Fjárlaganefnd leggur til frestun á VSK-hækkun á ferðaþjónustu

Meir­hluti fjár­laga­nefndar leggst gegn hækkun á virð­is­auka­skatti á ferða­þjón­ust­una.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar leggur til að hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu verði frestað en í stað­inn verði álagn­ing komu­gjalda skoðuð. Þá hvetur fjár­laga­nefnd til þess að kann­aðir verði kostir þess að eignir rík­is­ins á Kefla­vík­ur­flug­velli verði seldar.

Þetta kemur fram á vef RÚV.

Ekki eru gerðar til­lögur um að heild­ar­tekjur eða útgjöld rík­is­sjóðs í áætl­un­inni breyt­ist, að því er segir í frétt RÚV, en þó er í athuga­semdum lagt til að fjár­munir verði færðir til. Meðal ann­ars vegna athuga­semda frá öðrum þing­nefndum.

Ein veiga­mesta breyt­ingin í rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­inni snýr að ferða­þjón­ust­unni en Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur kynnt að virð­is­auka­skattur verði hækk­aður úr neðra þrepi í 22.5 pró­sent hinn 1. júlí á næsta ári. Í rík­is­fjár­mála­á­ætl­un­inni var gef­inn 15 mán­aða fyr­ir­vari, en nú er útlit að ekki verði af þessu.

Benedikt skrif­aði ítar­lega grein á vef Kjarnans þar sem farið var yfir þessi mál. „Ferða­þjón­usta hefur vaxið mikið á und­an­förnum árum. Hún hefur á þró­un­ar­skeiði sínu notið þess að vera í lægra skatt­þrepi virð­is­auka­skatts. Skatta­hag­ræði vegna þessa hefur verið metið um 16 millj­arðar króna ef litið er á gist­ingu, fólks­flutn­inga og afþr­ey­ingu, en auk þess milli fimm og sex millj­arðar króna í veit­inga­rekstri. Nú þegar greinin er orðin stærsta gjald­eyr­is­aflandi grein lands­ins og vex um tugi pró­senta á hverju ári er eðli­legt að virð­is­auka­skattur sé sá sami í grein­inni og í öðrum geir­um,“ sagði Benedikt meðal ann­ars.

Sam­an­dregið sagði hann að ástæðan fyrir hækkun á virð­is­auka­skatt­inum væri meðal ann­ars sú að ytri aðstæður köll­uðu ekki á að hún greinin fengi skatta­af­slátt.

„Að öllu þessu sögðu eru helstu nið­ur­stöð­urnar þess­ar:

1. Efna­hags­legar aðstæður þjóð­ar­bús­ins og vöxtur ferða­þjón­ust­unnar gera það saman að verkum að ekki er lengur ástæða fyrir skatta­lega ívilnun til grein­ar­inn­ar.

2. Grein­ingar benda til þess að áfram muni vöxtur ferða­þjón­ustu verða kröft­ug­ur.

3. Ein­fald­ara skatt­kerfi og færri und­an­þágur bæta skil­virkni tekju­öfl­unar rík­is­ins.

4. Lækkun almenns þreps kemur neyt­endum og atvinnu­líf­inu til góða,“ sagði Benedikt í loka­orðum greinar sinnar.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar vill horfa til þess að nýta heim­ildir í lögum og selja Kefla­vík­ur­flug­völl, til að fjár­magna sam­göngu­fram­kvæmdir og styrkja stöðu rík­is­sjóðs, að því er fram kom á vef RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár