæðar fréttir um Samherja og neitar að fjalla um mis­tök sín gagn­vart fyr­ir­tæk­inu“.

Stjórn BÍ gagnrýndi birtingu auglýsingarinnar

Stjórn Blaða­manna­fé­lags­ins, undir nýrri for­mennsku Sigríðar Daggar Auð­uns­dóttur, sendi bréf á fram­kvæmda­stjóra og aug­lýs­inga­stjóra Árvakurs 1. maí, þar sem meðal ann­ars sagði að birt­ing aug­lýs­ing­ar­innar hefði sett blaða­menn mbl.is í „óvið­un­andi stöðu“ sökum þess að her­ferð Samherja væri ekki ein­ungis her­ferð „gegn einum frétta­manni eða einni rit­stjórn“ heldur beind­ist hún gegn „öllum blaða­mönnum og öllum rit­stjórnum, þar á meðal blaða­mönnum á mbl.is.“

[links]Óskaði stjórn BÍ eftir því að stjórn­endur Árvakurs myndu taka til­lit til þess­ara sjón­ar­miða og fleiri til, ef sú staða kæmi aftur upp að aug­lýsandi óskaði eftir birt­ingu aug­lýs­ingar þar sem vegið væri að starfs­heiðri frétta­manns eða frétta­manna.

Tveir trún­að­ar­menn starfs­manna á Morg­un­blað­inu hættu í kjöl­farið sem slíkir og blaða­maður Árvakurs sem sat í stjórn BÍ sagði af sér.

Kjarninn hefur þó heim­ildir fyrir því að rík óánægja hafi verið með birt­ingu aug­lýs­ing­ar­innar hjá hluta blaða­manna á rit­stjórn mbl.is og Morg­un­blaðs­ins. Sömu sögu er að segja um aug­lýs­ing­una sem birt­ist um meintar auka­verk­anir vegna bólu­efna í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

áróður

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár