Nýjar hagvaxtartölur á evrusvæðinu góður endir á vikunni

Hag­vöxtur var 0,3 pró­sent á evru­svæð­inu og 0,4 pró­sent í Evr­ópu­sam­bands­ríkj­unum 28 á síð­asta árs­fjórð­ungi 2014, sam­kvæmt tölum Eurostat sem gefnar voru út í dag. Sam­an­borið við sama árs­fjórð­ung árið á undan hefur verg lands­fram­leiðsla auk­ist um 0,9 pró­sent á evru­svæð­inu og 1,3 pró­sent. Hag­vöxtur allt árið 2014 var 0,9 pró­sent á evru­svæð­inu og 1,4 pró­sent í ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins.

Hag­vaxt­ar­töl­urnar eru betri en búist hafði verið við heilt yfir, en sem fyrr er mik­ill munur milli ríkja. Lægra olíu­verð, veik­ara gengi evr­unnar og umfangs­miklar örvandi aðgerðir Seðla­banka Evrópu, með stór­tækum kaupum á rík­is­skulda­bréfum á evru­svæð­inu, eru talin þrjú mik­il­væg­ustu atriðin í þessum tölum. Lækkandi olíu­verð hefur aukið einka­neyslu á meðal veik­ara gengi evr­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal er gott fyrir útflytj­endur. Búist er við því að aðgerðir seðla­bank­ans muni hjálpa til við að halda lána­vöxtum lágum.

Hag­vöxt­ur­inn í Þýska­landi var mestur, þar sem hann mæld­ist 0,7 pró­sent á síð­asta árs­fjórð­ungi 2014, og 1,6 pró­sent allt árið. Christian Schulz, hag­fræð­ingur hjá Ber­en­berg Bank, segir við BBC að þessir sömu þættir og hafa áhrif heilt yfir ættu að hjálpa þýska hag­kerf­inu á árinu. Búist sé við því að hag­vöxtur verði kom­inn yfir tvö pró­sent um mitt næsta ár.

Annað ríki sem stendur upp úr er Spánn, þar sem vöxt­ur­inn var líka 0,7 pró­sent á síð­asta árs­fjórð­ungi. Í Frakk­landi var vöxt­ur­inn aðeins 0,1 pró­sent á meðan Ítalía stóð í stað eftir sam­drátt. Af þeim ríkjum sem eru á evru­svæð­inu dróst hag­kerfið saman í ein­ungis þremur þeirra: Finn­landi, Kýpur og Grikk­landi.

Jákvæð teikn á lofti?


Hag­vaxt­ar­töl­urnar þykja jákvæður endir á vik­unni fyrir evru­svæðið. Tölurnar hafa haft jákvæð áhrif á hluta­bréfa­mark­aði og margar helstu vísi­tölur hafa hækkað. Þá hafa vonir vaxið um að hægt verði að ná sam­komu­lagi um áfram­hald­andi sam­starf Grikk­lands við hin evru­ríkin. Í gær opn­aði Angela Merkel Þýska­landskansl­ari í fyrsta sinn á þann mögu­leika að hægt væri að gera mála­miðl­anir í sam­komu­lagi um end­ur­greiðslu á lánum Grikkja til ESB og AGS. Þá hefur verið mýkri tónn í rík­is­stjórn Grikk­lands, og tals­maður hennar sagði í morgun að Grikkir myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að sam­komu­lag náist á næsta fundi evru­hóps­ins á mánu­dag.

Þrátt fyrir þetta ríkir ekki bjart­sýni hjá öllum um að sam­komu­lag náist. Jean-Claude Juncker, fram­kvæmda­stjóri fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, segir að Grikkir séu langt frá því að ná sam­komu­lagi við ESB. Þá sagði Jeroen Dijs­sel­bloem, for­seti evru­hóps­ins, að hann væri mjög svart­sýnn á að hægt væri að kom­ast að end­an­legu sam­komu­lagi um end­ur­greiðslur skulda á mánu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár