Formenn stjórnmálaflokka leggja til bann við nafnlausum áróðri í aðdraganda kosninga

Áróð­ursefni þar sem reynt er að hafa áhrif á nið­ur­stöðu kosn­inga án þess að nokkur gang­ist við ábyrgð á efn­inu eða að hafa borgað fyrir það, var áber­andi í síð­ustu þing­kosn­ingum. Miklum fjár­munum var kostað til við gerð þess og dreif­ingu.

Allir for­menn eða for­mannsí­gildi þeirra átta stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á Alþingi hafa lagt fram sam­eig­in­lega frum­varp um breyt­ingu á lögum um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka og fram­bjóð­enda og um upp­lýs­inga­skyldu þeirra. Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra.

Á meðal þess sem frum­varpið leggur til er bann við nafn­lausum áróðri í aðdrag­anda kosn­inga, en slíkur áróður var áber­andi í aðdrag­anda þing­kosn­inga 2016 og 2017. Verði frum­varpið að lögum verður stjórn­mála­sam­tökum, kjörnum full­trúum þeirra og fram­bjóð­endum, sem og fram­bjóð­endum í per­sónu­kjöri, óheim­ilt að fjár­magna, birta eða taka þátt í birt­ingu efnis eða aug­lýs­inga í tengslum við stjórn­mála­bar­áttu nema fram komi við birt­ingu að efnið sé birt að til­stuðlan eða með þátt­töku þeirra.

Auk þess eiga allar aug­lýs­ingar og annað kostað efni, sem ætlað er að hafa áhrif á úrslit kosn­inga, að vera merkt aug­lýsanda eða ábyrgð­ar­manni frá þeim degi kjör­dagur hefur form­lega verið aug­lýstur vegna kosn­inga til Alþingis, sveita­stjórna eða til emb­ættis for­seta Íslands.

Facebook, stærsti sam­fé­lags­mið­ill heims, hefur þegar tekið upp kerfi þar sem keyptur auk­inn sýni­leiki fyrir efni þar sem umfjöll­un­ar­efnið er að ein­hverjum leyti póli­tískt er bund­inn því að fram komi hver greiði fyrir.

Næst verður kosið til Alþingis hér­lendis 25. sept­em­ber næst­kom­andi.

Áberandi í síðustu kosningum

Í alþing­is­kosn­ingum árin 2016 og 2017 var nafn­laus áróður gegn ákveðnum stjórn­mála­flokkum áber­andi á sam­fé­lags­miðl­um. Sömu sögu er að segja af for­seta­kosn­ingum sem fram fóru sum­arið 2016 og síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, sem fram fóru 2018.

Það varð meðal ann­ars til þess að þing­menn fjög­urra stjórn­mála­flokka lögðu snemma árs 2018 fram beiðni um skýrslu frá for­sæt­is­ráð­herra um aðkomu og hlut­deild huldu­að­ila í kosn­ingum til Alþing­is. Þeir vildu meðal ann­ars að kom­ist yrði að því hverjir stóðu að nafn­lausum áróðri í kringum alþing­is­kosn­ing­arnar 2016 og 2017 og kanna tengslin milli þeirra og stjórn­mála­flokk­anna sem buðu fram til Alþing­is.

Sú síða sem var mest áberandi í nafnlausu níði og áróðri í síðustu tveimur þingkosningum, forsetakosningunum 2016 og borgarstjórnarkosningunum 2018 ber heitið „Kosningar“. Meginþema áróðursins er að tala gegn vinstri stefnu, verja stöðu útgerðar og hvetja til þess að hægri menn séu kosnir. Miklum fjármunum var kostað til að dreifa efninu.
Sú síða sem var mest áber­andi í nafn­lausu níði og áróðri í síð­ustu tveimur þing­kosn­ingum, for­seta­kosn­ing­unum 2016 og borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018 ber heitið „Kosn­ingar“. Meg­in­þema áróð­urs­ins er að tala gegn vinstri stefnu, verja stöðu útgerðar og hvetja til þess að hægri menn séu kosnir. Miklum fjár­munum var kostað til að dreifa efn­inu.

Í grein­ar­gerð með beiðn­inni sagði meðal ann­ars að um hafi verið að ræða rætnar og and­lýð­ræð­is­legar her­ferðir sem eng­inn vildi gang­ast við. „Á skömmum tíma höfðu tug­þús­undir ein­stak­linga séð og dreift umræddum mynd­böndum og áróðri á sam­fé­lags­miðlum (einkum á Facebook og YouTube) þar sem veist var að póli­tískum and­stæð­ingum í skjóli nafn­leyndar og ráð­ist að þeim per­sónu­lega með ósann­indum og skrum­skæl­ingum án þess að kjós­endum væri ljóst hverjir stæðu á bak við áróð­ur­inn. Þær síður sem mest voru áber­andi voru ann­ars vegar Facebook-­síð­urnar Kosn­ingar 2016 og Kosn­ingar 2017, sem beindu spjótum sínum að flokkum á vinstri væng stjórn­mál­anna, og hins vegar Facebook-­síðan Kosn­inga­vaktin, sem beindi spjótum sínum að hægri væng stjórn­mál­anna.“

Skýrsl­unni var skilað til Alþingis í júní 2018. Nið­ur­staða hennar var að ekk­ert lægi fyrir um það hvaða huldu­að­ilar stóðu að nafn­lausum áróðri í kringum alþing­is­­kosn­­ing­­arnar 2016 og 2017 og að ekk­ert væri vitað um hvort stjórn­mála­sam­tök sem lúta eft­ir­liti Rík­is­end­ur­skoð­unar hafi „staðið á bak við umræddar her­ferðir eða notið góðs af þeim þannig að slíks fram­lags bæri að geta í reikn­ingum stjórn­mála­sam­tak­anna eða ein­stakra fram­bjóð­enda.“ Þá væri vand­séð hvað stjórn­völd geti gert til að graf­ast fyrir um hverjir standi á bak við þær.

Í apríl 2019 skip­aði for­sæt­is­ráð­herra svo nefnd full­trúa allra stjórn­mála­flokka á Alþingi, for­sæt­is­ráðu­neytis og dóms­mála­ráðu­neytis, til að leggja drög að frum­varpi til heild­ar­laga um starf­semi stjórn­mála­sam­taka. Vinna þeirra nefndar er und­ir­staða þess frum­varps sem kynnt var til leiks í gær­kvöldi, og á að banna nafn­lausan áróður.

Segir áróðurinn hafa virkað

Í síð­ustu kosn­ingum, árið 2017, var eft­ir­tekt­ar­verð­asti áróð­ur­inn gegn Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri grænna. Birt­ing­ar­myndin var meðal ann­ars mynd­bönd, frá nafn­lausri áróð­urs­síðu sem bar nafnið Kosn­ingar 2017, með „Skattaglöðu Skatta-Kötu“ sem klif­aði á skatta­hækk­unum og hót­aði „eigna­upp­töku að sós­íal­ískri fyr­ir­mynd“.

Mynd­bönd­unum var dreift með ærnum til­kostn­aði á Facebook og YouTube. Áhorfið mæld­ist í tugum þús­unda hið minnsta.

Í bók­inni Hreyfing rauð og græn – Saga VG 1999-2019 eftir Pétur Hrafn Árnason sagn­fræð­ing, sem kom út í des­em­ber 2019 í til­efni af 20 ára afmæli Vinstri grænna var meðal ann­ars fjallað um síð­ustu tvær þing­kosn­ingar.

Þar segir meðal ann­ars um þennan nafn­lausa áróður: „Í lok eins mynd­bands­ins runnu sam­klippur úr ræðum Katrínar á Alþingi inn í níð frá bús­á­hald­ar­bylt­ingu og myndum af upp­lausn­ar­á­standi með brenn­andi íslenska krónu í mið­punkti.“

Katrín er spurð að því í bók­inni hvort þessi áróður hafi haft áhrif’? Hún segir að hún sé nokkuð viss um að svo hafi verið. „Tillögur VG í skatta­málum voru gerðar tor­tryggi­legar og það hafði heil­mikil áhrif. Fylgið féll jafnt og þétt og að lenda í slíkri vörn strax í upp­hafi er þrælerfitt í kosn­inga­bar­áttu.“

Fylgi Vinstri grænna, sem hafði mælst í kringum 25 pró­sent í lok sept­em­ber 2017, fór að falla. Á end­anum fékk flokk­ur­inn 16,9 pró­sent, sem gerði hann að næst stærsta flokki lands­ins.

Skilyrði fyrir fjárframlögum

Auk banns­ins við nafn­lausa áróðr­inum í aðdrag­anda kosn­inga er frum­varp­inu sem for­menn stjórn­mála­flokk­anna átta birtu á vef Alþingis í gær ætlað að heim­ila að rík­is­skatt­stjóra verði falið að starf­rækja sér­staka stjórn­mála­sam­taka­skrá og að skráin verði birt almenn­ingi á vef Stjórn­ar­ráðs Íslands ásamt upp­lýs­ingum sem fylgja umsókn um skrán­ingu. Þá er lagt til að það verði gert að skil­yrði fyrir fjár­fram­lögum úr rík­is­sjóði og frá sveit­ar­stjórnum, til við­bótar við þau skil­yrði sem þegar eru í lög­unum, að við­kom­andi stjórn­mála­sam­tök hafi fengið skrán­ingu þá í stjórn­mála­sam­taka­skrá.

Í frum­varp­inu er enn fremur lagt til að skýrt verði kveðið á um heim­ildir stjórn­mála­sam­taka til að halda félaga­skrá og um heim­ila með­ferð þeirra per­sónu­upp­lýs­inga sem í hana eru skráðar auk þess sem mælt er fyrir um heim­ildir stjórn­mála­sam­taka til að vinna með per­sónu­upp­lýs­ingar um almenn­ing. Í því sam­bandi er lagt til að sér­stak­lega verði tekið fram að stjórn­mála­sam­tökum sé óheim­ilt að nýta per­són­u­snið til að beina að ein­stak­lingum efni og aug­lýs­ingum í tengslum við stjórn­mála­bar­áttu sem fela í sér hvatn­ingu um að nýta ekki kosn­ing­ar­rétt­inn.

Að end­ingu á ákvæði kosn­inga­laga um lista­bók­stafi stjórn­mála­sam­taka að verða tekið upp í lög­unum og kveða á um að skráð stjórn­mála­sam­tök skuli halda skráðum lista­bók­staf á meðan þau upp­fylla skil­yrði skrán­ingar sam­kvæmt lög­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

áróður

Mest lesið undanfarið ár