99,1 prósent Íslendinga enn berskjaldaðir fyrir veirunni

Nið­ur­stöður rann­sóknar vís­inda­manna Íslenskrar erfða­grein­ingar sem birt­ist í The New England Journal of Medicine í dag benda til að 0,9 pró­sent Íslend­inga hafi fengið COVID-19. Kári Stef­áns­son segir að ný bylgja myndi leggja sam­fé­lagið á hlið­ina.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Nið­ur­stöður rann­sóknar vís­inda­manna Íslenskrar erfða­grein­ingar og sam­starfs­manna þeirra sem birt­ist í vís­inda­rit­inu The New England Journal of Medicine í dag, benda til þess að ekki dragi úr mótefni sem mynd­ast í blóði eftir kór­ónu­veirusmit á fyrstu fjórum mán­uðum eftir sýk­ingu.

„Á þessum átta mán­uðum sem liðnir eru frá því að þessi veira flutti sig yfir í mann­heima hefur fullt af fólki verið að gera alls konar litlar rann­sóknir á mótefnum sem og öðru,“ segir Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar í sam­tali við Kjarnann um nýju rann­sókn­ina. „Tvær af þessum rann­sóknum sögðu að mótefni byrj­uðu að minnka mjög fljót­lega. Það gerði menn áhyggju­fulla um að margir myndu sýkj­ast aftur. En okkar rann­sókn sýnir óyggj­andi fram á að mótefnin byrja ekki að minnka, að minnsta kosti ekki innan fjög­urra mán­aða. Það minnkar áhyggj­urnar af því að menn komi til með að end­ur­sýkj­ast. Þetta er mjög mik­il­vægt að vita þegar menn velta fyrir sér bólu­setn­ingum og fleiri atriðum.“

[adspot]

Alls var ski­mað fyrir mótefnum í blóði 30.576 Íslend­inga. Prófuð voru 2.102 sýni úr 1.237 Íslend­ingum sem höfðu sýkst af SARS-CoV-2, veirunni sem veldur COVID-19, sem tekin voru allt að fjórum mán­uðum eftir grein­ingu. Þá voru mæld mótefni hjá 4.222 ein­stak­lingum sem höfðu farið í sótt­kví og öðrum sem ekki höfðu kom­ist í tæri við veiruna svo vitað væri. 2,3 pró­sent þeirra sem höfðu farið í sótt­kví voru með mótefni og 0,3 pró­sent fólks sem ekki var vitað að hefði smit­ast eða umgeng­ist smit­aða ein­stak­linga. Mun fleiri greindust með mótefni sem voru í sótt­kví en þeir sem voru það ekki.

„Ef ein­hver lendir í sótt­kví með sýktum ein­stak­lingi í sinni fjöl­skyldu eru ofboðs­lega miklar líkur á því að menn sýk­ist,“ segir Kári. Um helm­ings­líkur eru á því að sýkj­ast við þær aðstæður. Þær eru mun minni ef fólk er í sótt­kví vegna sýkts bekkj­ar­fé­laga, svo dæmi sé tekið. „Ég held að það sé mjög mik­il­vægt að ef ein­stak­lingur í fjöl­skyldu sýk­ist og aðrir í fjöl­skyld­unni eru settir í sótt­kví þá séu aðrir sem komu nálægt þessum fjöl­skyldu­með­limum líka settir í sótt­kví.“

Kári bendir á annað sem skipti miklu máli og það er að eftir því sem fólk verður veik­ara þeim mun meira myndar það af mótefnum og eftir því sem það er eldra ger­ist slíkt hið sama. Þá hefur komið í ljós að konur mynda minna af mótefnum en karlar en þær eru ólík­legri en karlar til að veikj­ast mikið ef þær sýkj­ast.

Vís­inda­menn Íslenskrar erfða­grein­ingar álykta út frá gögnum að 0,9 pró­sent Íslend­inga hafi smit­ast af veirunni og 91,1 smit­aðra hafi myndað mótefni, Þá hafi 44 pró­sent þeirra sem smit­uð­ust ekki fengið grein­ingu en dán­ar­tíðni sé 0,3 pró­sent. „Þetta þýðir að 99,1 pró­sent Íslend­inga eru ennþá veikir fyrir henni, hafa enga mót­stöðu gegn þess­ari veiru,“ segir Kári. „Það aftur þýðir að ef það kæmi ný, kröftug bylgja þá myndi sam­fé­lagið leggj­ast á hlið­ina.“

Miðað við þetta eru þær ráð­staf­anir sem inn­leiddar voru á landa­mærum lands­ins 18. ágúst, hin tvö­falda skimun allra ferða­manna, mjög skyn­sam­legar að mati Kára. „Þú verður ann­ars vegar að velta fyrir þér hags­munum ferða­þjón­ust­unnar og hins vegar mögu­leik­anum að geta haldið skólum opnum, geta stundað atvinnu­greinar eins og sjáv­ar­út­veg, stundað menn­ing­ar­líf og fleira.“

Kári minnir á að það þurfi aðeins einn að kom­ast sýktur inn í landið til að koma af stað nýrri bylgju. Það hafi reynsla síð­ustu vikna sýnt okkur.

En vitum við á þess­ari stundu hversu lengi mótefnið mun verja okkur, umfram þá fjóra mán­uði sem nú hefur verið sýnt fram á?

Kári segir svo ekki vera og að ástæðan sé sú að stutt sé síðan að veiran smit­að­ist í menn. Mótefni vegna veirunnar sem olli SARS-far­aldr­inum árið 2003 ent­ist í 2-3 ár. „Ég held að það sé engin ástæða til að hafa gíf­ur­legar áhyggjur af end­ursmitun. Ef þú horfir til þess að rúm­lega 25 millj­ónir manna hafa smit­ast af veirunni í heim­inum í dag. Sá hópur hlýtur að ná yfir mjög stóran hund­raðs­hluta af öllum fjöl­breyti­leika manns­ins; í hæð, þyngd, aldri, húð­lit og svo fram­vegis. Og líka fjöl­breyti­leika þegar kemur að ónæm­is­kerf­inu. Það eru ein­hverjir ein­stak­lingar í þessum stóra hópi sem gætu sýkst tvisvar en venju­leg mann­eskja gerir það ekki.“

Kári segir mjög eðli­legt að fólk sem sýkt­ist hafi ótt­ast að smit­ast og veikj­ast aftur. „Sér­stak­lega fólk sem orðið hefur lasið. Það er eðli­legt að það sé kvíðið, það er mjög eðli­legt að veik­indin hafi fengið á það og svo eru að ber­ast fréttir af dálítið lang­vinnum eft­ir­köstum.“

En nú hefur eitt mik­il­vægt púsl fund­ist: Mótefnið minnkar ekki að minnsta kosti á fyrstu fjórum mán­uð­unum sem Kári vonar að dragi úr áhyggjum ein­hverra.

„Ég hef varið meiri­hluta ævinnar í að leita að svona púslum,“ segir Kári. Hann seg­ist hæstá­nægður með rann­sókn­ar­vinnu sinna vís­inda­manna. Hún sé mjög vönduð og að því að hann best viti ein­stök á heims­vísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár