Ýta við ferðaþjónustunni með 32 milljarða króna „sumarpakka“

Danska rík­is­stjórnin ætlar að setja 1,6 millj­arða danskra króna, um 32 millj­arða íslenskra, í „sum­ar­pakka“ til að örva ferða­þjón­ustu lands­ins.

Skálað á kaffihúsi í Danmörku.
Skálað á kaffi­húsi í Danmörku. Mynd: EPA

Í júní verður ýmsum örvandi aðgerðum í danska hag­kerf­inu hætt og við taka, líkt og á síð­asta ári, „sum­ar­pakkar“ sem eiga að gagn­ast þeim greinum sem hvað verst hafa orðið úti í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Fénu verður útdeilt í ýmsar áttir en fjár­mála­ráð­herr­ann, Nicolai Wammen, segir að áherslan verði áfram á þær greinar sem hafi átt sér­stak­lega erfitt upp­dráttar í far­aldr­inum. „Okkur hefur tek­ist að halda smit­töl­unum niðri og efna­hags­líf­inu uppi og þess vegna er Danmörk á betri stað en löndin í kringum okkur,“ sagði ráð­herr­ann á blaða­manna­fundi í gær vegna máls­ins.

Auk aðgerða sem bein­ast að fyr­ir­tækjum verður verð á lest­ar­miðum innan Dan­merkur lækkað til að hvetja fólk til að ferð­ast inn­an­lands í sumar.

Talið er að ferða­þjón­ustan í Danmörku hafi orðið af 31 millj­arði danskra króna á síð­asta ári, um 630 millj­örðum íslenskra króna. „Sum­ar­pakk­inn“ sem fer til stuðn­ings ferða­þjón­ust­unni verður um 32 millj­arðar íslenskra króna. Fjár­magnið verður fengið úr „stríðskass­anum“ – sér­stökum sjóði sem settur var á fjár­lög árs­ins til að koma til móts við afleið­ingar far­ald­urs­ins.

Pakkinn er þó ekki klár því fyrst þarf þingið að koma saman og sam­þykkja hann. Þá fær þingið einnig það verk­efni að móta aðgerð um hvernig draga skuli í skrefum úr stuðn­ingi við atvinnu­lífið á næstu mán­uðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár