Tveir frambjóðendur til formennsku hjá BSRB

Tveir bít­ast um emb­ætti for­manns BSRB. Lög­fræð­ingur og stuðn­ings­full­trúi á Kleppi.

Tveir hafa lýst yfir fram­boði til emb­ættis for­manns BSRB, en kosið verður til emb­ætt­is­ins á þingi BSRB morgun, en það eru Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, lög­fræð­ingur BSRB, og Vésteinn Val­garðs­son, stuðn­ings­full­trúi á Kleppi.

Elín Björg Jóns­dóttir, frá­far­andi for­maður BSRB, til­kynnti í byrjun sum­ars að hún muni ekki gefa kost á sér áfram.

Kosið verður um nýjan for­mann BSRB á 45. þingi banda­lags­ins, sem fer fram á Hilton hótel Nordica, föstu­dag­inn 19. októ­ber klukkan 14.

Sonja Ýr og Vésteinn gera bæði grein fyrir ástæðum þess að þau bjóða sig fram, á vef BSRB.

Þar segir Sonja Ýr að mik­il­væg­asta verk­efnið sé að auka vel­ferð félags­manna. „BSRB hefur lengi barist fyrir hags­munum launa­fólks og náð miklum árangri í bar­átt­unni fyrir auknum lífs­gæðum en hlut­verk banda­lags­ins hefur aldrei verið mik­il­væg­ara en nú. Þrátt fyrir að und­an­farin ár hafi ríkt góð­æri á land­inu hefur það ekki skilað sér með sama hætti til allra og síst til þeirra tekju­lægstu. Afleið­ingin er aukin mis­skipt­ing í sam­fé­lag­inu og við því verður að bregð­ast. Mik­il­væg­asta verk­efni banda­lags­ins er að auka vel­ferð okkar allra, stuðla að auknu jafn­rétti og tryggja það að allir geti lifað á launum sínum,“ segir Sonja Ýr meðal ann­ars.

Vésteinn segir í pistli á vef BSRB að hann líti á sig sem fram­bjóð­anda gras­rót­ar­innar. „Ég er sós­í­alisti og sem slíkur veit ég, og þið von­andi öll, að saga fram­fara fyrir vinn­andi fólk er saga stétta­bar­áttu, hvort sem það eru kaup og kjör, mann­rétt­indi eða lýð­ræði. Saga bar­átt­unnar er saga sigr­anna. Við búum í rang­látu þjóð­fé­lags­kerfi og á meðan svo er, þurfum við sam­taka­mátt­inn í stöðugri bar­áttu fyrir félags­legu rétt­læti, ef við viljum njóta góðra lífs­kjara fyrir okkur og börnin okkar. Bæði varn­ar­bar­áttu og sókn­ar­bar­áttu,“ segir Vésteinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár